Fréttablaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 15
E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 8 5 7 H y u n d a i T u c s o n a lm e n n 5 x 2 0 n ó v Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Vetrarglaðningur að verðmæti 450.000 kr. Við bjóðum vetrarglaðning að verðmæti allt að 450.000 kr. með nokkrum Hyundai Tucson fram að jólum. Nýja gerðin af Tucson er hlaðinn nýjungum á borð við skynvædda neyðarhemlun og hraðastilli með fjarlægðarskynjun. Hyundai Tucson - 2wd, dísil, ssk. Verð frá 5.550.000 kr. VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur. Nýr Hyundai Tucson. Félagsbústaðir voru stofnaðir árið 1997 sem hlutafélag um eignarhald og rekstur félags- legs húsnæðis í eigu Reykjavíkur- borgar. Markmið rekstursins er að auka framboð á félagslegu leigu- húsnæði í borginni og koma þann- ig til móts við þarfir þeirra sem ekki geta staðið undir greiðslubyrði lána vegna íbúðakaupa og eiga ekki kost á leiguhúsnæði á viðráðanlegum kjörum. Félagsbústaðir eru stærsta leigu- félag landsins með alls 2.550 íbúðir í lok árs 2018 en það jafngildir um 4,4% allra íbúða í Reykjavík og rúm- lega 75% alls félagslegs íbúðarhús- næðis á höfuðborgarsvæðinu. Lætur nærri að Félagsbústaðir eigi eina íbúð í hverjum stigagangi í höfuð- borginni, sem fellur vel að stefnu borgaryfirvalda um félagslega blöndun. Fyrir liggja samþykktir borgaryfirvalda um að 5% íbúðar- húsnæðis í borginni skuli vera félagslegt leiguhúsnæði og hillir nú undir að því markmiði verði náð. Á ekki að skila rekstrarhagnaði Félagsbústaðir starfa í samræmi við húsnæðisstefnu og félagsleg mark- mið Reykjavíkurborgar og þeim er ekki heimilt að greiða út arð af rekstri til eigenda sinna, enda ekki gert ráð fyrir að félagið sé rekið í hagnaðarskyni. Frá árinu 2015 til dagsins í dag hafa Félagsbústaðir keypt 233 íbúðir og áætlað er að á tímabilinu 2019-2023 verði íbúðum fjölgað um 600. Bæði verða keyptar eldri og nýjar íbúðir auk þess sem áformað er að Félagsbústaðir byggi íbúðir sem þjóna þörfum fólks með fötlun. Það styður verulega þessa uppbyggingu að við úthlutum lóða á nýjum byggingareitum er nú gert ráð fyrir að Félagsbústaðir eigi kauprétt á 5% þeirra íbúða sem þar eru byggðar. Með lagabreytingu 2016 var inn- leidd stórfelld kerfisbreyting varð- andi uppbyggingu og rekstur félags- legs leiguhúsnæðis. Hún hefur m.a. leitt til þess að fleiri stórir aðilar hafa komið inn á leigumarkaðinn og er sérstakt ánægjuefni að þeirra á meðal er íbúðafélagið Bjarg sem stofnað var af ASÍ og BSRB. Það félag er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjöl- skyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í lang- tímaleigu. Rekstur Félagsbústaða í góðu horfi Félagsbústaðir hafa frá upphafi lagt áherslu á gott viðhald og útlit íbúða, húsa, lóða og sameigna. Vissulega má gera enn betur í þeim efnum en það hefur sýnt sig að betra útliti og ástandi eigna fylgir bætt umgengni. Skil á leigugreiðslum hafa einnig batnað mjög á þeim 20 árum sem liðin eru síðan fyrirtækið tók við rekstri leiguíbúða af Reykjavíkur- borg, eða frá því að vera um 75% af leigutekjum upp í um 98%. Leigu- greiðslur taka mið af kostnaðar- grunni eftir kerfi sem miðar að því að skila rekstrinum á núlli. Almennt séð er rekstur Félagsbú- staða í góðu horfi. Það er þó ærinn starfi fyrir þá liðlega 20 starfsmenn sem vinna hjá félaginu að takast á við það stóra verkefni sem felst í utanumhaldi og rekstri á þriðja þúsund félagslegra íbúða. Til að það geti gengið þarf starfsemin að njóta almenns trausts borgarbúa og þeirra sem eiga heima í íbúðum félagsins. Það er viðvarandi verkefni stjórnar og starfsmanna félagsins að ávinna það traust. Liður í því er að tryggja að stjórnhættir séu í góðu lagi, m.a. með því að starfrækja öfluga innri endurskoðun sem miðar að því að rekstur félagsins sé ætíð í réttu horfi og í samræmi við þær kröfur sem til hans eru gerðar. Þá er ekki síður mikilvægt að hlusta á viðskiptavini félagsins, en um þessar mundir er einmitt unnið að viðamikilli könn- un á viðhorfi leigutaka til félagsins. Þegar áherslur í rekstri eru mótaðar er mikilvægt að hafa niðurstöður slíkra kannana til hliðsjónar. Vandaðir stjórnhættir – góð meðferð á almannafé Eins og hér hefur verið rakið hefur stefna borgarstjórnar á undan- förnum árum leitt til aukinnar uppbyggingar á vegum Félagsbú- staða. Íbúðum í eignasafni félags- ins hefur fjölgað verulega og mun halda áfram að fjölga. Á sama tíma hafa verið lögbundnar verulegar breytingar á félagslega leiguhús- næðiskerfinu sem fela í sér fjöl- margar áskoranir í rekstrinum. Um leið virðast þær einnig fela í sér tækifæri til grundvallarbreytinga á þessu sviði með auknu framboði íbúða og fjölgun valkosta. Meiri umsvifum Félagsbústaða hlýtur að fylgja aukin krafa um að vel sé farið með þá fjármuni sem lagðir eru til málaflokksins úr opin- berum sjóðum og að þjónustan sé í samræmi við þær kröfur sem til hennar eru gerðar. Vandaðir stjórnhættir hljóta ávallt að vera lykilatriði ef stuðla á að góðri með- ferð almannafjár. Félagsbústaðir stærsta íbúðafélag landsins Sigrún Árnadóttir framkvæmda­ stjóri Félags­ bústaða Meiri umsvifum Félagsbú- staða hlýtur að fylgja aukin krafa um að vel sé farið með þá fjármuni sem lagðir eru til málaflokksins úr opinberum sjóðum og að þjónustan sé í samræmi við þær kröfur sem til hennar eru gerðar. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15M i ð V i k u D A G u R 1 2 . D e S e M B e R 2 0 1 8 1 2 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 B 6 -8 5 F C 2 1 B 6 -8 4 C 0 2 1 B 6 -8 3 8 4 2 1 B 6 -8 2 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.