Fréttablaðið - 12.12.2018, Page 15
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
8
5
7
H
y
u
n
d
a
i
T
u
c
s
o
n
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
n
ó
v
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is
Vetrarglaðningur að verðmæti 450.000 kr.
Við bjóðum vetrarglaðning að verðmæti allt að 450.000 kr. með nokkrum Hyundai Tucson fram að jólum. Nýja
gerðin af Tucson er hlaðinn nýjungum á borð við skynvædda neyðarhemlun og hraðastilli með fjarlægðarskynjun.
Hyundai Tucson - 2wd, dísil, ssk. Verð frá 5.550.000 kr.
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á.
Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur.
Nýr
Hyundai Tucson.
Félagsbústaðir voru stofnaðir árið 1997 sem hlutafélag um eignarhald og rekstur félags-
legs húsnæðis í eigu Reykjavíkur-
borgar. Markmið rekstursins er að
auka framboð á félagslegu leigu-
húsnæði í borginni og koma þann-
ig til móts við þarfir þeirra sem ekki
geta staðið undir greiðslubyrði lána
vegna íbúðakaupa og eiga ekki kost
á leiguhúsnæði á viðráðanlegum
kjörum.
Félagsbústaðir eru stærsta leigu-
félag landsins með alls 2.550 íbúðir
í lok árs 2018 en það jafngildir um
4,4% allra íbúða í Reykjavík og rúm-
lega 75% alls félagslegs íbúðarhús-
næðis á höfuðborgarsvæðinu. Lætur
nærri að Félagsbústaðir eigi eina
íbúð í hverjum stigagangi í höfuð-
borginni, sem fellur vel að stefnu
borgaryfirvalda um félagslega
blöndun. Fyrir liggja samþykktir
borgaryfirvalda um að 5% íbúðar-
húsnæðis í borginni skuli vera
félagslegt leiguhúsnæði og hillir nú
undir að því markmiði verði náð.
Á ekki að skila rekstrarhagnaði
Félagsbústaðir starfa í samræmi við
húsnæðisstefnu og félagsleg mark-
mið Reykjavíkurborgar og þeim
er ekki heimilt að greiða út arð af
rekstri til eigenda sinna, enda ekki
gert ráð fyrir að félagið sé rekið í
hagnaðarskyni. Frá árinu 2015 til
dagsins í dag hafa Félagsbústaðir
keypt 233 íbúðir og áætlað er að á
tímabilinu 2019-2023 verði íbúðum
fjölgað um 600. Bæði verða keyptar
eldri og nýjar íbúðir auk þess sem
áformað er að Félagsbústaðir byggi
íbúðir sem þjóna þörfum fólks með
fötlun. Það styður verulega þessa
uppbyggingu að við úthlutum lóða
á nýjum byggingareitum er nú gert
ráð fyrir að Félagsbústaðir eigi
kauprétt á 5% þeirra íbúða sem þar
eru byggðar.
Með lagabreytingu 2016 var inn-
leidd stórfelld kerfisbreyting varð-
andi uppbyggingu og rekstur félags-
legs leiguhúsnæðis. Hún hefur m.a.
leitt til þess að fleiri stórir aðilar
hafa komið inn á leigumarkaðinn
og er sérstakt ánægjuefni að þeirra
á meðal er íbúðafélagið Bjarg sem
stofnað var af ASÍ og BSRB. Það félag
er rekið án hagnaðarmarkmiða og
er ætlað að tryggja tekjulágum fjöl-
skyldum á vinnumarkaði aðgengi
að öruggu íbúðarhúsnæði í lang-
tímaleigu.
Rekstur Félagsbústaða
í góðu horfi
Félagsbústaðir hafa frá upphafi lagt
áherslu á gott viðhald og útlit íbúða,
húsa, lóða og sameigna. Vissulega
má gera enn betur í þeim efnum en
það hefur sýnt sig að betra útliti og
ástandi eigna fylgir bætt umgengni.
Skil á leigugreiðslum hafa einnig
batnað mjög á þeim 20 árum sem
liðin eru síðan fyrirtækið tók við
rekstri leiguíbúða af Reykjavíkur-
borg, eða frá því að vera um 75% af
leigutekjum upp í um 98%. Leigu-
greiðslur taka mið af kostnaðar-
grunni eftir kerfi sem miðar að því
að skila rekstrinum á núlli.
Almennt séð er rekstur Félagsbú-
staða í góðu horfi. Það er þó ærinn
starfi fyrir þá liðlega 20 starfsmenn
sem vinna hjá félaginu að takast
á við það stóra verkefni sem felst
í utanumhaldi og rekstri á þriðja
þúsund félagslegra íbúða. Til að það
geti gengið þarf starfsemin að njóta
almenns trausts borgarbúa og þeirra
sem eiga heima í íbúðum félagsins.
Það er viðvarandi verkefni stjórnar
og starfsmanna félagsins að ávinna
það traust. Liður í því er að tryggja
að stjórnhættir séu í góðu lagi, m.a.
með því að starfrækja öfluga innri
endurskoðun sem miðar að því að
rekstur félagsins sé ætíð í réttu horfi
og í samræmi við þær kröfur sem til
hans eru gerðar. Þá er ekki síður
mikilvægt að hlusta á viðskiptavini
félagsins, en um þessar mundir er
einmitt unnið að viðamikilli könn-
un á viðhorfi leigutaka til félagsins.
Þegar áherslur í rekstri eru mótaðar
er mikilvægt að hafa niðurstöður
slíkra kannana til hliðsjónar.
Vandaðir stjórnhættir –
góð meðferð á almannafé
Eins og hér hefur verið rakið hefur
stefna borgarstjórnar á undan-
förnum árum leitt til aukinnar
uppbyggingar á vegum Félagsbú-
staða. Íbúðum í eignasafni félags-
ins hefur fjölgað verulega og mun
halda áfram að fjölga. Á sama tíma
hafa verið lögbundnar verulegar
breytingar á félagslega leiguhús-
næðiskerfinu sem fela í sér fjöl-
margar áskoranir í rekstrinum. Um
leið virðast þær einnig fela í sér
tækifæri til grundvallarbreytinga
á þessu sviði með auknu framboði
íbúða og fjölgun valkosta.
Meiri umsvifum Félagsbústaða
hlýtur að fylgja aukin krafa um að
vel sé farið með þá fjármuni sem
lagðir eru til málaflokksins úr opin-
berum sjóðum og að þjónustan sé
í samræmi við þær kröfur sem
til hennar eru gerðar. Vandaðir
stjórnhættir hljóta ávallt að vera
lykilatriði ef stuðla á að góðri með-
ferð almannafjár.
Félagsbústaðir stærsta íbúðafélag landsins
Sigrún
Árnadóttir
framkvæmda
stjóri Félags
bústaða
Meiri umsvifum Félagsbú-
staða hlýtur að fylgja aukin
krafa um að vel sé farið með
þá fjármuni sem lagðir eru til
málaflokksins úr opinberum
sjóðum og að þjónustan sé í
samræmi við þær kröfur sem
til hennar eru gerðar.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15M i ð V i k u D A G u R 1 2 . D e S e M B e R 2 0 1 8
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
6
-8
5
F
C
2
1
B
6
-8
4
C
0
2
1
B
6
-8
3
8
4
2
1
B
6
-8
2
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K