Fréttablaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 12.12.2018, Blaðsíða 42
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot 1254 Alexander 4. verður páfi. 1643 Torstenson-ófriðurinn hefst með innrás sænska her- foringjans Lennarts Torstenson í Jótland. 1666 Stóra kirkjuþingið í Moskvu setur Nikon patríarka af. 1804 Spánverjar segja Bretum stríð á hendur. 1901 Marconi-félaginu tekst að senda útvarpsskeyti yfir Atlantshafið í fyrsta skipti. 1904 Fyrsta almenningsrafveitan sett upp á Íslandi í Hafnarfirði af Jóhannesi Reykdal. 1911 200 ára afmælis Skúla Magnússonar landfógeta minnst í Reykjavík með samsæti. 1914 Dow Jones-vísitalan fellur um 24,39% sem var þá mesta prósentulækkun á einum degi frá upphafi vísi- tölunnar. 1919 Jón Dúason hagfræðingur krefur Íslandsbanka um gull að andvirði 25 þúsund íslenskar krónur en gleymst hafði að endurnýja lög sem veittu undanþágu við gull- innlausnarskyldu bankans. 1947 Björgunarafrekið við Látrabjarg hefst þar sem 12 skip- verjum úr togaranum Dhoon var bjargað. 1948 Sex manns farast er snjóflóð fellur á bæinn Goðdal í Strandasýslu. Fjórum dögum síðar bjargaðist húsbóndinn úr flóðinu. 1963 Kenýa hlýtur sjálfstæði frá Bretlandi. 1979 Jarðskjálfti og flóðbylgja valda dauða 259 manna í Kólumbíu. 1979 Valdaránið 12. desember: Chun Doo-hwan hershöfð- ingi tekur völdin í Suður-Kóreu. Merkisatburðir Ástkær móðurbróðir okkar, Sigurður Randversson Norðurgötu 54, Akureyri, lést 7. desember. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 17. desember kl. 13.30. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hornbrekku fyrir góða umönnun. Systrabörn hins látna. Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, Alma Thorarensen áður til heimilis að Skildinganesi 32, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 8. desember sl. Útför fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 17. desember klukkan 15.00. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Helga Hrefna Bjarnadóttir Stefán Örn Bjarnason Sigrún Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Pétur Vilbergsson Árnastíg 7, Grindavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 8. desember. Hann verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 14. desember kl. 14.00. Bjarnfríður J. Jónsdóttir Fanney Pétursdóttir Sigurður Jónsson Elías Þór Pétursson Jóhanna María Gylfadóttir Hulda Pétursdóttir Thomas Vance Pollock Eygló Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, Hreinn Hreinsson lést á dvalarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum, 4. desember. Jarðarför hans fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Lena María Hreinsdóttir Helga Kolbrún Hreinsdóttir Hreinn Andrés Hreinsson Sveinn Birgir Hreinsson Erna Bára Hreinsdóttir Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Emilía Jónsdóttir, félagsráðgjafi Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðjón Guðmundsson rafvélavirkjameistari, Bauganesi 33a, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Álftanesi, fimmtudaginn 13. desember kl. 15. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast Guðjóns er bent á Alzheimersamtökin. Elsa Heike Jóakimsdóttir Kristín E. Guðjónsdóttir Baldur Ó. Svavarsson Anna Margrét Guðjónsdóttir Þorgeir Ólafsson Jóhanna B. Guðjónsdóttir Aðalsteinn Ásberg Brynja Birgisdóttir Jan Helsinghoff og fjölskyldur. Á þessum degi árið 2003 drapst hvalurinn og kvik-myndastjarnan Keikó og lauk þar með miklu og undarlegu máli sem hafði staðið yfir frá því Keikó var fluttur hingað til lands árið 1998 með pompi og prakt. Kannski má samt segja að þetta hafi allt byrjað með því að Keikó var veiddur nálægt Íslandi árið 1979 og því hafa ýmsir talað um hvalinn sem „Íslending“. Að minnsta kosti var gerð tilraun til að „sleppa“ Keikó, hann fluttur til Vestmannaeyja þaðan sem hann fór til Noregs þar sem hann drapst fyrir aldur fram, aðeins 27 ára að aldri. Það tókst aldrei að gera hann „villtan“ aftur en í það verkefni var eytt einum tveimur milljörðum króna samtals. „Auðvitað brá mér við að heyra tíðindin því skepnan hafðist mjög vel við og var við hestaheilsu í Noregi,“ segir Hallur Hallsson, talsmaður Free Willy-Keikó Foundation á Íslandi í viðtali við Fréttablaðið þann 14. desember 2003. „Á miðvikudag virtist hann fá einhverja kvefpest, sem hafði gerst áður, og var ekki lystugur á fimmtudeginum. Á föstudaginn var greinilegt að það var mjög af honum dregið og síðdegis synti hann á land. Hann vissi greinilega sjálfur hvað var á ferðinni því háhyrningar synda á land til þess að deyja drottni sínum.“ Hallur bætti einnig við: „Þessi Stærsta kvikmyndastjarna Íslandssögunnar drapst Grannt var fylgst með Keikó á meðan hann lifði, til að mynda muna margir eflaust eftir frægum leik hans við dekk nokkuð. Keikó drapst einungis 27 ára eins og hinar ým su rokkstjörnur. Enda mikil stjarna. Í Fréttablaðinu var þessi sorglega frétt um dauða Keikós. Á þessum degi árið 2003 dó stærsta kvikmynda- stjarna Íslandssögunnar, hvalurinn Keikó. Hann náðist við Íslandsstrendur árið 1979 og eyddi stórum hluta ævi sinnar í Holly- wood. Keikó dó fyrir aldur fram við Noregsstrendur. frétt hefur farið um allan heim. Allir helstu fréttamiðlar hafa fjallað um þetta og það hefur verið gríðarlegur fjöldi fjölmiðlamanna við Taknes- fjörð í Noregi.“ Keikó lék hvalinn Willy í Free Willy-myndunum, en þær urðu þrjár talsins. Myndirnar fjölluðu um hval sem var frelsaður úr haldi – en líf þess hvals átti eftir að verða ansi líkt lífi hvalsins í myndinni sem gaf þessu máli öllu óneitanlega dular- fullan blæ og heillaði heimsbyggðina. Stundum er sagt að Keikó hafi verið frægasti Íslendingurinn og kannski er það satt. Það hafa að minnsta kosti fáir verið svona mikið í sviðsljósinu á jafn skömmum tíma. stefanthor@frettabladid.is 1 2 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð tímamót 1 2 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 B 6 -8 5 F C 2 1 B 6 -8 4 C 0 2 1 B 6 -8 3 8 4 2 1 B 6 -8 2 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.