Fréttablaðið - 12.12.2018, Side 10
Tækni Bandaríski rapparinn Soulja
Boy, sem gerði garðinn frægan með
laginu Crank That árið 2007, hefur
auglýst til sölu bæði handhæga
leikjatölvu og leikjatölvu til þess að
tengja við sjónvarp undir heitinu
SouljaGame. Á vefverslun rapparans
segir að hægt sé að spila leiki hann
aða fyrir Nintendo Switch, 3DS, Play
station Vita og fleiri tölvur á hand
hægu Souljagametölvunni. Með
tölvunum fylgja svo þúsundir leikja.
Ólíklegt verður að teljast að
Soulja Boy hafi leyfi fyrir þeim
leikjum sem koma forhlaðnir inn á
tölvurnar. Tæknimiðlar fullyrða að
um sé að ræða ROMskrár, ólögleg
afrit leikja. Nintendo hefur undan
farin misseri gengið hart fram
gegn ROMskiptisíðum og gæti
Soulja Boy því átt von á mál
sókn. Síðast komst Nintendo
að samkomulagi við ROM
skiptisíðu tveggja karl
manna frá Arizona í nóv
ember þar sem þeim var
gert að greiða japanska
fyrirtækinu 12,2 milljónir
dala í skaðabætur.
Ve f v e r s l u n a r r i s i n n
Shopi fy lokaði aðgangi
Soulja Boy vegna málsins.
Að því er virðist af tístum
rapparans að dæma er hann
lítið hrifinn af ákvörðuninni. „Til
andskotans með Shopify. Enginn
ætti að stunda viðskipti við þau.
Þau eru kynþáttahatarar.“
Svo virðist sem Soulja Boy sé
í þokkabót að selja leikjatölvur
keyptar beint af Alibaba.
com sem eru síðan merktar
honum. Finna má handhæga
leikjatölvu, nákvæmlega eins
og SouljaGame utan merkis
ins, á kínversku vefversluninni
á um fimmtán prósent af því
verði sem Soulja Boy setur á
gripinn. – þea
Vafasamar leikjatölvur Soulja Boy
Soulja Boy.
Þýskaland Lögregluskírteini Vlad
ímírs Pútín, forseta Rússlands, fannst
í skjalasafni Stasi, leyniþjónustu
AusturÞýskalands. Þýska blaðið Bild
greindi frá málinu í gær og birti ljós
mynd af skírteininu. Með skírteininu
hafði Pútín, samkvæmt Bild, fullan
aðgang að skrifstofum Stasi. Ekki er
ljóst hvort forsetinn hafi unnið beint
fyrir Stasi en hann var útsendari sov
ésku leyniþjónustunnar KGB í Dres
den í AusturÞýskalandi.
Stasi stundaði á sínum tíma
umfangsmikið eftirlit með almenn
um borgurum í því skyni að uppræta
andófsraddir. Fjöldi AusturÞjóðverja
gegndi hlutverki uppljóstrara fyrir
Stasi. Eftir fall Berlínarmúrsins voru
allnokkrir Stasiliðar fangelsaðir.
Aðrir eru þó enn áberandi í Þýska
landi. Til að mynda Matthias Warn
ig, forstjóri orkufyrirtækisins Nord
Stream sem sér um jarðgasleiðslu frá
Rússlandi til Þýskalands. – þea
Pútín í skjalasafni Stasi
Pútín Rússaforseti. NoRdicPhotoS/Getty
kína Kanadíski fyrrverandi dipló
matinn Michael Kovrig hefur verið
handtekinn í Kína. Hugveitan
Inter national Crisis Group greindi
frá málinu í gær og sagðist beita sér
fyrir því að Kovrig yrði leystur úr
haldi. Ekki hefur verið upplýst um
ástæðu handtökunnar. Kovrig hefur
meðal annars unnið sem erindreki
í Peking og Hong Kong. Þá hefur
hann starfað frá því í febrúar í fyrra
sem sérfræðingur fyrir International
Crisis Group.
Reuters greindi sömuleiðis frá
málinu og hafði eftir heimildum.
Yfirvöld í Kína vildu ekki svara fyrir
spurnum miðilsins um málið.
Setja má handtöku Kovrigs í
samhengi við nýja deilu Kína og
Kanada. Sú spratt upp eftir að Meng
Wan zhou, fjármálastjóri Huawei og
dóttir stofnanda kínverska tækni
risans, var handtekin í Kanada í
síðustu viku. Henni er gefið að sök
að hafa logið að bönkum um ítök
Huawei á írönskum markaði og
þannig sett bankana í hættu á að
brjóta gegn viðskiptaþvingunum.
Bandaríkin fóru fram á handtökuna
og vilja að Meng sé framseld.
Yfirvöld í Kína kölluðu svo sendi
herra bæði Bandaríkjanna og Kan
ada á teppið til að ræða um málið.
Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum sagði
að von væri á frekari aðgerðum
vegna handtöku Meng.
Einnig má setja málið í sam
hengi við það þegar kanadískt par
var handtekið í Kína árið 2014. Þá
höfðu Kanadamenn nýlega sakað
Kínverja um að ráðast á tölvukerfi
sitt. – þea
Kína handtekur
kanadískan
diplómata
Michael Kovrig, fyrrverandi dipló-
mati Kanada. NoRdicPhotoS/AFP
spánn Katalónsku aðskilnaðarsinn
arnir Jordi Sanchez og Jordi Turull
eru nú á tólfta degi hungurverk
falls og þeir Joaquim Forn og Josep
Rull á sínum níunda. Saman eru
þeir vistaðir í Lledonersfangelsinu
vegna meints uppreisnaráróðurs
og uppreisnar gegn spænska ríkinu
í tengslum við sjálfstæðisatkvæða
greiðslu og yfirlýsingu síðasta árs.
Þeir efndu til hungurverkfallsins
til að mótmæla því hversu lengi
spænsk stjórnvöld hafa frestað því
að rétta yfir þeim og til að mótmæla
ákærunum sjálfum. Auk þeirra eru
fimm önnur í haldi.
Pilar Calvo, upplýsingafulltrúi
fjórmenninganna, hefur greint frá
því að þeir ætli að halda hungur
verkfallinu til streitu og séu hvergi
nærri því að gefast upp. Samanlagt
hafi þeir lést um 20 kíló og stríði
nú við svefnleysi. Þá blés Calvo á
frásagnir af því að fjórmenning
arnir væru að svindla, sagði þá bara
drekka vatn með steinefnum en
hafa vissulega þurft að taka lyf.
Quim Torra, forseti héraðsins,
lauk í gær tveggja sólarhringa föstu
sem hann efndi til, til þess að sýna
föngunum samhug. Fleiri kata
lónskir aðskilnaðarsinnar hafa
tekið svipaða ákvörun. Fram að
jólum munu til dæmis tíu fasta í
einu í Dipòsit d’Aigües del Rei Martí
í miðborg Barcelona. Hver hópur
mun fasta í allt að sjö daga.
Greint var frá því í gær að ríkis
saksóknari Spánar í Katalóníu
rannsakaði nú hvort katalónska lög
reglan hefði sýnt vanrækslu með því
að koma ekki í veg fyrir mótmæli
gegn spænskum stjórnvöldum um
helgina.
Stjórnvöld í Madríd hafa varað
Katalóna við því að spænska lög
reglan gæti verið send á svæðið
vegna málsins. – þea
Svefnleysi og þyngdartap í hungurverkfalli fjögurra Katalóna
Karlfangarnir sjö, af níu föngum alls, eru vistaðir í Lledoners-fangelsinu í
Katalóníu. Frá vinstri má sjá þá Jordi Sanchez, oriol Junqueras, Jordi turull,
Joaquim Forn, Jordi cuixart, Josep Rull og Raul Romeva. NoRdicPhotoS/AFP
BreTland Jeremy Corbyn, leiðtogi
Verkamannaflokksins og bresku
stjórnarandstöðunnar, sagðist í
gær ekki ætla að leggja fram tillögu
um vantraust á Theresu May for
sætisráðherra. Það er, ekki fyrr en
hann hefði fullvissu um að hann
næði meirihluta á bak við slíka til
lögu. Ef til þess kæmi þyrfti að boða
til nýrra kosninga. Þeirra þriðju á
fimm árum.
Hins vegar sagði Corbyn að May
hefði smánað embætti sitt með því
að aflýsa atkvæðagreiðslu um Brex
itsamninginn, sem hún hefur náð
við ESB, er fram átti að fara í gær.
„Þessi ríkisstjórn er ekki starfhæf
lengur og forsætisráðherrann þarf
að játa að samningurinn er dauður.
Þessar misheppnuðu samningavið
ræður hafa endað í tómri vitleysu.
Hún hefur ekki lengur umboð til
að semja af Bretlands hálfu fyrst
hún hefur ekki umboð innan eigin
flokks,“ sagði Corbyn.
Miðað við orð Iains Duncans
Smith, þingmanns Íhaldsflokksins,
er einmitt ekki ljóst hvort May njóti
stuðnings flokksmanna. Vissulega
hefur stórt brot þingflokksins lengi
verið óánægt með gang mála en nú
virðist óánægðum fjölga. „Á undan
förnum sólarhring hef ég tekið eftir
því að æ fleiri eru að átta sig á því
að þetta mun ekki ganga upp. Fólk
sem hefði annars ekki sent bréf um
vantraust er nú að gera það opin
berlega. Stemningin í flokknum er
að breytast,“ sagði Smith í gær.
Sjálf var May á meginlandinu í
gær til að ræða við leiðtoga aðildar
ríkja og sambandsins sjálfs um
samninginn. Óánægjan sem hefur
ríkt um samninginn stafar einna
helst af varúðarráðstöfun um landa
mæri Írlands og NorðurÍrlands.
Ráðstöfunin felur í sér að komist
aðilar ekki að samkomulagi um
hvernig hátta skuli tollamálum svo
hægt sé að fyrirbyggja sýnileg landa
mæri skuli NorðurÍrland áfram lúta
reglum tollabandalagsins. Það þykir
mörgum óásættanlegt.
Corbyn sagði að þessi reisa May
Corbyn ekki til í vantraust strax
Leiðtogi Verkamannaflokksins leggur ekki fram vantrauststillögu fyrr en hann getur verið viss um meiri-
hluta. Æ fleiri Íhaldsmenn snúast gegn Theresu May. Hún fór til Brussel í gær og ræddi við toppa ESB.
May fundaði með Jean-claude Juncker í gær. Sá vill ekki breyta samningnum en vill þó hjálpa May. NoRdicPhotoS/AFP
✿ Frammistaða May
í samningaviðræðum
atkvæðagreiðslu um hana.
May fundaði til dæmis með
Angelu Merkel, kanslara Þýska
lands, og JeanClaude Juncker,
forseta framkvæmdastjórnar ESB.
Bæði sögðu þau algjörlega út úr
myndinni að breyta samningnum.
Þau vildu þó hjálpa henni að
koma samningnum í gegnum
þingið.
Forsætisráðherrann
breski heldur svo til
Írlands í dag þar sem
hún fundar með Leo
Varadkar forsætisráð
herra. Sá sagði í dag að
hann ætlaði að koma því
á framfæri að samningn
um, varúðarráðstöfuninni
þar með talinni, yrði ekki
breytt. thorgnyr@frettabladid.is
væri tilgangslaus sóun á tíma og
almannafé. Samkvæmt Andreu
Leadsom, þingflokksformanni
Íhaldsflokksins, leitaðist May við að
fá það samþykkt að breska þingið
þyrfti að samþykkja virkjun var
úðarráðstöfunarinnar og svo árlega
n May náði vondum samningi en
annar hefði fengið jafnvondan
n May náði góðum
samningi
n Hlutlaus
n May náði
vondum
samningi,
annar leið-
togi hefði
náð betri
22%
styðja
51% andvígt
27%
hlutlaus
Úr könnun sem youGov birti í gær.
✿ stuðningur við
Brexit-samning May
48%
23%
24% 5%
1 2 . d e s e M B e r 2 0 1 8 M i Ð V i k U d a G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a Ð i Ð
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
6
-B
7
5
C
2
1
B
6
-B
6
2
0
2
1
B
6
-B
4
E
4
2
1
B
6
-B
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K