Fréttablaðið - 12.12.2018, Qupperneq 13
Hann getur leyft sér að halda
áfram þeirri þráhyggju að Ís-
lendingar eigi að veiða hvali
og því miður með dyggum
stuðningi sjávarútvegsráð-
herra. Það er tími til kominn
að stöðva þetta, öll skynsemi
mælir með því.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Nýr Dacia Logan
Hlaðinn staðalbúnaði m.a.: Bakkmyndavél, íslenskt leiðsögukerfi, 7” LED skjár, bakkskynjarar, hraðastillir (Cruise control),
Bluetooth handfrjáls símabúnaður, útvarp og geislaspilari með USB tengi fyrir MP3 spilara/iPod, 4 hátalarar, aðgerðahnappar
í stýri, sex aðgerða aksturstölva, útihitamælir, ræsivörn, loftkæling AC, leðurstýri, litaðar rúður, svart slitsterkt „Compass“
tauáklæði, niðurfellanleg aftursæti, hæðarstilling á ökumannssæti, ESC stöðugleikastýring, þokuljós að framan o.m.fl.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
1
3
5
8
D
a
c
ia
L
o
g
a
n
5
x
2
0
d
e
s
Fjölskyldubíll með rými
sem er einstakt.
2.750.000 kr.
www.dacia.is
Tilefni þess að ég skrifa þessa grein er að ég heimsótti fyrr-verandi heimalandið mitt,
Þýskaland, og hitti þar góða gamla
vini. Margoft var ég spurð um hvers
vegna það sé ennþá verið að veiða
hvali á Íslandi og hvort menn séu
nú ekki loksins að hætta þessu.
Mér vafðist stöðugt tunga um tönn
í þeirri tilraun að finna eitthvað til
að réttlæta hvalveiðar hér á landi.
Eftir ríkulega umhugsun er niður-
staða mín að hvalveiðar ættu að
heyra sögunni til og ekki sé hægt að
réttlæta þær lengur.
1. „Íslendingar hafa alltaf stundað
hvalveiðar og þetta er partur af
menningu okkar.“ Rangt! Aðrar
þjóðir veiddu hvali hér við
Íslandsstrendur lengi en Íslend-
ingar sjálfir fóru ekki að veiða
hvali fyrr en um miðja síðustu
öld.
2. „Við verðum að nýta auðlindir
okkar.“ En í hverju eru auðlindir
okkar fólgnar? Það er miklu meiri
ávinningur í því að skoða hvali en
að drepa þá. Hvalaskoðun er vin-
sæl hjá ferðamönnum og jafnvel
tilefni sumra til að koma hingað.
En að við séum að drepa hvali
setur ljótan stimpil á Ísland sem
ferðamannaland og skaðar ímynd
okkar út á við.
3. „Hvalveiðar skapa atvinnu.“ Að
vísu unnu um 150 manns við
þessa iðju en hvalaskoðun veitir
fleirum vinnu. Einungis á Reykja-
víkursvæðinu vinna hátt í 200
manns við hvalaskoðun. Svo leyfi
ég mér að fullyrða að vinnan við
að kynna land okkar og nátt-
úru sé margfalt skemmtilegri og
meira uppbyggjandi en að drepa
háþróuð dýr og búta þau í sundur.
Það þarf að rannsaka betur hversu
skaðlegar hvalveiðar eru fyrir
ferðaþjónustu. Allavega hef ég í
starfi mínu sem leiðsögumaður
heyrt margar neikvæðar raddir
um hvalveiðar.
4. „Það er allt í lagi að skjóta dýr,
þetta eru bara skepnur.“ Er það
svona einfalt? Í dýraverndunar-
lögum er hægt að lesa að dýr skuli
aflífa á skjótan og sem minnst
sársaukafullan hátt. En það er
vitað að hvalur sem fær skutul
í sig er að þjást og kveljast lengi
áður enn hann deyr. Og svo erum
við ekki einu sinni að tala um að
hvalir séu mjög háþróaðar líf-
verur. Í sumar komu fréttir um
að oft séu kálfafullar langreyðar-
kýr veiddar. Svo var talað um að
tvisvar sinnum hafa verið drepnir
svonefndir blendingar (afkvæmi
langreyðar og steypireyðar) og
það sé allt í lagi því einungis
steypireyðar eru alfriðaðar. En
um er að ræða mjög sjaldgæft
fyrirbæri sem ber að vernda.
5. „Hvalaafurðir eru eftirsóttar og
seljast vel.“ Ó, nei! Birgðirnar
af hvalkjöti hafa safnast fyrir í
frystihúsum því enginn mark-
aður er fyrir slíkt. Nema kannski í
Japan. En til að koma hvalkjötinu
þangað þarf að yfirstíga margar
hindranir, til dæmis hafa skipin
ekki fengið leyfi til að leggja að
landi í flestum höfnum. Reynt er
núna að sigla norðurleiðina til
Japans. Rökin um að nú væri hægt
að vinna fæðubótarefni úr hval-
kjöti sem ynni á móti blóðleysi
eru einnig frekar langsótt. Það
sama er hægt að vinna úr öðrum
og mun aðgengilegri hráefnum.
6. „Flestir Íslendingar eru fylgjandi
hvalveiðum.“ Rangt. Næstum jafn
margir eru fylgjandi og andvígir
eftir síðustu könnun. Því miður
er stórt hlutfall þeirra sem svara
könnunum, um 40%, ekki búnir
að mynda sér skoðun. En ef við
skoðum þróun síðustu ára þá
minnkar stöðugt hlutfall þeirra
sem vilja veiða hvali. Stuðningur
við hvalveiðar fer minnkandi sam-
kvæmt könnun sem Gallup gerði
fyrir IFAW, Alþjóða dýravelferðar-
sjóðinn, fyrir ári. Og er það gott.
Það er einn maður hér á landi sem
heldur hvalveiðum uppi og enginn
veit hversu miklu hann er að tapa
á því. Hann er því miður mold-
ríkur enda átti hann stóran hlut í
HB Granda, útgerðarfyrirtæki sem
mokar upp peningum. Hann getur
leyft sér að halda áfram þeirri þrá-
hyggju að Íslendingar eigi að veiða
hvali og því miður með dyggum
stuðningi sjávarútvegsráðherra. Það
er tími til kominn að stöðva þetta,
öll skynsemi mælir með því.
Hvers vegna hvalveiðar?
Úrsúla
Jünemann
kennari á eftir-
launum og leið-
sögumaður
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 1 2 . D e S e M B e R 2 0 1 8
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
6
-9
4
C
C
2
1
B
6
-9
3
9
0
2
1
B
6
-9
2
5
4
2
1
B
6
-9
1
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K