Fréttablaðið - 12.12.2018, Page 22
Bankasýsla ríkisins telur ólíklegt að unnt verði að selja eignarhlut rík-isins í Landsbankanum eða Íslandsbanka til erlends banka. Lítið
hafi verið um yfirtökur á bönkum
á milli Evrópulanda eftir fjármála-
hrunið. Hins vegar sé möguleiki á
því að stór norrænn banki sjái hag
sinn í því að gera íslenskan banka
að útibúi.
Eins og kunnugt er hefur starfs-
hópur sem var skipaður af fjármála-
og efnahagsráðherra í febrúar lokið
vinnu við hvítbók um framtíðarsýn
fyrir íslenskt fjármálakerfi. Starfs-
hópurinn komst að þeirri niður-
stöðu skynsamlegt væri að skrá
Landsbankann á markað og selja þá
eignarhluti ríkisins í bankanum sem
það hyggst láta frá sér í áföngum.
Einnig væri skynsamlegt að fara af
fullum krafti í að bjóða viðskipta-
bönkum í nágrannaríkjunum að
kaupa Íslandsbanka í heild.
Bankasýsla ríkisins skilaði
minnis blaði til starfshópsins þar
sem fram kemur að sala til erlends
viðskiptabanka sé ólíkleg og sú
skoðun hafi verið staðfest að mestu
leyti í reglulegum samskiptum við
alþjóðlega fjárfestingarbanka.
„Á undanförnum árum og í kjöl-
far fjármálakreppunnar hefur verið
afar lítið um samruna og yfirtökur á
bönkum á milli landa í Evrópu. Bitur
reynsla af fyrri yfirtökum, lág arð-
semi, flóknara regluverk og auknar
eiginfjárkröfur hafa átt sinn þátt í
því,“ segir í minnisblaðinu. „Bankar
eru að draga sig út úr fjárfestingum
fyrri ára og einbeita sér að kjarna-
rekstri á eigin heimamarkaði, en
ekki að frekari landvinningum.“
Bendir Bankasýslan á að stórir
bankar á Norðurlöndum eigi nú
þegar í lánaviðskiptum við stærstu
innlendu félögin á Íslandi og því
sé lítill hagur fyrir þá að taka yfir
bankastofnanir á Íslandi. Hins vegar
geti stór norrænn banki, sem styðst
við innramatsaðferð, haft fjárhags-
legan hag af því að kaupa íslenskan
banka og breyta honum í útibú.
Segir stofnunin að kanna beri
til hlítar hvort til staðar sé áhugi
erlendra viðskiptabanka. Líklega
verði hlutafé íslenska bankans
þá selt í einu lagi. Þá sé enn mikil-
vægara, ef selja á íslenskan banka til
erlends banka, að lækka sérstakar
álögur á fjármálafyrirtæki enda séu
útibú erlendra fjármálafyrirtækja
ekki undanþegin bankaskatti.
Útboð þurfi að vera stórt
Bankasýslan telur líklegast að fyrsta
sala ríkisins á eignarhlutum ríkis-
Aðkoma erlends banka sögð ólíkleg
Bankasýsla ríkisins telur fátt benda til þess að tilraun til að selja íslenskan banka til erlends banka muni bera árangur. Bankar leggi litla
áherslu á landvinninga eftir fjármálahrunið. Frumútboð þurfi að nema allt að 750 milljónum evra til að vekja athygli helstu fjárfesta.
Erlendir fjárfestar
furða sig á rekstrar
umhverfinu
Arion banki
var fenginn
til að skrifa
minnisblað
um lær-
dóminn af
söluferli bankans sem
lauk með skráningu á markað í
júní 2018. Þar kom fram að eitt af
því sem forsvarsmenn bankans
lærðu í viðræðum við erlenda
fagfjárfesta væri að þeir „þurfa
ekki að eiga Ísland“.
Skráningar íslenskra félaga
á markað væru ekki af þeirri
stærðargráðu að erlendir fag-
fjárfestar teldu sig þurfa að taka
þátt. „Íslenskur fjárfestingakostur
þarf að vera aðlaðandi í gæðum
og verði til að höfða til erlendra
fjárfesta,“ segir í minnisblaðinu.
Erlendir fjárfestar hafa að sögn
bankans mikla trú á íslensku
efnahagslífi en minni sann-
færingu fyrir því að stjórnvöld og
regluumhverfi hérlendis sé eins
og best verður á kosið. Skyndi-
leg hækkun á kerfisáhættu auka
og ákvörðun Seðlabankans um
bindiskyldu á erlent fjármagn
hafi einnig orkað tvímælis fyrir
fjárfesta.
Lög um kaupauka komu
erlendum fjárfestum á óvart og
þeir furðuðu sig á því að bankinn
skyldi vera í samkeppni um
íbúða lán við lífeyrissjóði sem
sættu ekki sömu kröfum um
eigið fé, útlánatap og skatt-
greiðslur.
Tengsl verðmætis banka og arðsemi
Markaðsvirði hlutafjár evrópskra banka sem margfeldi af undirliggjandi
bókfærðu virði eigin fjár og áætluð ávöxtun eigin fjár á árinu 2019.
2,0x
1,8x
1,6x
1,4x
1,2x
1,0x
0,8x
0,6x
0,4x
0,2x
0,0x
0% 2% 4% 6% 8% 10% 12% 14% 16%
Arion banki
Áætluð arðsemi ársins 2019
M
ar
ka
ðs
vi
rð
i m
.v.
in
nr
a
vi
rð
i
sjóðs í Íslandsbanka og Landsbank-
anum fari fram með frum útboði.
Útboðið þurfi að vera af þeirri
stærðargráðu að það útiloki ekki
hóp fjárfesta sem annars væru lík-
legir til þátttöku. Nefnir stofnunin í
því samhengi Arion banka og NIBC
en andvirði hvors útboðs var um
320 milljónir evra.
„Í báðum tilvikum mátti greina
fjarveru ákveðins hóps fjárfesta
sem hugsanlega má rekja til smæðar
útboðsins. Þannig var frumútboðið
sjálft eða markaðsvirði hlutabréfa
í viðkomandi banka eftir frum-
útboð, ekki nægjanlega hátt til að
telja hlutabréfin nokkurs konar
skyldueign þar sem það hefði ekki
svarað tilkostnaði fjárfesta að kynna
sér frumútboðið,“ segir í minnis-
blaðinu.
„Talið er að frumútboð af stærð-
inni 500 til 750 milljónir evra sé
nægjanlegt til að vekja athygli
helstu fjárfesta.“
Verðmæti háð arðsemi
Í hvítbókinni kemur fram að áætlað
markaðsvirði banka hafi gríðarleg
áhrif á verðmat hlutafjár þeirra.
Markaðsvirði hlutafjár banka með 6
prósenta arðsemi sé einungis 0,53x
af innra virði á meðan markaðsvirði
hlutafjár banka með 10 prósenta
arðsemi nemi 0,98x af innra virði.
„Þannig sést að hlutir í bönkum
með 6,5 prósenta áætlaða arðsemi,
þ.e. sömu og Arion banki í dag, ættu
að vera metnir á 0,59x. Hins vegar
voru hlutir í Arion banka metnir á
0,70x í lok nóvember 2018,“ segir í
hvítbókinni.
Hlutfall markaðsverðs og bók-
færðs verðs hjá Arion banka hefur
sveiflast á bilinu 70 til 80 prósent frá
því bankinn var skráður á markað.
Hlutfallið gefur vísbendingu um að
verðmæti Íslandsbanka og Lands-
bankans sé á bilinu 290-330 millj-
arðar króna að mati starfshópsins.
thorsteinn@frettabladid.is
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hélt tölu á kynningu hvítbókarinnar í fyrradag. FréttABlAðið/Sigtryggur Ari
Ný útgáfa af Arion appinu mun fara í loftið á næstu dögum og verður hún
öllum opin, ekki aðeins viðskipta-
vinum Arion banka. Framkvæmda-
stjóri hjá bankanum segir að um sé
að ræða nýja hugsun á íslenskum
bankamarkaði.
Þegar appinu hefur verið hlaðið
niður er til dæmis hægt að stofna
debetreikning og panta greiðslu-
kort, stofna reglulegan sparnað eða
taka svokallað Núlán þar sem kjör
og lánsupphæð byggja á lánshæfis-
mati hvers og eins. Einnig fylgir
aðild að Einkaklúbbnum sem er
stærsti fríðinda- og afsláttarklúbbur
landsins.
„Þetta er ný hugsun á íslenskum
bankamarkaði að okkar mati og
ákvörðunin um að opna dyr að
stafrænum lausnum bankans með
þessum hætti byggir ekki síst á
þeim góðu viðtökum sem rafræna
greiðslumatið vegna íbúðalána fékk
á sínum tíma,“ segir Iða Brá Bene-
diktsdóttir, framkvæmdastjóri við-
skiptabankasviðs Arion banka, en
40 prósent þeirra sem fara í gegnum
greiðslumatið á vef bankans eru við-
skiptavinir annarra banka.
„Við sáum það vel þegar við
kynntum stafræna greiðslumatið
til leiks að snjallar lausnir sem
auka þægindi, spara tíma og jafn-
vel peninga höfða til fleiri en okkar
viðskiptavina. Greiðslumatið var
þjónusta sem allir gátu nýtt sér.“
Iða Brá segir að með appinu geti
fólk valið þá þjónustu sem hentar
því best enda þurfi fólk ekki að vera
með öll viðskipti hjá einum banka.
Þá felist engin skuldbinding í því að
sækja appið.
„Við erum hvergi nærri hætt
og munum á nýju ári kynna fleiri
spennandi lausnir fyrir viðskipta-
vini okkar sem auðvelda þeim lífið
og gera þjónustuna okkar enn þægi-
legri,“ segir Iða Brá.
Nýtt bankaviðskiptaapp Arion banka opið öllum
Í kjölfar fjármála-
kreppunnar hefur
verið afar lítið um samruna
og yfirtökur á bönkum á
milli landa í Evrópu.
Íslenskur fjárfest-
ingakostur þarf að
vera aðlaðandi í gæðum og
verði til að höfða til erlendra
fjárfesta.
iða Brá Benediktsdóttir er fram-
kvæmdastjóri viðskiptasviðs Arion.
1 2 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r6 markaðurinn
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
6
-C
6
2
C
2
1
B
6
-C
4
F
0
2
1
B
6
-C
3
B
4
2
1
B
6
-C
2
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K