Fréttablaðið - 12.12.2018, Síða 28
Ingu Lilju
dreymir um
stórt jólaþorp en
þangað til lætur
hún smáþorpin í
krúttstjökunum
nægja. MyndIr/
Anton BrInk
Litlu þorpin má finna víða í íbúð Ingu Lilju, í kertastjökum og skálum. Þorpin vekja ávallt lukku, sérstaklega hjá yngstu kynslóðinni sem bíður spennt eftir að þorpin fari upp á aðventunni.
Ég er mikið jólabarn. Einum of mikið, segir maðurinn minn,“ segir Inga Lilja glettin en
bætir við að hún skreyti þó yfirleitt
hóflega. Hins vegar sé hún mjög
föst í hefðum og hugi snemma að
undirbúningi jólanna, baki mikið
og föndri. Hún á tvær stelpur,
tólf og átta ára. „Sú yngri er eins
og mamma sín, algert jólabarn.
Við sitjum á kvöldin og föndrum
saman og hún er sú sem byrjar
að skipuleggja með mér jólin í
nóvember.“
Um miðjan nóvember fara þær
mæðgur að velta fyrir sér skipu-
lagningu jólanna, draga fram
skrautið og ákveða hvað eigi að fara
upp þetta árið. Inga Lilja á mikið
safn af jólaskrauti sem hún hefur
bæði keypt sjálf eða áskotnast
héðan og þaðan. „Fyrir þessi jól var
ýmislegt sem fékk að vera áfram í
geymslu. Þegar maður er með lítið
pláss þarf maður að velja og hafna.“
Fyrir tveimur árum fékk Inga
Lilja hugmynd að nýrri skreytingu,
en það var að setja smáþorp í
kertastjaka og luktir. „Ég hjálpa
pabba mínum á hverju ári en hann
er með stórt og mikið jólaþorp.
Mig langaði að hafa einhvers
konar jólaþorp heima hjá mér en
plássleysi kom í veg fyrir slíkt. Þá
datt mér í hug hvort ég gæti ekki
krúttstjakarnir kæta
Flest húsanna
eru úr rúmfata-
lagernum en
snjórinn er úr
Byko en Inga
segir hann lang-
bestan.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Ingu Lilju Jónsdóttur langaði í stórt
jólaþorp líkt og er að finna á heimili
föður hennar. Vegna plássleysis
ákvað hún að búa til nokkur smáþorp
í stórum kertastjökum í staðinn.
sett upp lítil þorp hér og þar á
heimilinu. Ég fór á netið og leitaði
að hugmyndum og fann þá hug-
mynd að fylla alla stjaka og luktir
heimilisins af húsum og fólki. Þetta
kemur mjög skemmtilega út og
börnin eru farin að bíða eftir því
strax í nóvember að við setjum
þorpin upp, en dóttir mín kallar
þetta krúttstjaka.“
Stjakana keypti Inga Lilja í
Costco og þá notar hún allan ársins
hring undir kerti. Svo fá þeir annað
hlutverk á aðventunni. Húsin og
fólkið hefur hún keypt í Rúmfata-
lagernum en snjóinn í BYKO.
„Ég er alltaf að safna að mér
fleiri húsum með það fyrir augum
að geta verið með stórt jólaþorp
þegar ég flyt í stærra húsnæði.“
Inga Lilja heldur mjög í hefðir
og ein skemmtileg hefð er að setja
upp lifandi jólatré um miðjan
desember sem fjölskyldan fer sjálf
að saga niður. „Við förum með
vinnu mannsins míns og sögum
niður jólatré í Brynjudal í Hval-
firði. Þetta er yndisleg stund þar
sem við veljum tré, drekkum kakó
og tölum við jólasveina.“
20% AFSLÁTTUR
AF YFIRHÖFNUM
Í JÓLAPAKKANN
HENNAR
4 kynnInGArBLAÐ FÓLk 1 2 . d e s e M B e r 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
6
-9
9
B
C
2
1
B
6
-9
8
8
0
2
1
B
6
-9
7
4
4
2
1
B
6
-9
6
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K