Fréttablaðið - 12.12.2018, Qupperneq 30
Black notar í handritsskrifum.
Þetta eru allt svona frekar ill
kvittnar myndir, þó að þær séu
líka húmorískar og þær gerast í
hrjúfum heimi. Jólin eru mjög
góð andstæða við allan kvikindis
skapinn.“
Getur horft á Jimmy Stewart
endalaust
„Ætli Die Hard sé ekki orðin klass
ísk asta jólamyndin, ásamt Christ
mas Vacation og Home Alone. En
það er ein sem hittir alltaf
í hjartastað, það er It’s
a Wonderful Life.
Ég myndi segja að
það sé svona allra
besta og fallegasta
jólamyndin,“
segir Hugleikur.
„Það er svo fal
legur boðskapur
og það er hægt
að horfa á Jimmy
Stewart endalaust,
hann er kóngur
„feelgood“ myndanna.
Ég set hana yfirleitt í gang á
aðfangadag og hef hana í gangi á
meðan ég tek til og svona.“
Skaðbrenndir skósveinar
jólasveinsins
„Svo eru það hryllingsmyndirnar.
Gremlins verður oft fyrir valinu á
jólunum, Black Christmas frá 1974
er frábær „slasher“ mynd og Rare
Exports, finnska jólasveinamyndin
þar sem jólasveinninn er vondur,
er mjög skemmtileg,“ segir Hug
leikur. „Svo sá ég eina athyglisverða
hollenska mynd sem heitir Sint og
fjallar um hollenska jólasveininn.
Hann lítur út eins og biskup,
ferðast um á hesti og er með fullt af
gullhringjum, því hann er byggður
á einhverjum kaupmanni sem
gaf gjafir. En það vandræðalega
við hollenska jólasveininn er að
í staðinn fyrir álfa er hann með
heilan her af fólki með „blackface“,
sem er alveg stórfurðulegt.
Það er afsakað með því að segja
að þeir séu svona svartir í framan
því þeir fara niður strompinn og
eitthvað svoleiðis, en það útskýrir
ekki krullaða hárið. Þetta er bara
gífurlega vandræðalegt og þessum
sið er mótmælt á hverju ári, en fólk
vill halda í siðina,“ segir Hugleikur.
„Í þessari mynd eru þeir reyndar
skaðbrenndir í framan í stað þess
að vera með blackface, sem er ein
hvern veginn minna hryllilegt.“
Setur jólin í vinnuna
„Ég set jólin alltaf í vinnuna mína.
Ég fer í gang í desember og byrja
að birta jólabrandara á netinu
daglega,“ segir Hugleikur. „Ég reyni
líka alltaf að gera einhvers konar
jóladagatal. Svo var ég að hanna
nýjar jólapeysur sem voru að detta
inn á síðuna mína, dagsson.com.
Ég var líka að gefa út
dagatal fyrir árið 2019
og er að gefa út ritsafnið 666
jokes á ensku.
Svo gef ég líka alltaf út bækur á
síðustu stundu fyrir jól, útgefend
um mínum til mikillar gremju,“
segir Hugleikur. „Fyrir þessi jól gaf
ég út bók sem heitir „Put your little
hand in mine“, sem fjallar um aðra
vetrarhátíð, groundhog day (dag
múrmeldýrsins).
Ég gerði söguna í samstarfi við
Listahátíð í tilefni af komu Bill
Murray til landsins. Ég gerði endur
gerð af kvikmyndinni Groundhog
Day í spýtukallaformi. Þetta er línu
leg saga í lengra formi en ég skrifa
venjulega. Það er allavega upphaf
og endir á henni. Ég veit ekki hvort
það sé miðja. Hún er mjög kaotísk
og klikkuð og einmitt skrifuð þann
ig, algjörlega óskipulögð og ég vissi
sjaldnast hvað myndi gerast í næsta
ramma á meðan ég var að teikna
rammann á undan. Það kom mér
mikið á óvart hvert sagan fór, því ég
lét hana bara ráða,“ segir Hugleikur.
„Þetta eru samtals 900 rammar og
ég teiknaði þá alla á eitt blað sem
er 150x150 cm. Ég var búinn að
reikna út að ég kæmi 900 römmum
á blaðið og svo fyllti ég bara út
í þessa ramma. Það er hægt að
skoða verkið í Bíó Paradís og bókin
kom út 10. desember.“
Fyrir jólin reynir rithöfundurinn, grínistinn og jólabarnið Hugleikur Dagsson að horfa á
eins mikið af jólamyndum og hann
getur. Uppáhaldsjólamyndirnar
eru ekki mjög hefðbundnar, en
hann hefur gaman af fjölbreyttum
jólamyndum, allt frá blóðugum
hryllingsjólamyndum frá 8. ára
tugnum til rómantískra gaman
mynda frá fyrsta áratug 21. aldar,
ásamt öllum klassísku jólamynd
unum sem flestir þekkja. Jólin hafa
yfirleitt mikil áhrif á vinnu hans
því hann gefur venjulega út jóla
brandara og bók fyrir hver jól.
Óvenjulegur
topp þrjú listi
„Mín uppáhaldsjólamynd er
Batman Returns eftir Tim Bur
ton. Hún er líka uppáhalds Tim
Burton myndin mín. Ég get vitnað
endalaust í hana,“ segir Hugleikur.
„Þetta er gífurlega tragísk mynd
og eins og í öllum góðum Batman
myndum stela vondu
karlarnir senunni.
Það er erfitt að gera upp á milli
Mörgæsarmannsins og Kattakon
unnar, en það er ekki hægt annað
en að verða heillaður af frammi
stöðu Michelle Pfeiffer í hlutverki
Kattakonunnar. Þetta er hennar
besta hlutverk.
Ég er jólabarn, þannig að í
desember reyni ég að skella eins
mörgum jólamyndum í tækið og
ég get. Ég horfi alltaf á Batman
Returns, en svo er ein svona pínu
spari, sem er Eyes Wide Shut,“ segir
Hugleikur. „Hún fjallar í rauninni
um það sem gerist ef Tom Cruise
er með brundfyllisgremju um
jólin. Það gengur ekkert upp hjá
honum í þessari mynd og það er
eitthvað fallegt við það. Ég hef séð
hana nokkrum sinnum og ég get
ekki enn sagt hvað þessi mynd er
að segja manni, en hún gerist um
jólin og það er flott jólastemning
og jólaljós í henni.
Þessar tvær eru á topp þrjú
listanum mínum yfir jólamyndir,
ásamt Just Friends, sem myndi
vera hefðbundnasta jólamyndin.
Ég held að hún rati yfirleitt fyrst í
tækið, en ég er að reyna að spara
hana svo ég hætti ekki að
hafa gaman af henni.
Hún er með Ryan
Reynolds og fer í
alveg rosalegar
formúluáttir
og ég þarf
alltaf að
réttlæta
það að ég
fíli þessa
mynd,“
segir
Hugleikur.
„En hún er
drullufyndin
og sannfærði
mig um að
Ryan Reynolds sé
framúrskarandi gaman
leikari. Þess vegna var ég ánægður
þegar hann var fenginn til að leika
Deadpool. Hann er fullkominn í
það.“
Jól og kvikindisskapur
„Shane Black er uppáhaldsjóla
myndahöfundurinn minn. Hann
skrifaði Lethal Weapon, The Long
Kiss Goodnight og The Last Boy
Scout og leikstýrði og skrifaði Kiss
Kiss Bang Bang, Nice Guys og Iron
Man 3. Þessar myndir eiga það
allar sameiginlegt að jólin koma
fyrir í þeim,“ segir Hugleikur.
„Þetta er nánast hækja sem Shane
Batman bestur á jólunum
Hugleikur Dagsson er mikill áhugamaður um kvikmyndir og horfir á margar jólamyndir um hver jól.
Hann á óvenjulegar uppáhaldsmyndir en kann að meta óhefðbundnar og sívinsælar jólabíómyndir.
Hugleikur Dags-
son er jólabarn
og hann undir-
býr sig fyrir
jólin með
því að gefa
út nýtt efni
og horfa á
eins margar
jólamyndir
og hann
getur.
Kattakonan og Mörgæsarmaðurinn stela senunni í Batman Returns, uppáhaldsjólamynd Hugleiks. NORDICPHOTOS/GETTY
Hugleikur setur
Eyes Wide Shut
eftir Stanley
Kubrick í annað
sæti yfir uppá-
haldsjólamynd-
irnar sínar. NOR-
DICPHOTOS/GETTY
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
“Fyndnasta sýningin
á höfuðborgarsvæðinu”
SH Morgunblaðið
Jólagjön fyrir unga fólkið
Gjafamiðar
fást í Hagkaup og
Gaaraleikhúsinu
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
6
-9
E
A
C
2
1
B
6
-9
D
7
0
2
1
B
6
-9
C
3
4
2
1
B
6
-9
A
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K