Fréttablaðið - 12.12.2018, Síða 33

Fréttablaðið - 12.12.2018, Síða 33
er búið að vera með okkur frá fyrsta degi.“ Stefán: „Við höfum alltaf haft það að leiðarljósi að skammtarnir séu frekar stórir og vínið ekki dýrt. Hér er hægt að njóta mikils fyrir sann- gjarnt verð. Gott starfsfólk er lykill- inn, við leggjum okkur fram við að halda uppi góðum starfsanda og það skilar sér.“ Sigurgísli: „Skemmtileg blanda af fólki sækir Snaps; hérna kemur saman fólk sem kann að meta góðan mat og þjónustu burt séð frá starfsstétt eða aldri. Út frá sjónar- hóli reksturs, þá virkar hann vegna stærðarhagkvæmni. Snaps er þéttur og lítill. Við bjóðum gestum Hótels Óðinsvéa morgunmat, fólk kemur í hádegismat og kvöldmat. Um helgar mætir fólk í árdegisverð. Fyrsta árið var lítið um að vera í hádeginu um helgar hjá okkur en þá fórum við Stebbi til New York til að kynna okkur betur „brunch-staði“ og við vorum með þeim fyrstu á Íslandi til að bjóða upp á „à la carte brunch“.“ Stefán: „Við vildum ekki tilbúna „brunch“ diska heldur getur fólk pantað af matseðli og sett saman sinn eigin brunch.“ Jólin eru stór Nú eru jólin á næsta leiti. Eru þau stór hjá ykkur? Sigurgísli: „Jólin eru mjög stór hjá okkur. Stærstu mánuðirnir eru júní, júlí, ágúst og desember.“ Stefán: „Við lærðum báðir í Dan- mörku. Ég elska smurbrauðsstaði og danskan jólamat. Snaps sækir í þær hefðir og við bjóðum upp á danskan „julefrokost“ sem borinn er beint á borðið. Vert er að nefna að Snaps rekur einnig smurbrauðsgerð- ina Brauðbæ. Sú starfsemi fylgdi með leigusamningnum við Hótel Óðinsvé og hefur verið starfrækt þar í yfir 50 ár. Sigurgísli segir að alla jafna séu Íslendingar 70-80 prósent við- skiptavina Snaps og um 20-30 pró- sent ferðamenn. Nema á sumrin, þá sé um helmingur gesta Íslendingar, enda Íslendingar í sumarfríi með fjölskyldunni. Birgir Bieltvedt og eiginkona hans Eygló Björk Kjartansdóttir fjárfestu í 60 prósenta hlut í Snaps á móti Sig- urgísla og Stefáni árið 2016. Eignar- hlutirnir voru sameinaðir undir eignarhaldsfélaginu Jubileum sem á í dag Snaps og Café Paris. Birgir fjárfesti meðal annars í Domino’s á Íslandi skömmu eftir fjármálahrun- ið og seldi til Domino’s í Bretlandi, opnaði Joe & The Juice hérlendis, Brauð & Co og fjárfesti í Gló. Hvernig kom samstarfið við Birgi Bieltvedt til? „Birgir nálgaðist okkur árið 2016. Hann var nýlega búinn að kaupa Jómfrúna ásamt Jakobi Jakobssyni og vildi fara í frekari fjárfestingar og ná fram samlegðaráhrifum. Okkar samstarf hefur verið gott, við keyptum saman Cafe Paris árið 2016 og endurnýjum staðinn mikið árið 2017. Eignarhaldið hefur breyst síðan og við erum í dag með rekstur Snaps og Cafe Paris með Birgi.“ Fjárfestu ríkulega í Cafe París Það má lesa í ársreikningi Cafe Paris að þið ráðist í umbætur sem kosta um 150 milljónir króna? Sigurgísli: „Já. Það var fjárfest ríkulega í Cafe Paris. Tímasetningin reyndist ekki sú heppilegasta. Það var mikið framboð af góðum veit- ingastöðum og ferðamenn, sem veitingastaðurinn byggir mikið á, drógu úr neyslu sinni um 30 prósent þegar krónan styrktist. Það gerði reksturinn mjög þungan fyrsta árið.“ Nú hefur gengi krónu veikst að undanförnu. Sigurgísli: „Gengisþróun krónu er tvíeggjað sverð. Við njótum góðs af veikingu krónu því hún fer beint í vasa erlendra ferðamanna. En að sama skapi hækka aðföng. Þau eru mikið til innflutt og ef þau eru ekki innflutt krefjast þau í mörgum til- fellum innflutts fóðurs eða áburðar.“ Stefán: „Og þegar laun lands- manna hækka – en þau hafa hækkað mikið frá því við hófum rekstur – hækka launin hjá okkur og birgjum okkar. Í kjölfarið fáum við oft bréf frá birgjum sem þurfa að hækka verð til að mæta hækkun launa. Það þýðir að launakostnaður okkar hefur hækkað og vörurnar sem við kaupum.“ Hvorki með starfsmannastjóra né markaðsstjóra Sigurgísli: „Það er oft lítill sem enginn aukakostnaður hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Hjá okkur starfar til dæmis hvorki starfs- mannastjóri né markaðsstjóri. Við erum engu að síður með um 130 manns á launaskrá hjá Snaps og Cafe Paris og upp undir 60 í fullu starfi. Aðrir eru í hlutastarfi. Hér erum við og fólkið okkar á tveimur jafnfljótum sem erum að sinna gestum og elda mat. Við erum með gríðarlega flottan hóp af reynslumiklu fólki með okkur, sem er tilbúið að leggja mikið á sig til að láta reksturinn ganga sem best og veita viðskiptavinum okkar sem besta upplifun. Það hefur alltaf verið stefnan að leyfa öllum að njóta góðs af þegar vel gengur. Okkur hefur gengið vel með Snaps en rekstrarumhverfið er gríðarlega erfitt. Það er lítið sem ekkert svig- rúm sem stendur. Nú styttist í kjara- samninga og launahækkanir. Maður er óneitanlega uggandi. Maður hefur skilning á því að lágmarkslaun þurfi að hækka, í okkar tilfelli eru flestir starfsmenn á betri samningum en kjarasamningar kveða á um.“ Stefán: „Það má heldur ekki líta fram hjá því að atvinnurekendur greiða háar fjárhæðir í launatengd gjöld sem starfsmenn sjá svo ekki í umslaginu, eins og tryggingargjald og mótframlag í lífeyrissjóð. Launa- hækkanir rífa því meira í en sem nemur hækkun í vasa launamanna. Við bætist að húsaleigan er víða orðin mjög há. Reksturinn ber ekki jafn háa leigu og margir krefjast í miðborginni.“ Mun veitingastöðum fækka? Sigurgísli: „Sú þróun er þegar hafin. Nema hvað nýir veitingastað- ir hafa að undanförnu oft sprottið upp í sömu rýmum. Margir eru því áfram áhugasamir um þennan rekstur. Það er mikið framboð af veitinga- húsum. Það er búið að opna marga veitingastaði á síðastliðnum árum. Hótelsprengingin hefur samhliða leitt til mikillar fjölgunar veitinga- staða. Hótelin verða að halda úti ákveðinni þjónustu, sum þeirra sætta sig við að reka veitingahús með tapi því þau fá sína innkomu af útleigu herbergja en það klípur af heildarmarkaðnum og grefur undan rekstri annarra veitingahúsa.“ Markaðurinn í hádeginu orðinn brenglaður Samkeppnin í miðbænum er nú með þeim hætti að hægt er að fara á fína veitingastaði í hádeginu og fá tvo rétti á verði eins með tilboðum frá símafyrirtækjum. Stefán: „Markaðurinn í hádeginu er orðinn ansi brenglaður. Hægt er að borða fisk dagsins á Cafe Paris eða á Snaps með fullri þjónustu og borga minna en á skyndibitastað. Sigurgísli: „Það er harðnandi sam- keppni um allan heim í veitinga- rekstri. Allir eru að hagræða. Það sem mun gerast núna er að stærri einingar eins og til dæmis Cafe Paris munu í auknum mæli leggja áherslu á minni þjónustu en á sama tíma reyna að halda verði niðri og gæðum í hámarki. Við erum nú þegar farnir að huga að slíkum breytingum á Cafe Paris og munum við fara í þær á næstu dögum.“ Snaps velti 591 milljón króna í fyrra og var rekinn með átta millj- óna króna hagnaði. Árið áður nam hagnaðurinn 37 milljónum króna. Cafe Paris velti 351 milljón í fyrra en tapaði 169 milljónum króna. Það ár var fjárfest myndarlega í rekstr- inum, eins og fram hefur komið. Árið verður gott hjá Snaps Hvernig verður árið í ár hjá Snaps og Cafe Paris? Sigurgísli: „Árið verður gott á Snaps, betra en í fyrra, og það er ekki sjálfgefið. Við upphaf árs náðum við góðum tökum á rekstrinum og náðum að heimfæra lærdóm sem við höfum dregið af aðkomu okkar að öðrum veitingastöðum upp á hann. Rekstur Cafe Paris hefur verið þungur í ár. Það var mikill viðsnún- ingur á árinu en það þyngdi róðurinn að fá slæmt veður síðastliðið sumar.“ Stefán: „Á veitingastöðum eins og Cafe Paris kemur plúsinn inn á sumrin. Það þarf að að vera hægt að taka á sig miklar sveiflur í rekstr- inum.“ Kostar allt að 200 milljónir að opna stóran stað Það eru ekki allar ferðir til fjár. Þið fjárfestuð í Jamie’s Italian sem varð gjaldþrota í haust skömmu eftir að þið selduð ykkar hlut. Jubileum átti 60 prósenta hlut á tímabili. Hvað getið þið sagt um það? Sigurgísli: „ Við fórum í samstarf með góðu fólki og hugmyndin var skemmtileg, starfsfólkið gott og staðurinn fallegur. Jamie’s var dýr fjárfesting, það kostar 150-200 millj- ónir króna að opna svona stóran veitingastað. Við drógum okkur út úr Jamie’s síðastliðið sumar með það fyrir augum að staðurinn fengi að vaxa og dafna með nýjum fjárfestum. Það að draga okkur út úr Jamie’s er hluti af þeirri einföldun sem við höfum verið í.“ Þið fóruð einmitt úr rekstri Jóm- frúarinnar? „Já. Hugmyndin var að það myndi skapast samlegð með því að reka nokkra veitingastaði undir sama hatti. Þegar á hólminn var komið reyndist hún ekki vera til staðar. Það var því sameiginleg ákvörðun að það væri einfaldast og farsælast að skipta rekstrinum upp. Við Stefán stöndum því að rekstri Snaps og Cafe Paris ásamt Birgi.“ Hafið þið einhvern tímann séð eftir að hafa ekki bara haldið ykkur við rekstur Snaps í stað þess að fara í aðrar fjárfestingar? Stefán: „Það þýðir ekkert að sjá eftir neinu. Það mikilvægasta er að hafa gaman af því sem að við erum að gera.“ Sigurgísli: „Við erum leitandi og lif- andi og hefðum alltaf farið í einhver verkefni. Síðastliðin ár hafa verið góður skóli.“ Árið verður gott á Snaps, betra en í fyrra, og það er ekki sjálf- gefið. Við upphaf árs náðum við góðum tökum á rekstr- inum og náðum að heimfæra lærdóm sem við höfum dregið af aðkomu okkar að öðrum veitingastöðum upp á hann. Sigurgísli Fyrsta árið var strembið. Við gátum iðulega ekki greitt okkur laun fyrstu sex til átta mánuðina. Ég spurði Sigur- gísla oft eftir að við borg- uðum launin hvað væri mikið eftir. Sigurgísli sagði þá fimm þúsund krónur! Og við önduðum léttar því að við gátum greitt starfsfólkinu laun á réttum tíma. Stefán Rigningarsumar þyngdi róðurinn í rekstri Café Paris. Lögð verður áhersla á minni þjónustu til að halda verði niðri og gæðum í hámarki. Mynd/CaFé PaRiS markaðurinn 9M I Ð V I K U D A G U R 1 2 . D e s e M b e R 2 0 1 8 1 2 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B 6 -C 1 3 C 2 1 B 6 -C 0 0 0 2 1 B 6 -B E C 4 2 1 B 6 -B D 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.