Fréttablaðið - 12.12.2018, Qupperneq 34
Bresk stjórnvöld stefna að því að rúmlega fjórfalda innflutning á raforku í gegnum sæstrengi á næstu sex árum þannig að raforka
í gegnum slíka strengi muni anna
meira en fimmtungi af raforkuþörf
landsins um miðjan næsta áratug.
Stóraukin áhersla á nýtingu endur-
nýjanlegrar orku og tiltölulega hátt
orkuverð skýrir meðal annars auk-
inn áhuga Breta á sæstrengjum.
Samanlögð flutningsgeta þeirra
raforkustrengja sem liggja nú frá
Bretlandi nemur um fjórum gíga-
vöttum en áætlanir breskra yfir-
valda gera ráð fyrir að á árinu 2024
muni sæstrengir frá landinu geta
afkastað allt að átján gígavöttum af
raforku.
National Grid, breskt ríkisfyrir-
tæki sem sér um dreifingu á raforku í
Bretlandi, vinnur um þessar mundir
að lagningu á fjórum strengjum en
tillögur hafa verið lagðar fram um
lagningu á allt að ellefu strengjum
frá landinu.
John Pettigrew, forstjóri National
Grid, segir í samtali við breska blað-
ið The Guardian að miklar breyting-
ar séu að verða í orkumálum Breta.
„Sæstrengir eru að verða mikilvæg-
ari,“ nefnir hann.
Fastlega er búist við því að nýr
sæstrengur, NemoLink, á milli
Bretlands og Belgíu, verði tekinn í
notkun snemma á næsta ári. Streng-
urinn, sem er 600 milljóna punda
virði, er sá fyrsti sem lagður er frá
Bretlandi til meginlands Evrópu
frá árinu 2011 og jafnframt fyrsti
strengurinn sem tengist Belgíu, að
því er fram kemur í fréttaskýringu
The Guardian.
Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir því
að Bretar, fremur en Belgar, verði
aðalkaupendur raforku í gegnum
sæstrenginn gæti strengurinn nýst
Belgum vel fyrstu mánuðina. Ástæð-
an er sú að slökkt hefur verið á sex af
sjö kjarnorkuverum Belga þennan
veturinn vegna viðgerða og öryggis-
prófana. Gætu Belgar því þurft á raf-
orku frá Bretlandi að halda þegar
Nemo-strengurinn kemst í gagnið.
Greg Clark, viðskiptaráðherra
Bretlands, hefur fagnað framtakinu
og sagt það til marks um nána sam-
vinnu Evrópuríkja yfir landamæri.
Mikilvægt umhverfismál
Fjórir sæstrengir liggja frá Bretlandi.
Einn til Frakklands, annar til Hol-
lands, þriðji til Írlands og sá fjórði
til Norður-Írlands. Er hugmyndin
að baki fyrstnefndu strengjunum
tveimur fyrst og fremst að flytja inn
orku til Bretlands.
Slíkir raforkustrengir eru taldir
afar mikilvægir til þess að bæta
nýtingu á endurnýjanlegum orku-
gjöfum, en eftirspurn eftir slíkum
orkugjöfum fer hratt vaxandi um
þessar mundir, og jafna sveiflur í
orkuframleiðslunni.
„Það munu koma tímabil í fram-
tíðinni þar sem það verður umfram
endurnýjanleg orka, of mikill vindur
eða of mikil sól,“ segir Pettigrew.
Þess vegna sé flutningur á raforku
um Evrópu góð leið til þess að stuðla
að minni losun gróð ur húsa loft teg-
unda.
Pettigrew nefnir einnig að
sæstrengir auki raforkuöryggi og
bendir því til stuðnings á hve mikil-
vægu hlutverki þeir hafi gegnt síð-
asta vetur þegar mikið kuldakast
gekk yfir Bretlandseyjar. National
Grid áætlar að sæstrengurinn til
Belgíu muni spara breskum neyt-
endum um 80 til 100 milljónir
punda á ári.
Allir róa í sömu átt
Nemo-strengurinn er einn af fjórum
sæstrengjum sem National Grid
vinnur nú að því að leggja en Bretar
hafa meðal annars í hyggju að flytja
inn vatnsorku frá Noregi í gegnum
NSN Link-strenginn og vindorku
frá Danmörku í gegnum Viking
Link-strenginn. Verður síðastnefndi
sæstrengurinn sá lengsti í heimi, eða
um 760 kílómetrar.
Annað fyrirtæki er jafnframt
að ljúka við lagningu á raforku-
streng frá Bretlandi til Frakklands í
gegnum Ermarsundsgöngin, að því
er segir í frétt The Guardian, og er
gert ráð fyrir að strengurinn verði
tekinn í notkun árið 2020. Einnig
hafa verið viðraðar hugmyndir um
lagningu sæstrengs til Þýskalands og
Íslands, eins og kunnugt er.
Sæstrengir Bretlands anna nú um
sex prósentum af raforkuþörf Breta
en áætlanir miða við að hlutfallið
verði 22 prósent árið 2025.
Áform Breta um stórfjölgun
sæstrengja eru liður í því að auka
aðgengi að endurnýjanlegri orku
þannig að hlutur slíkrar orku í orku-
notkun landsins verði í samræmi
við lögbundin markmið Evrópu-
sambandsins. Önnur Evrópuríki
hafa jafnframt sagst stefna að hinu
sama.
Emmanuel Macron, forseti Frakk-
lands, nefndi til að mynda í byrjun
mánaðarins að Frakkar hygðust
loka 14 af 58 kjarnorkuverum sínum
fyrir árið 2035 og leggja þess í stað
aukna áherslu á sæstrengi og endur-
nýjanlega orkugjafa. Um leið væri
gert ráð fyrir því að hlutur kjarn-
orku af orkunotkun landsins færi
úr 75 prósentum í 50 prósent.
kristinningi@frettabladid.is
Allt að ellefu strengir á teikniborðinu
Áætlanir Breta gera ráð fyrir að sæstrengir frá landinu muni afkasta allt að átján gígavöttum af raforku um miðjan næsta áratug borið
saman við fjögur gígavött nú. Forstjóri National Grid segir mikilvægi slíkra strengja aukast hratt. Þeir spari neytendum háar fjárhæðir.
Bresk stjórnvöld standa frammi fyrir vandasömum áskorunum í orkumálum en þau hafa meðal annars skuldbundið
sig til þess að auka hlut endurnýjanlegrar orku í orkunotkun í 20 prósent á næstu árum. Nordicphotos/Getty
Sæstrengur til Íslands
„tæknileg áskorun“
John Pettigrew, forstjóri Nat
ional Grid, segir í samtali við The
Guardian að lagning sæstrengs
á milli Íslands og Bretlands,
eins og hugmyndir hafa verið
uppi um, feli í sér „raunveru
lega tæknilega áskorun“. Íslensk
orkufyrirtæki sem breska blaðið
ræddi við segja ólíklegt, eins og
sakir standa, að ráðist verði í
slíka framkvæmd.
Íslensk stjórnvöld og Lands
virkjun hafa um nokkurt skeið
haft það til skoðunar að tengja
íslenska raforkukerfið við það
evrópska með lagningu sæ
strengs til Bretlands. Rætt var við
bresk stjórnvöld um verkefnið,
sem ber vinnuheitið IceLink, á
árunum 2015 og 2016 og lýstu
fulltrúar beggja ríkja áhuga
sínum á lagningu slík strengs.
Mörgum spurningum er þó enn
ósvarað, meðal annars um fjár
mögnun strengsins.
Kostnaðar og ábatagreining
Kviku banka og ráðgjafarfyrir
tækisins Pöyry frá árinu 2016
leiddi í ljós að þjóðhagsleg
arðsemi Íslands og Bretlands af
lagningu raforkustrengs myndi
samtals nema meira en 50
milljörðum króna á hverju ári.
Helsta forsenda niðurstöðunnar
var sú að bresk stjórnvöld væru
reiðubúin að veita slíku verkefni
umtalsverðan fjárhagslegan
stuðning.
Karsten Dybvad, sem hefur stýrt
samtökum danskra atvinnurek-
enda undanfarin átta ár, var kosinn
stjórnarformaður Danske Bank á
hluthafafundi bankans í síðustu
viku. Hans fyrsta verk verður að ráða
nýjan bankastjóra eftir að Thomas
Borgen lét af störfum í skugga pen-
ingaþvættishneykslisins sem bank-
inn er flæktur í.
Dybvad naut í kosningunni stuðn-
ings Mærsk-fjölskyldunnar, sem
er stærsti hluthafi Danske Bank, í
gegnum félagið AP Møller Holding,
með ríflega fimmtungshlut.
„Það hafa verið gerð mistök á
mörgum sviðum innan bankans,“
sagði Ole Andersen, sem gegnt hefur
stjórnarformennsku í bankanum
frá árinu 2011, á hluthafafundinum
sem fram fór síðasta föstudag. „Í
ljósi alvarleika stöðunnar tel ég rétt
að þetta máli hafi afleiðingar fyrir
stjórnina og sérstaklega stjórnarfor-
manninn,“ bætti hann við.
Danske Bank viðurkenndi í sept-
ember að jafnvirði 200 milljarða evra
hefði farið í gegnum útibú bankans í
Eistlandi á árunum 2007 til 2015 og
að „stór hluti“ þar af væri grunsam-
legar færslur. Komu fjármunirnir frá
Rússlandi og öðrum fyrrverandi Sov-
étríkjum. Er um að ræða eitt stærsta
peningaþvættismál sögunnar.
Í kjölfar þess að málið komst upp
í haust sagði Thomas Borgen upp
störfum sem bankastjóri og þá var
Andersen beðinn um að stíga til
hliðar sem stjórnarformaður í síð-
asta mánuði.
„Sem hluthafi viljum við að
bankinn taki sig taki og varpi ljósi
á fyrirtækjamenningu sína, ferlana
og kerfin,“ sagði Robert Uggla, for-
stjóri AP Møller Holding.
Danskir fjölmiðlar hafa nefnt
Lars Rohde, seðlabankastjóra
landsins, sem líklegan arftaka
Borgens í stól bankastjóra Danske
Bank. – kij
Tekur við stjórnarformennsku í Danske Bank
Karsten dybvad, nýr stjórnarformaður danske Bank. Nordicphotos/Getty
Bandaríski vogunarsjóðurinn Elliott
Management, sem átti meðal ann-
ars kröfur á föllnu íslensku bankana,
hefur bætt við hlut sinn í lyfja- og
efnarisanum Bayer. Er talið líklegt
að sjóðurinn muni beita sér fyrir því
að samstæðan selji frá sér eignir og
jafnvel að henni verði skipt upp.
Ekki er vitað hve stór eignar-
hlutur Elliott í Bayer er, að því er
fram kemur í frétt Financial Times,
en talið er að hann sé undir þremur
prósentum.
Vogunarsjóðurinn, sem stýrir um
35 milljörðum dala, er þekktur fyrir
að kalla eftir verulegum breytingum
í rekstri þeirra fyrirtækja sem hann
fjárfestir í.
Hlutabréf í lyfja- og efnasamstæð-
unni hafa fallið um þriðjung í verði
eftir að dótturfélag þess, bandaríska
efnaframleiðslufélagið Monsanto,
var dæmt til að greiða dauðvona
krabbameinssjúklingi 289 milljónir
dala í bætur í ágúst síðastliðnum.
Var Monsanto, sem Bayer keypti á
66 milljarða dala fyrr á árinu, ekki
talið hafa varað nægilega skýrt við
hættunni sem fylgir því að nota ill-
gresiseyði félagsins. – kij
Elliott kaupir hlut í Bayer
höfuðstöðvar lyfja- og efnarisans Bayer eru í Leverkusen. Nordicphotos/Getty
100
milljónir punda er áætlaður
sparnaður breskra neytenda
vegna lagningar Nemo-
sæstrengsins.
1 2 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r10 markaðuriNN
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
6
-C
6
2
C
2
1
B
6
-C
4
F
0
2
1
B
6
-C
3
B
4
2
1
B
6
-C
2
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K