Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.12.2018, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 12.12.2018, Qupperneq 47
LAND ROVER Discovery 5 TD6 HSE Luxury Nýskr. 2/2018, ekinn 9 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 15.890.000 kr. Rnr.103826. LAND ROVER Discovery Sport SE. Nýskr. 8/2016, ekinn 22 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 5.990.000. kr. Rnr. 103736. LAND ROVER Discovery 5 SE Nýskr. 11/2017, ekinn 54 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 10.500.000 kr. Rnr. 145504. RANGE ROVER Evoque HSE Dynamic Nýskr. 2/2016, ekinn 40 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 6.990.000 kr. Rnr. 103733. JAGUAR - LAND ROVER Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík 525 6500 / jaguarlandrover.is Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla. Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag. NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6 RANGE ROVER Sport HSE Nýskr. 6/2017, ekinn 30 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 11.500.000 kr. Rnr. 103773. RANGE ROVER Evoque Autobiography Nýskr. 1/2017, ekinn 21 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 7.990.000 kr. Rnr. 450002. LAND ROVER Discovery Sport HSE Nýskr. 4/2016, ekinn 30 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 6.890.000 kr. Rnr. 103786. LAND ROVER Discovery 4 SE Nýskr. 9/2015, ekinn 140 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 6.690.000 kr. Rnr. 145505. E N N E M M / S ÍA / N M 9 1 3 5 7 J a g u a r n o t a ð ir 5 x 2 0 1 2 d e s Geisladiskur Jórunn Viðar Flytjendur: Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir. Það fór alltaf í taugarnar á Jórunni Viðar þegar hún var kölluð kven- tónskáld. Hún sagðist sjálf aldrei tala um karltónskáld. Þetta er þó skiljanlegt, því í heil tuttugu ár var hún eina konan í Tónskáldafélagi Íslands. Jórunn var brautryðjandi í þróun sönglagsins hér á landi. Þar koma nokkur atriði til. Hinn hefðbundni píanómeðleikur varð t.d. að ein- hverju miklu meira en undirspili hjá henni. Píanóið átti þar alltaf sína sjálfstæðu rödd á móti söngnum, og saman fléttuðust raddirnar saman og mynduðu magnaða heild. Í lögunum eru stefin grípandi, og þau eru skemmtilega frjáls. Sum innihalda svokölluð söngles, eða recitativo, eins og tíðkast í mörgum óperum. Þetta gerir lögin þó ekki sundurlaus, þvert á móti er í þeim áhrifamikil stærð og tignarleiki. Þjóðlegur stíll og náttúrustemn- ing svífur yfir vötnunum í tónlist- inni. Jórunn notar mikið af hreinum tónbilum, ferundum og fimmund- um, og þau afklæða músíkina, ef svo má segja. Hún er nakin og tær, rétt eins og þjóðlögin og íslenskt landslag. Þetta er tónlist sem bara hefði getað verið samin á Íslandi. Ræturnar ná langt aftur í fortíð og djúpt í þjóðarsálina. Jórunn hefði orðið hundrað ára Nakið eins og íslenskt landslag „Þjóðlegur stíll og náttúrustemning svífur yfir vötnunum í tónlistinni.“ Eva Þyri og Erla Dóra. Túlkun þeirra er sannfærandi, segir í dómnum. um þessar mundir, og í tilefni af afmælinu er nú kominn út geisla- diskur með mörgum laga hennar, og einnig gömlum þulum og þjóð- vísum sem hún útsetti. Erla Dóra Vogler mezzósópran syngur og Eva Þyri Hilmarsdóttir leikur á píanó. Söngurinn er dramatískur og til- finningaríkur, en túlkunin er ætíð heiðarleg. Erla Dóra greinilega elsk- ar lögin og það heyrist. Alls konar falleg blæbrigði eru í röddinni; þau eru jafn merkingarþrungin og sjálf orðin. Hvergi er sýndarmennska í túlkuninni. Eva Þyri er ekki síðri á píanóið. Leikurinn er stórbrotinn og fullur af átökum, en tæknilega séð nákvæm- ur og agaður; allar nótur eru á sínum stað. Samspilið er pottþétt; rödd og píanó blandast saman svo úr verður sterk heild. Mörg lögin eru forkunnarfögur. Þar má nefna Þjóðlag úr Álfhamri við ljóð eftir Guðmund Böðvarsson, eitt besta lag Jórunnar. Laglínan er grípandi og hljómar píanósins töfrum gæddir. Bí, bí og blaka er líka yndislegt, píanóröddin sem Jórunn bætti við þjóðlagið er hugljúf. Þessi lög og fleiri eru seiðandi eins og þau eru borin fram á geisladiskinum. Eina sem hægt er að finna að er hljómurinn í upptökunum. Þær fóru fram í Hannesarholti sem er ansi dauður salur. Þetta kemur niður á söngröddinni, sem er dálítið þurr. Maður þarf því aðeins að venjast áferðinni á upptökunum. Burtséð frá því er þetta eigulegur geisla- diskur; sannfærandi túlkunin er veglegur minnisvarði um snilld Jórunnar. Jónas Sen Niðurstaða: Prýðilegur flutningur á frábærri tónlist. m e N N i N G ∙ F r É t t a B l a ð i ð 23m i ð V i k u d a G u r 1 2 . d e s e m B e r 2 0 1 8 1 2 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B 6 -B 7 5 C 2 1 B 6 -B 6 2 0 2 1 B 6 -B 4 E 4 2 1 B 6 -B 3 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.