Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2019, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 12.01.2019, Qupperneq 28
Söngleikur sem byggir á tón-list Bubba Morthens verð-ur settur á svið í Borgarleik-húsinu. „Kannski fæ ég að laum-ast inn í eitt lag eða eitt- hvað slíkt. Ég heyri það á þeim sem eru með þetta í fanginu að söng- leikurinn eigi að spegla að einhverju leyti sögu þjóðarinnar og atburði í þjóðlífinu í gegnum lögin mín,“ segir Bubbi. Laga- og textasmíð Bubba er ótrú- lega fjölbreytt. Hann tekst á við félagslegan veruleika, grimmd og ást. Hann horfir inn á við og á sam- félag sitt. Eins og Ólafur Egilsson, höfundur söngleiksins, orðar svo vel: Saga og sögur Bubba eru kannski um leið sögur okkar allra, sögur Íslands, frá verbúð til víðáttubrjálæðis, frá blindskerjum til regnbogastræta, hlýrabolum til axlapúða og aftur til baka. Í geymslu í tossabekk Leið Bubba að skáldskap og tónlist var ekki beinn vegur. Þegar hann var barn var enginn skilningur fyrir því að mikil sköpunargáfa og greind helst ekki endilega í hendur við aðra færni. „Ég er skrifblindur. Ég var undrastrákur á bækur. Bráðger og varð snemma læs. Ég var búinn að lesa Tolstoj og Gorkí fyrir 10 ára aldur. Ég stóð mig líka vel í lestri í skóla. En svo kom að skrift og staf- setningu og þá hrundi veröldin. Ég var settur í geymslu í grunnskóla, tossabekkinn í Vogaskóla. Þar brotnaði auðvitað eitthvað og ég fann fyrir ótta við orð og skrif. En samt flúði ég áfram í bækur og tón- list sem krakki vegna þess að ég bjó við alkóhólisma.“ Bubbi var sendur í heimavistar- skóla í Danmörku fjórtán ára gamall. „Manneskjur sem eyða miklum tíma í tilgangslaust ráf og flótta á símanum eða í tölvuleikjum eru fjarverandi. Frá sér og öðrum,“ segir Bubbi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þar losnaði hann að einhverju leyti undan óttanum við að setja hugsanir sínar í orð. „Þar var sagt við mig: Þú ert bara í toppstandi, þú þarft ekki að taka nein skrifleg próf í þessum skóla. Áherslurnar voru svo allt aðrar en ég hafði kynnst á Íslandi. Ég fékk að vera ég. Svo þegar ég byrja að búa til tónlist þá kemur það af mikilli innri þörf og það stöðvar mig ekkert. Ég hef síðan þá og allan minn feril speglað sýn mína, á mig og samfélagið. Ég gerði mér ekki grein fyrir því þegar ég var til dæmis að gera Ísbjarnarblús að þetta væri eitthvað sem hefði ekki heyrst áður og væri á skjön við allt annað. Í mínum huga var þetta bara veruleikinn. Ég var bara á verbúð og að þvælast um, fylgjast með fólki. Þegar maður er ungur þá er maður í núinu, þá dvelur þú ekkert við þessa hluti,“ segir Bubbi sem segist hafa verið drifinn áfram af löngun til að skilja eitthvað eftir sig. „Á þessum árum átti ég minn draum. Mig langaði til þess að verða frægur, hafa tekjur af því, ná mér í stelpu. Mig langaði til að verða stjarna. Þetta er banvænn kokteill en samt eru það þessar langanir sem koma þér þangað sem þú ætlar þér. Og svo keyrði ég áfram. Ísbjarnarblús var fallbyssa inn í íslenskt samfélag. Þá er hættan að endurtaka sig. En ég gætti mín á því. Ég vildi ögra, taka áhættu. Það er ekkert gaman að vera ekki á brúninni. Eða að klifra ekki hærra,“ segir Bubbi. Endalaust forvitinn Hann segir lagasmíð og textagerð sína hafa þróast með tímanum. „Ég lagði sífellt meiri rækt við orðin. En enn þann dag í dag er mér uppsigað við reglur. Ég tel bragreglur hefta, alveg sama hversu haglega er ort. Oft og tíðum eru myndirnar sem þú ert að sækja til að setja í lag ekki hinar sömu ef þú setur þær fram eftir reglum. Þær verða ekki jafn sterkar,“ segir Bubbi sem segir það einn- ig skipta hann máli að fylgja eigin ætlan. „Og gefa dauðann og djöfulinn í það sem öðrum finnst,“ segir hann. „Ég hef samt mikla unun af klass- ískri ljóðlist og les mikið bæði íslenska og erlenda höfunda. Miklu meira en skáldsögur. Ég les mikið eftir skandinavíska höfunda. Bæði rótgróna og módernistana.“ Forvitnin leiðir hann áfram. „Ég er endalaust forvitinn, það er gæfa þess sem skapar. Ég leita mikið í mína innri veröld. Við erum öll marglaga. Það eru margir heimar í einni manneskju og þessir heimar opinberast mér oft þegar ég er að fara að sofa. Þá tek ég þetta ferðalag. Þess vegna finnst mér mjög gott að vakna mjög snemma því þá er þetta ennþá í minningunni. Tært og þú sérð til botns. Þessi tilfinning dugar mér í tvo til þrjá tíma,“ segir Bubbi. Bestu ljóð og bestu lög Bubba hafa orðið til vegna erfiðleika og sársauka. „Það er eitt sem ég hef lært. Og það er að alltaf þegar ég hef upplifað hluti sem hafa annaðhvort gert mig skelk- aðan eða óendanlega sorgmæddan reynast þeir á endanum fela í sér gæfu.“ Sá ekki glætu Hann nefnir sem dæmi skilnað sinn fyrir þrettán árum. „Ég upplifði að líf mitt væri búið. Ég sá ekki neitt. Ég sá enga glætu í tilverunni,“ segir Bubbi. „En svo tekur lífið mann í fangið. Ég varð svo fyrir öðru þungu áfalli þegar við Hrafnhildur áttum von á barni sem kom ekki. Það var mikil sorg, en svo fengum við annað barn, hana Aþenu Lind, þessa stóru gjöf. Hún hefði ekki komið hefði hitt barnið lifað. Og það er stóri lærdómurinn, lífið er alltaf þarna handan við horn- ið og kemur svo rækilega á óvart,“ segir Bubbi sem segir það einmitt þess vegna reynast best að treysta innsæinu frekar en höfðinu. „Höfuðið er alltaf tilbúið til að segja nei. Þú getur þetta ekki. Þú ert svo vitlaus og svo framvegis. Það getur stundum verið þinn versti óvinur. Á meðan segir hjartað: Þetta verður allt í lagi, það er eitthvað meira. Ég treysti líka innsæinu betur en höfðinu þegar ég er að semja. Ég finn það í líkamanum þegar hlutir eru réttir. Ég er viss um að aðrir finna þetta líka. Fyrsta hugmyndin sem fólk fær er oft sú besta því höfuðið hefur ekki efast um hana. Þegar ég fæ hugmynd að lagi eða texta þá læt ég það aldrei fara frá mér því þá mun einhver annar taka hana á lofti. Ég stekk á það. Ég finn það fljótt hvort hún virkar eða virkar ekki. Þegar ég finn að lag er rétt þá líður mér eins og ég sé á toppi tilverunnar. Það er betra en kynlíf,“ segir Bubbi. Náttúran er líka áhrifavaldur í lífi Bubba. „Góðu stundir mínar í æsku voru í Kjósinni, í náttúrunni með mömmu og pabba þegar hann var í lagi. Við rerum út á morgnana og veiddum, við vorum frjálsir, fórum í fjallgöngur og gátum gert allt sem við vildum. Mamma var hrifin af rósum og pabbi var gríðarlega fróður um tré. Svo þegar ég flutti í Kjósina þá vissi ég bara hvað ég átti að gera. Rósir eru þerapía dauðans. Að fara út í garð snemma á morgnana, þegar það hefur rignt um nóttina, og finna ilminn af þeim. Það er góð tilfinning. Frá júlí til september á hverju ári eru rósir í vasa við rúm stelpnanna. Það síðasta sem þær gera þegar þær fara að sofa er að þefa af rósunum. Blóm hafa góð áhrif á fólk og það er mann- bætandi og ávísun á hamingju að stunda garðvinnu og rækta blóm. Þetta var alltaf í mér, en svo veit ég ekki hvað verður. Hvort við verðum áfram í Kjósinni. Stelpurnar okkar Lét spila Abba í aðgerðinni Bubbi Morthens er stálsleginn eftir erfið veikindi á síðasta ári. Í Borgarleikhús- inu verður settur á svið söngleikur sem byggir á lögum hans. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 2 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 0 2 -4 7 4 0 2 2 0 2 -4 6 0 4 2 2 0 2 -4 4 C 8 2 2 0 2 -4 3 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 1 2 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.