Fréttablaðið - 12.01.2019, Side 35

Fréttablaðið - 12.01.2019, Side 35
Flestir hafa heyrt um eplaedik og ýmsa kosti þess að nota sér það til heilsubótar. Síðan 1970 hefur það verið kynnt og selt sem heilsubætandi „elexír“ þó svo að ekki liggi klínískar rannsóknir þar að baki, frekar en á ýmsum öðrum matvælum sem eru þó klárlega vel til þess fallin að auka hreysti og vellíðan. Sagt er að epla­ edikið geti hjálpað til við þyngdar­ tap, jafni blóðsykurinn og að sýran geti einnig drepið og komið í veg fyrir að bakteríur í líkamanum nái að fjölga sér. Melting og matarlyst Neysla eplaediks hefur afar jákvæð áhrif á meltinguna og hjálpar það til við að örva framleiðslu á maga­ sýrum sem er mikilvægt fyrir góða meltingu. Einnig er talað um að það hafi áhrif á matarlyst en þar sem ávallt skal drekka vel af vatni með því, gæti það hugsanlega haft áhrif. Það er þó vel þekkt að edikssýra í t.d. salatsósum hafi jákvæð áhrif á meltinguna og hugsanlega á matar­ lystina líka, segir á Vísindavef HÍ. Brjóstsviði og bjúgur Þrátt fyrir að eplaedikið sé súrt á bragðið veldur það ekki því að t.d. brjóstsviði aukist. Það virkar akkúrat öfugt og getur því verið þjóðráð að taka eplaedik (eða sítrónusafa) í vatni fyrst á morgn­ ana og fyrir mat og draga þannig úr líkum á – eða jafnvel losna við brjóstsviða. Regluleg inntaka á eplaediki er góð fyrir sýrustig líkamans og getur dregið úr bjúg­ söfnun. Margir hafa of hátt sýrustig í líkamanum sem getur verið til­ komið vegna lifnaðarhátta (streita og mataræði) og veldur það ýmiss konar kvillum. Ójafnvægi verður í þarmaflórunni sem getur valdið húðvandamálum og ónæmis­ kerfið okkar sem einnig er staðsett í þörmum og beintengt þarma­ flórunni verður fyrir röskun. Að lokum skal nefna að eplaedikið, þessi „lífsins elexír“, getur dregið verulega úr slímmyndun og styrkt virkni líffæra eins og þvagblöðru, lifrar og nýrna. Allra meina bót? Eins og áður kom fram, þá hefur eplaedik verið notað til heilsu­ bótar í aldaraðir og margt hljómar örlítið eins og þetta sé allra meina bót fyrir alla. Það er þó ekki alveg þannig en það virkar klárlega fyrir suma. Í grein sem birt var í Medscape General Medicine 2006 er talað um að neysla á því geti hjálpað til við að lækka blóðþrýst­ ing og blóðsykur og einnig að þrátt fyrir sýruna, geri það líkamann ekki súrari. Þó eru ákveðnir þættir sem þarf að varast og alltaf best að skoða málin vel og jafnvel ráð­ færa sig við lækni áður en regluleg neysla hefst. Þeir sem ætla að taka eplaedik inn í vökvaformi alla daga þurfa líka að huga vel að tönnunum því það er ekki gott að mikil sýra sé í munninum lengi. Eplaedik í töfluformi Mörgum líkar ekki við bragðið af eplaedikinu og sleppa því þess vegna. Apple Cider töflurnar frá New Nordic eru því kærkomnar fyrir marga en þær eru öflugar og auk 1000 mg af eplaediksdufti, innihalda þær önnur jurtaefni sem hjálpa til við niðurbrot á fitu og styðja við lifrarstarfsemi. Þessi efni eru: l Ætiþistill – eflir meltingu, styður lifrarstarfsemi og eðlilegt niður- brot á fitu. l Túnfífill – eflir meltingu, styður lifrarstarfsemi og eðlilegt niður- brot á fitu. l Kólín – eflir meltingu, styður lifrarstarfsemi og eðlilegt niður- brot á fitu ásamt því að ýta undir fitubrennslu. Svo innhalda þær króm sem hjálpar til við blóðsykursjafnvægi og slær þannig á sykurlöngun. Inntaka á eplaedikstöflunum er ekki bara góðar fréttir fyrir þá sem eiga erfitt með að taka það inn í vökvaformi vegna bragðs, heldur líka fyrir tennurnar. Ekkert bragð og engin sýra sem liggur á tönn­ unum og veldur skaða. Fæst í flestum apótekum, heilsu- húsum, Iceland, Hagkaup og Fræinu, Fjarðarkaupum. Eplaedik er heilsubætandi „elexír“ í töfluformi Regluleg inntaka á eplaediki er góð fyrir sýru- stig líkamans og getur dregið úr bjúgsöfnun. Neysla á epla- ediki er gamalt húsráð sem flestir kannast við. Töflurnar eru góðar fréttir fyrir þá sem finnst súra ediksbragðið vont. Inntaka á epla­ ediks töflunum er ekki bara góðar fréttir fyrir þá sem eiga erfitt með að taka það á vökva­ formi vegna bragðs, heldur líka fyrir tenn­ urnar. Hrönn Hjálmarsdóttir, næringar- og heilsumarkþjálfi Eplaedik hefur verið notað sem heilsubótarefni í aldaraðir, bæði sem forvörn sem og vegna lækn- andi eiginleika. Nú er það komið í töfluformi sem eru góðar fréttir, sérstaklega fyrir tennurnar. Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem eru mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og fallegra. Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is Aldrei haft jafn þykkt hár „Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að taka Hair Volume frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng augnhár, þykkar augabrúnir og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að hætta að taka þetta bætiefni inn.“ Edda Dungal Hair Volume – fyrir líflegra hár FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 2 . JA N ÚA R 2 0 1 9 1 2 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 0 2 -7 8 A 0 2 2 0 2 -7 7 6 4 2 2 0 2 -7 6 2 8 2 2 0 2 -7 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 1 2 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.