Fréttablaðið - 12.01.2019, Qupperneq 92
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
335
„Jæja þá, tvær nýjar sudoku
gátur,“ sagði Kata glottandi.
„Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku gátur að við
skulum koma í kapp um hver
verður fyrstur til að leysa
þær,“ bætti hún við. „Allt í
lagi,“ sagði Konráð. „Til er ég.“
Lísaloppa var líka góð í að
leysa sudoku gátur svo hún
var alveg til í keppni. „Við
glímum öll við þær báðar
og þá kemur í ljós hversu
klár þú ert orðin,“ sagði hún.
„En ég vara ykkur við, ég er
orðin mjög klár,“ sagði Kata
montin. „Við getum byrjað
á þessari léttari,“ sagði
Lísaloppa. „Þeirri léttari
fyrst?“ sagði Kata hneyksluð.
„Ekki ég, ég byrja á þeirri
erðari fyrst,“ sagði hún og
glotti. „Ég yrði jótari en þið
bæði til samans þótt þær
væru báðar þungar.“ Kata var
orðin ansi klár. En skyldi hún
vera svona klár?
Heldur þú að þú getir leyst þessar sudoku gátur hraðar en Kata?
?
?
?
Álfrún Vala H. Eyglóardóttir er tíu
ára gömul og á heima í Reykjavík.
En hvar myndir þú helst vilja búa
ef þú ættir ekki heima þar? Á Spáni
örugglega því þar er svo hlýtt.
Hver er eftirlætisnámsgreinin þín
í skólanum? Tónmennt af því að á
veturna eru alltaf sett upp leikrit og
mér finnst gaman að syngja. Mér
finnst líka gaman í dansi, upplýs-
ingatækni og náttúru- og samfélags-
fræði.
Hver eru helstu áhugamálin utan
skólans? Helstu áhugamálin mín
eru söngur, dans, leiklist og tónlist.
Mér finnst líka gaman að lesa bækur
og spila spil.
Ertu að læra einhverjar listgrein-
ar? Ég er að læra á franskt horn og
er í skólahljómsveit Austurbæjar. Ég
er líka í kór og að læra á píanó og
langar að byrja aftur að æfa ballett.
Lestu dagblöðin? Já, stundum og
aðallega um stjórnmál, lögreglumál,
tísku og oft barnaefnið.
Hvað horfir þú helst á í sjónvarp-
inu? Til dæmis matreiðsluþætti,
læknaþætti, Friends, The Middle,
Manifest og margt, margt fleira.
Hver er besta bók sem þú hefur
lesið og af hverju? Harry Potter-
bækurnar eru mjög góðar. Mér
finnst Aþenubækurnar líka góðar
og leyndarmál Lindu af því þær eru
báðar svo raunverulegar.
Hver er fallegasti staður sem þú
hefur komið á og af hverju? Kúba
er í uppáhaldi af því hún er svo
gamaldags og langt í burtu og lifandi
tónlist út um allt. Mér finnst Vest-
firðir líka mjög fallegir. Það var líka
fallegt í fjöllunum á Kanaríeyjum en
ég varð mjög bílhrædd þar því það
var svo bratt niður og vegurinn rosa-
lega mjór.
Hvað dreymir þig um að verða
þegar þú verður fullorðin? Leik-
kona, skurðlæknir eða lögfræðingur.
Kúba er
í uppáhaldi
Álfrún Vala les stundum dagblöðin, meðal annars
greinar um stjórnmál og tísku. Oft líka barnaefnið.
Álfrún Vala H. Eyglóardóttir á mörg áhugamál. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÉG ER AÐ LÆRA Á
FRANSKT HORN OG ER
Í SKÓLAHLJÓMSVEIT AUSTUR-
BÆJAR. ÉG ER LÍKA Í KÓR OG AÐ
LÆRA Á PÍANÓ OG LANGAR AÐ
BYRJA AFTUR AÐ ÆFA BALLETT.
Öll skip úr höfn/Stórfiskaleikur
Leikurinn hefst á því að allir raða
sér upp við enda leiksvæðis, þar
er höfn og hinum megin er önnur
höfn.
Einn leikmaður er „hann“ og
stendur á miðju svæðinu. Þegar
hann kallar „öll skip úr höfn“ eiga
hinir að hlaupa þvert yfir svæðið og
í hina höfnina. Þeir eiga að hlaupa
helst sem næst „honum“ og þá
reynir „hann“ að klukka sem flesta.
Í næsta leik eru þeir sem voru
klukkaðir með „honum“ í liði og svo
koll af kolli uns aðeins einn er eftir.
Sá er „hann“ í næsta leik og reynir
að klukka sem flesta.
Leikurinn
Hvað heiti ég?
Gull og silfur æ ég er,
einnig landnámskona.
Næstum allir eftir mér
ætíð bíða og vona.
Hver er það sem læðist lágt?
líka stundum slæðist hátt.
Yrði mörgum æði bágt,
opin ef ei stæði gátt.
Hvað hét hundur karls
sem í afdölum bjó?
Nefni ég hann í fyrsta orði,
þú getur hans aldrei þó.
Eitt af því sem amma kunni
einkum gerði fyrir jól.
Stundum hef í hönd og munni.
Hestar gera, einnig hjól.
Allar gáturnar eru eftir
óþekkta höfunda, nema
sú síðasta, hún er eftir Jón
Magnússon á
Akureyri.
Svör:
Auður
Reykur
Hvað
Prjóna
Vísnagátur
1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
0
2
-4
7
4
0
2
2
0
2
-4
6
0
4
2
2
0
2
-4
4
C
8
2
2
0
2
-4
3
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K