Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Blaðsíða 5
FRETTIR UR SAFNAHEIMINUM
dianCharter i
md Freedoms
canadienne
Kdibertés
aeProtcnions
jjctlnns divcr»M
íslenslct hugvit í safni helgað mannréttindum!
Kanadíska mannréttindasafnið (Canadian Museum for Human Rights) er
fyrsta safn sinnar tegundar í heiminum. Pað er tileinkað þróun, vegsömun
og framtíð mannréttinda í Kanada og annars staðar í heiminum. Safnið opn-
aði formlega þann 20. september 2013 í byggingu sem reist var sérstaklega
fyrir safnið og er staðsett í miðborg Winnipeg. Safnbyggingin er þegar
orðin eitt helsta kennileiti borgarinnar vegna sérstæðs útlits. Er hugmyndin
að safninu var fyrst kynnt, sætti hún gagnrýni frá ýmsum og ekki síst frum-
byggjum Kanada, en þeir hafa lengi staðið í baráttu fyrir viðurkenningu
kanadíska ríkisins á mannréttindabrotum sem þeir hafa þurft að þola allt
fram á þennan dag. Beindist gagnrýnin meðal annars að því að safnið gæfi
ranga mynd af framkvæmd mannréttindamála í Kanada. Safnið býður upp
á sýningar í tíu sýningarrýmum sem hvert um sig fjallar um ólík viðfangs-
efni er snúa að mannréttindum. Sem dæmi er ein sýning sem tekst á við
spurninguna um það hvað mannréttindi séu, önnur sýning horfir til
sjónarmiða frumbyggja í Kanada til mannréttindamála og þriðja rýmið
gerir grein fyrir mikilvægi þess að vekja máls á mannréttindabrotum.
Sýningarnar nýta sér margs konar framsetningartækni, s.s. gagnvirlcni
í upplýsingamiðlun, og var Gagarín eitt þeirra fyrirtækja sem hannaði
slíkar lausnir fyrir sýningar safnsins. www.humanrights.ca
British Pathé
Fyrr á þessu ári opnaði kvikmynda-
safnið British Pathé stafrænar dyr
sínar fyrir almenningi, þegar
um 85.000 kvikmyndum úr safni
þeirra var hlaðið inn á Youtube.
Á heimasíðu British Pathé má finna
skemmtilegar stuttmyndir frá
íslandi, til dæmis breska og ameríska
hermenn arka um götur borgarinnar
árið 1941 og hraustlegar íslenskar
stúlkur dansa léttan dans fyrir
myndavélina árið 1932.
www.britishpathe.com
Landbúnaðarsafnið flytur
Síðsumars var Landbúnaðarsafnið flutt
í Halldórsfjós á Hvanneyri, sögumerka
byggingu sem reist var á árunum
1928-29. Þann 2. október 2014 var
grunnsýning safnsins opnuð þar og
einnig tekið í notkun noklcuð geymslu-
rými þar í húsinu. Um leið opnaði
Ullarselið þar glæsilega verslun.
5