Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Page 9
safnið og starfsemi þess svo af því
sé virðisauki í víðasta skilningi þess
orðs. Virðisaukinn er framkallaður
með vöruúrvali og þjónustu sem
byggir á starfsemi safnsins, safn-
eigninni og sýningum.
í safnbúðinni er nammi
eklti bara nammi
Fyrir tæpar 300 lcrónur fæst glær
sellófanpoki sem inniheldur óræðan
hlut. Hann er u.þ.b. 15 cm á lengd
og 4 cm í þvermál. Pað er ekki
eins og þú heldur, hann fæst ekki
í safnbúð Hins íslenska reðasafns í
Reykjavík. Petta er heldur elcki stein-
tegund, en þær má finna í safneign
Eldfjallasafnsins í Stykkishólmi,
sem er í um það bil hálfrar mínútu
göngufjarlægð frá. Varan, lcandís
á bandi, fæst í safnbúð Norska
hússins - Byggðasafni Snæfellinga
og Hnappdæla. Margir hafa fengið
að smakka þessa sykurtegund heima
hjá langömmu sinni og langafa.
Amma og afi voru þó líklegri til að
hafa keypt kandísinn tilhöggvinn
og innpakkaðan í lcassa úti í búð.
Þannig var hann borinn fram í lítilli
skál með kaffinu. Kannslci man ein-
hver þá tíma þegar lcandísinn var
klipinn í sundur með þartilgerðri
sykurtöng. Töngin er hins vegar
horfin úr helstu búðum og eldhús-
skúffum landsmanna en sést ennþá
á byggðasöfnum, stundum í félags-
skap lcandísstangar á bandi.
í safnbúð Byggðasafnsins fæst líka
nammitegund af nýrri gerð. Petta
er súkkulaðiregnhlíf með hand-
fangi. Hún er u.þ.b. 10 cm að lengd,
lcónísk og mest 2 cm á breidd. Henni
er pakkað inn í bleikt álbréf með
áprentuðu andliti. Á rigningardegi
sumarið 2013 varðaði regnhlífin
leiðina aftur til rigningasumarsins
1969. Þá voru regnhlífar líka borðað-
ar. Samanlögð áhrif bragðs, áferðar
og lyktar urðu til þess að tengja
manneskju við minningar frá því
mörgum árum áður. En vörurnar
í safnbúðinni urðu lílta kveikja að
samtali um sælgætismenningu
á íslandi, þvert á tíma og kynslóðir.
Pað byrjaði á gullaldartíma kandís-
ins þegar nammiframboð var minna
og færði sig í áttina að súlckulað-
iregnhlíf sem var á sama tíma bæði
gömul og ný. Samtalið tólc líka til
þess sem ekki var í til staðar í búð-
inni. Þar má nefna lakkrísrör ofan
í kókflösku úr gleri, Síríuslengja
og lakkrísrúlla sameinaðar, bland
í bleikum eða grænum skrjáfandi
poka. Einu sinni var tyggjó bannað
en M&M og Skittles var leyft, svo
bannað og svo aftur leyft. Páskaegg
og Maclcintosh tilheyra bara sérstök-
um frídögum. Niðurstaðan: Pað er
leitun að fóllci sem borðar jafn milcið
af nammi, enda hefur það slcilað
þjóðinni vafasömum titlum á meðal
þjóða. Tengingin á milli sælgætis og
sögu byggðar virtist í upphafi elclci
skýr, en nammiframboð hvers tíma
varpar ljósi á fóllc og samfélag, bæði
það ytra og innra. Hér skiptir fram-
setning vörunnar, samhengi, þelclc-
ing og þjónusta höfuðmáli.
Ég var þar eða einhver sem
ég þeklci, minnir mig, og þessi
hlutur sannar það
Pað fæst ýmislegt í safnhúðum
á íslandi og þær endurspegla, a.m.k.
yfir sumarmánuðina, áherslu á
túrisma. Lundar eru sætir. Víkinga-
hjálmar úr plasti og list á bol eða
9