Fréttablaðið - 16.02.2019, Qupperneq 22
Valsliðið er gríðar
lega vel mannað og
það er erfitt að finna veik
leika á því.
Ágúst
Björgvinsson
Nú þarftu bara að muna
bílnúmerið. Hvort sem þú
nýtir stöðumæli eða app.
Enginn miði í mælaborðið.
BETRA AÐ
BORGA
Bílastæðasjóður | bilastaedasjodur.is
B
ra
n
d
e
n
b
u
rg
|
s
ía
Einar Árni Jóhannsson
gerði Njarðvík að bikar
meisturum 2005 vel og getur
endurtekið leikinn í dag.
Karlalið Stjörnunnar
hefur aldrei tapað bikar
úrslitaleik.
Liðin sem mætast í
úrslitum Geysisbikars
kvenna hafa aðeins samtals
einu sinni áður komist í
bikarúrslit.
1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Möguleiki á tvöföldum
bikarfögnuði í Garðabænum
Úrslitaleikirnir í Geysisbikarnum fara fram í dag. Stjarnan er í úrslitum í bæði kvenna- og karlaflokki
og getur því unnið tvöfalt. Kvennalið Stjörnunnar mætir sjóðheitum Valskonum sem eru einnig í leit að
sínum fyrsta bikartitli. Karlamegin standa Njarðvíkingar í vegi fyrir fjórða bikartitli Stjörnumanna.
KÖRFUBOLTI Ljóst er að nýtt nafn
fer á bikarinn í kvennaf lokki en í
úrslitaleiknum, sem hefst klukkan
13.30 í dag, mætast Stjarnan og
Valur. Hvorugt liðið hefur áður
orðið bikarmeistari, eða unnið
stóran titil í kvennaflokki. Stjarnan
hefur aldrei komist í bikarúrslit en
Valur einu sinni; árið 2013 þegar
liðið tapaði fyrir Keflavík, 68-60.
Valskonur hafa verið með besta
lið landsins eftir komu Helenu
Sverrisdóttur og unnið tólf leiki í
röð í deild og bikar.
„Það er ekki margt sem bendir
til þess, nema kannski þær sjálfar,“
sagði Ágúst Björgvinsson, þjálfari
karlaliðs Vals, við Fréttablaðið,
aðspurður hvort hægt væri að
stöðva Valsliðið þessa dagana.
Ágúst stýrði Valskonum í bikar-
úrslitum fyrir sex árum og gerði
kvennalið Hauka að bikarmeist-
urum 2005 og 2007. Þá var Helena í
lykilhlutverki hjá Haukum og fyrir-
liði seinna árið.
„Valsliðið er gríðarlega vel mann-
að og það er erfitt að finna veik-
leika á því. Þær eru með breidd,
besta leikmann sem Ísland hefur
átt, góðan bandarískan leikmann
[Heather Butler] og Simonu [Podes-
vova]. Það er enginn leikmaður sem
gerir meira fyrir liðið sitt án þess
að skora en hún. Svo er Guðbjörg
[Sverrisdóttir] ein af bestu leik-
mönnum deildarinnar,“ sagði Ágúst.
Þrátt fyrir styrk Vals segir hann að
það megi ekki vanmeta Stjörnuliðið
sem er í 5. sæti Domino’s-deildar
kvenna, aðeins tveimur stigum frá
sæti í úrslitakeppninni.
„Stjarnan er með mjög gott lið
og hefur styrkst frá því tímabilið
hófst. Þær eru á fínu skriði,“ sagði
Ágúst. „Danielle Rodriguez er auð-
vitað algjör lykilmaður og ég sé ekki
hvernig Stjarnan á að vinna Val án
þess að hún eigi toppleik.“
Umrædd Danielle var frábær
í sigri Stjörnunnar á Breiðabliki,
82-103, í undanúrslitunum. Þar
skoraði hún 33 stig, tók tólf fráköst
og gaf níu stoðsendingar. Í þremur
leikjum í Geysisbikarnum er Dani-
elle með 25,7 stig, 9,7 fráköst og 10,0
stoðsendingar að meðaltali.
Ágúst segir að Valur sé mun sigur-
stranglegri aðilinn en bæði lið vilji
að sjálfsögðu ná í sinn fyrsta stóra
titil. „Í undanúrslitunum gegn
Snæfelli sást að Valskonur voru
stressaðar og það er pressa á þeim.
En það er líka búið að leggja mikið
í Stjörnuliðið og það er líka pressa
á því.“
Stjarnan besta liðið í dag
Karlamegin er bikarhefð liðanna
sem mætast í úrslitum mun meiri
en kvennamegin. Stjarnan hefur
þrisvar áður komist í bikarúrslit og
alltaf unnið, síðast 2015. Njarðvík
hefur hins vegar 15 sinnum áður
komist í bikarúrslit og átta sinnum
unnið bikarinn. Aðeins KR hefur
oftar orðið bikarmeistari í karla-
flokki, eða tólf sinnum.
Það eru hins vegar liðin 14 löng
ár síðan Njarðvík varð síðast bikar-
meistari. Liðið vann þá stórsigur á
Fjölni, 90-64. Þjálfari Njarðvíkur
2005 var sá sami og er í dag; Einar
Árni Jóhannsson. Hann kom Þór
Þ. einnig í bikarúrslit 2016 og 2017
og hefur því mikla reynslu á þessu
sviði.
Stjarnan hefur verið óstöðvandi
undanfarnar vikur og unnið 13
leiki í röð í deild og bikar. Stjörnu-
menn töpuðu síðast leik 23. nóvem-
ber þegar þeir biðu lægri hlut fyrir
Njarðvíkingum, 99-95.
„Stjarnan hefur haft svakalega
yfirburði í deildinni eftir áramót
og þeir hafa verið ógeðslega góðir.
Þeir líta best út í dag. En það er
mikil stemning í Njarðvíkurliðinu
og góður andi. Þótt Njarðvík sé á
toppnum í deildinni finnst mér
vera meiri pressa á Stjörnunni,“
sagði Ágúst.
„Stjarnan er með besta liðið í dag.
Þeir hafa spilað betur en Njarðvík.
En Njarðvíkingar hafa styrkst eftir
komu Erics Katenda. Hann hefur
spilað mjög vel. Njarðvík er með
mikla breidd og mjög sterka bak-
verði.“
Elvar Már Friðriksson hefur
leikið einkar vel með Njarðvík eftir
komuna frá Frakklandi. Ágúst segir
að barátta hans og leikstjórnanda
Stjörnunnar, Ægis Þórs Steinars-
sonar, verði æði athyglisverð.
„Ægir er allavega nógu fljótur til
að eiga við Elvar. Þetta er áhugavert
einvígi. Ægir stoppar Elvar ekki
en hann fær kannski ekki að leika
lausum hala,“ sagði Ágúst.
Valinn maður er í hverju rúmi
hjá báðum liðum og breiddin
mikil. „Allir í byrjunarliðinu hjá
Stjörnunni eru hættulegir. Það er
enginn sem þú getur látið afskipta-
lausan. Það sama er reyndar uppi
á teningnum hinum megin. Hjá
Njarðvík kemur Logi Gunnarsson
af bekknum. Hann var frábær gegn
KR,“ sagði Ágúst en Logi skoraði 16
stig í sigrinum á Íslandsmeistur-
unum, 72-81, í fyrradag og hitti úr
sex af níu skotum sínum.
„Þjálfarar beggja liða hafa gert
mjög vel í vetur. Arnar [Guðjóns-
son] hefur stillt strengina hjá Stjörn-
unni mjög vel saman eftir brösuga
byrjun. Og Einar Árni er gríðarlega
reynslumikill og hefur unnið titla,“
sagði Ágúst að endingu.
ingvithor@frettabladid.is
Margrét Lára
valin í hópinn
FÓTBOLTI Margrét Lára Viðars-
dóttir er í leikmannahópi íslenska
kvennalandsliðsins sem keppir á
hinu árlega Algarve-móti í Portúgal.
Margrét Lára hefur ekki leikið með
landsliðinu síðan í apríl 2017. Hún
sleit krossband í hné skömmu fyrir
EM 2017 og lék ekkert með Val á síð-
asta tímabili. Margrét Lára er hins
vegar komin aftur á ferðina og hefur
leikið vel með Val á undirbúnings-
tímabilinu. Hún er langmarkahæsti
leikmaður íslenska landsliðsins frá
upphafi með 77 mörk í 117 lands-
leikjum.
Dagný Brynjarsdóttir er einnig í
hópnum en hún hefur ekki leikið
með landsliðinu síðan í október
2017. Hún eignaðist sitt fyrsta barn
á síðasta ári.
Landsliðsþjálfarinn Jón Þór
Hauksson valdi 23 leikmenn í Al-
garve-hópinn. Þórdís Hrönn Sig-
fúsdóttir, leikmaður Kristianstad,
er eini nýliðinn í hópnum. Fanndís
Friðriksdóttir var ekki valin en
Sandra María Jessen snýr aftur í
landsliðið eftir að hafa ekki verið
valin í síðasta verkefni; vináttuleik
gegn Skotlandi á La Manga.
Ísland mætir Kanada 27. febrúar
og Skotlandi 4. mars. Tveimur
dögum síðar verður leikið um sæti.
Leikjunum á Algarve-mótinu hefur
verið fækkað úr fjórum í þrjá. – iþs
1
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:0
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
7
-3
C
F
0
2
2
5
7
-3
B
B
4
2
2
5
7
-3
A
7
8
2
2
5
7
-3
9
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K