Fréttablaðið - 16.02.2019, Síða 96
OTAS EIUST-
QUE EAREPE
DOLUPTIOS
EATISSIT
PRAE EVENDIS
ALIS SOLLORR
UNTEMPED
EVENI
APERUNDUNT,
UT
TÓNLIST
Kammertónleikar
Verk eftir Webern, Mozart og
Borodin í flutningi Kordo kvart
ettsins.
Norðurljós í Hörpu
Sunnudaginn 10. febrúar
Ég sá nýlega skopmynd með fyrirsögninni „Ef Richard Wagner hefði verið bloggari“.
Á myndinni sitja Wagnerhjónin
hvort við sína tölvuna. Konan
segir: „Richard elskan, af hverju
getur þú ekki bloggað stutt eins og
aðrir bloggarar?“ Óperur Wagners
eru nefnilega óvanalega langar, og
stórvirkið hans, Niflungahringur-
inn, sem er fjórleikur, tekur um 16
klukkustundir í f lutningi!
Sex bagatellur op. 9 eftir Anton
Webern, sem hinn nýstofnaði
Kordo kvartett lék á debut-tón-
leikum sínum í Hörpu á sunnu-
daginn, voru hins vegar eins og
Twitter-færslur. Hver bagatella var
örstutt, bara nokkrar hendingar,
örlitlir hljómar, smávegis hrynjandi
– og búið. Verkin voru samin út frá
tólftónakerfinu, sem er ómstrítt og
torrætt, enda var tónlistin dálítið
spúkí. Hún var þó prýðilega f lutt.
Hljóðfæraleikararnir eru í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, fiðluleikararnir
Páll Palomares og Vera Panitch,
víóluleikarinn Þórir Már Baldurs-
son og sellóleikarinn Hrafnkell
Orri Egilsson. Þau voru með allt á
hreinu. Leikur þeirra var þrunginn
viðeigandi blæbrigðum sem voru
fagurlega mótuð og skiluðu sér í
notalegri dulúð.
Næst á dagskrá var strengja-
kvartett nr. 21 í D-dúr eftir Mozart.
Hann er sá fyrsti í röð hinna svo-
nefndu prússnesku kvartetta, sem
voru tileinkaðir Friedrich Wilhelm
II Prússakeisara. Tónskáldin í gamla
daga tileinkuðu hefðarfólki gjarnan
verk sín í von um að hafa peninga
upp úr krafsinu. Í þá daga hélt aðall-
inn bláfátæku listafólkinu uppi, líkt
og starfslaun og aðrir styrkir gera í
samtímanum.
Kvartettinn er frísklegur og fjör-
ugur, og fjórmenningarnir léku af
krafti. Mikið var um hröð tóna-
hlaup og voru þau ætíð jöfn og
meitluð. Samspilið var nákvæmt,
heildarhljómur inn þéttur og
safaríkur; útkoman var unaðsleg
áheyrnar.
Ekki síðri var kvartett nr. 2 eftir
rússneska tónskáldið Alexander
Borodin, hvorki verkið sjálft né
f lutningurinn. Borodin, sem var
uppi á nítjándu öldinni, var tón-
skáld í hjáverkum og leit á tónlist-
ina sem hobbí. Hann starfaði sem
læknir og efnafræðingur og fram-
lag hans til lífefnafræði var drjúgt,
hann gerði margar uppgötvanir. Í
dag er hans þó aðallega minnst fyrir
tónlistina.
Í kvartett Borodins skiptu þau
Páll og Vera um sæti, hún var fyrsta
fiðla en hafði verið önnur fiðla í
hinum verkunum. Tónlistin var
hrífandi rómantísk, stefin innileg
og hástemmd, úrvinnsla grunnhug-
myndanna full af ólgandi tilfinn-
ingum. Allt þetta skilaði sér í vönd-
uðum leiknum, sem var pottþéttur
og markviss, túlkunin ávallt gædd
sannfærandi ákefð og tilþrifum.
Borodin samdi kvartettinn til
eiginkonu sinnar og ef marka má
tónlistina var hann greinilega
ákaflega ástfanginn af henni. Hægi
kaflinn er frægur, enda laglínan sér-
staklega grípandi. Kaflinn er vanda-
samur í f lutningi, stundum er leikið
mjög hátt á tónsviðinu, tónarnir eru
naktir og má því ekkert út af bera
ef tónlistin á ekki að verða óhrein.
Leikur fjórmenninganna var þar
svo gott sem fullkominn, tónlistin
var seiðandi fögur í höndum þeirra.
Spennandi verður að fylgjast með
Kordo kvartettinum í framtíðinni
og er hann hér með boðinn vel-
kominn í röð fremstu kammerhópa
landsins. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Afar vel leikið og tónlistin
falleg.
Nýr kvartett kveður
sér hljóðs á Íslandi
Vera Panitch, Páll Palomares, Hrafnkell Orri Egilsson og Þórarinn M. Baldursson.
Til sölu verk eftir Nínu Tryggvadóttur.
Stærð 90x130 sm.
Verkið valdi Nína sem sýnisverk á sýningar í Louisiana Museum of
Modern Art í Danmörku og á sýningu í New York.
Upplýsingar í síma 833-6906.
Samráð um mótun
atvinnustefnu fyrir
Vatnajökulsþjóðgarð
Vatnajökulsþjóðgarði hefur frá upphafi verið ætlað að styrkja byggð og atvinnu-
starfsemi í nágrenni þjóðgarðsins, m.a. með því að hvetja til sjálfbærrar nýtingar
gæða svæðisins en sérstakt ákvæði þess efnis kom inn í lög um þjóðgarðinn við
breytingu árið 2016.
Stjórn þjóðgarðsins vinnur nú að mótun atvinnustefnu og vill tryggja að tekið sé
tillit til sjónarmiða hagsmunaaðila við mótun hennar, samhliða vernd þjóðgarðsins.
Lögð er áhersla á að eiga gott samstarf við alla þá sem nýta þjóðgarðinn beint
eða óbeint til atvinnusköpunar. Þeim og öðrum sem áhuga hafa er boðið til
samráðsfunda þar sem efnisatriði atvinnustefnunnar verða rædd.
Fundir verða haldnir á öllum rekstrarsvæðum þjóðgarðsins, auk þess sem haldinn
verður einn fundur í Reykjavík. Að auki verður boðið upp á vefkönnun þar sem
leitað er eftir sjónarmiðum um sömu efni og tekin verða til umræðu á samráðs-
fundum. Nánari upplýsingar um samráðsfundina og vefkönnunina er að finna á
vef þjóðgarðsins, www.vjp.is.
Samráðsfundir verða haldnir sem hér segir:
• Reykjavík, Hótel Natura við Nauthólsveg 21. febrúar kl. 15-17
• Smyrlabjörgum 25. febrúar kl. 15-17
• Vík í Mýrdal, Kötlusetri 27. febrúar kl. 15-17
• Egilsstöðum, Hótel Héraði 28. febrúar kl. 16-18
• Húsavík, Fosshóteli 5. mars kl. 15-17
Vefkönnunin verður opin frá 21. febrúar til 7. mars.
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Frettabladid.is færir
þér nýjustu fréttir
dagsins og ítarlega
umöllun um málefni
líðandi stundar.
Fylgstu með á
frettabladid.is
Lj ó ð a b ó k i n G a n g v e r k eftir Þorvald
Sigurbjörn Helga-
son kom út nú í
vikunni á vegum
Máls og menningar.
Þorvaldur Sigur-
björn er sjálfstætt
starfandi rithöfund-
ur og sviðshöfundur.
Hann hefur áður sent
frá sér ljóðabókina
Draumar á þvotta-
snúru. Fyrir hand-
ritið að Gangverki
hlaut hann Nýræktar-
styrk Miðstöðvar íslenskra
bókmennta og úr umsögn
bókmenntaráðgjafa þeirr-
ar miðstöðvar eru eftir-
farandi línur ritaðar á
bókarbak: „Gangverk er
heillandi ljóðabók eftir
ungt skáld með merki-
lega lífsreynslu að baki …
Leiðarstefið er tungumál
hjartans, á forsendum
bæði læknavísindanna
og ástar innar, með
þeim hætti að það veitir
einstaka innsýn í líf og
líðan ljóðmælanda.“
– gun
Leiðarstefið er tungumál hjartans
12. ágúst
vakna í svitabaði
draumveruleikinn byrgir sýn
slagverkið í brjóstinu
yfirgnæfir hugsanir
klöngrast úr blautri spenni-
treyju
út á flúorlýstan gang
ég er einn
og hjartað vill komast út.
1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:0
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
5
7
-1
0
8
0
2
2
5
7
-0
F
4
4
2
2
5
7
-0
E
0
8
2
2
5
7
-0
C
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K