Fréttablaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 97
SUMIR SEGJA AÐ
GÍTARINN SÉ HLJÓM-
SVEIT Í HÖNDUNUM Á GÓÐUM
SPILARA!
Myndir sem gerðar eru með aldagamalli tækni eru til sýnis og sölu í
Galleríi Korku á Skólavörðustíg 4.
Að baki sýningunni standa átta
íslenskar konur. Af þeim er ein
hönnuður en hinar sjö ljósmynd-
arar, þeirra á meðal er Christine
Gísladóttir, sem nú nemur listfræði
við Háskóla Íslands.
„Það er mikil vinna lögð í þessar
myndir en hún er skemmtileg. Þetta
er gamalt handverk, bromoil er það
kallað,“ segir Christine og lýsir
aðferðinni lauslega. „Upphaf lega
eru þetta venjulegar ljósmyndir
sem unnar eru í myrkraherbergi
á sérstakan pappír. Þegar þær eru
orðnar þurrar eru þær settar í klór-
blöndu þar sem myndefnið leysist
upp að mestu, síðan er f löturinn
þurrkaður, hitaður, bleyttur og
blekborinn til skiptis.“
Aðferðin gerir myndirnar mjúkar
og lætur þær líta út eins og þær til-
heyri fortíðinni. Christine kannast
við það. „Myndir verða voða tíma-
lausar þegar þær eru meðhöndlaðar
á þennan hátt og helst þyrfti líklega
eitthvert skilti að vera sjáanlegt til
að staðfesta að mynd sé úr nútím-
anum,“ segir hún.
Allar hafa listakonurnar farið
á nokkur námskeið hjá Kanada-
manninum David Lewis sem kennt
hefur aðferðina hér á landi, að
sögn Christine, og hún segir þær
stefna að því að halda áfram. „Það
er nánast eins og hugleiðsla að sitja
við myndirnar, því það tekur alveg
f leiri klukkutíma að búa til svona
mynd og vegur á móti hraða heims-
ins í dag.“
Sýnendur ásamt Christine eru
Ágústa Arna Grétarsdóttir, Bára
Kristjánsdóttir, Jóna Þorvaldsdótt-
ir, Salbjörg Rita Jónsdóttir, Sigríður
Kolbeinsdóttir, Sigrún Hjaltalín og
Vigdís H. Viggósdóttir.
Sýningin verður í Galleríi Korku
til 21. febrúar.
gun@frettabladid.is
Nýjar myndir með eldra yfirbragði
„Það tekur alveg fleiri klukkutíma að búa til svona mynd og vegur á móti
hraða heimsins í dag,“ segir Christine Gísla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ein af
myndum
Christine á
sýningunni.
VIRÐING
JÁKVÆÐNIUMHYGGJA
FRAMSÆKNI
MOSFELLSBÆR
Mosfellsbær byggir þjónustu sína á
áhugasömu og hæfu starfsfólki sem
hefur tækifæri til að rækta þekkingu
sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi
FJÁRFRAMLÖG TIL LISTA-
OG MENNINGARSTARFSEMI 2019
Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar auglýsir
eftir umsóknum um styrki vegna listviðburða
og menningarmála árið 2019
Hér undir falla áður árviss fjárframlög til margvíslegrar
menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra. Umsækjendur geta
verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir,
innan sem utan Mosfellsbæjar. Menningar- og nýsköpunarnefnd
óskar sérstaklega eftir umsóknum sem efla nýsköpun á sviði
lista og menningar.
Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga:
• FJÁRFRAMLÖG TIL ALMENNRAR LISTASTARFSEMI
• FJÁRFRAMLÖG VEGNA VIÐBURÐA EÐA VERKEFNA
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 15. mars 2019
rafrænt á heimasíðu Mosfellsbæjar í samræmi við reglur
og leiðbeiningar sem þar er að finna.
www.mos.is/listogmenning
Nánari upplýsinga í síma 525 6700
Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar
munu liggja fyrir eigi síðar en 2. apríl 2019
og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.
VIRÐING JÁKVÆÐNI FRAMSÆKNI UMHYGGJA
Morgunverðarfundur Vegagerðarinnar:
Umferðaröryggi á þjóðvegum
verður haldinn þann 19. febrúar
Þriðjudaginn 19. febrúar nk. heldur Vega
gerðin morgunverðar fund um umferðar
öryggi á þjóðvegum landsins. Fjallað verður
um þetta mikilvæga málefni af starfs
mönn um Vegagerðarinnar og fulltrúum frá
ferðaþjónustunni og flutningsaðilum.
Allir eru velkomnir.
Fundurinn verður haldinn á Hotel Hilton
Nordica við Suðurlandsbraut í Reykjavík.
Skráning og morgun verður frá kl. 08:00 en
síðan verða flutt fjögur erindi og hefst sá
hluti kl. 08:30, reiknað er með að fundi ljúki
um kl. 10:00. Fundurinn verður í sal FG
á annari hæð.
Allir eru velkomnir en þurfa að skrá sig
á vegagerdin.is
http://www.vegagerdin.is/upplysingarogutgafa/
frettir/umferdaroryggiathjodvegum
Fundargjald er 2.500 kr. og er morgun
verður inn innifalinn.
Dagskrá:
Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður
umferðardeildar Vegagerðarinnar
Einar Pálsson, forstöðumaður
þjónustudeildar Vegagerðarinnar
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar
Hörður Gunnarsson, forstjóri Olíudreifingar
fyrir flutningasvið Samtaka verslunar og
þjónustu.
Umræður og fyrirspurnir
Auður Þóra
Einar
Jóhannes Þór
Hörður
Laufey Sigurðardóttir fiðluleik-ari og Páll Eyjólfsson gítarleik-ari halda tónleika í Hömrum í
Hofi á Akureyri á morgun, sunnu-
daginn 17. febrúar, klukkan 17.
„Við erum með fjölbreytta dag-
skrá sem nær allt frá barokktím-
anum til dagsins í dag,“ byrjar Páll,
þegar hann er inntur eftir því hvað
þau Laufey ætli að spila. „Við erum
til dæmis með verk eftir Pergo-
lesi, sem er barokkhöfundur og
Paganini, ítalskan fiðlusnilling og
tónskáld.“
Voru gítarar á barokktímanum?
„Nei, ekki eins og nútímagítarar
eru í dag en barokksónötur voru
spilaðar á alls konar hljómahljóð-
færi. Öll verkin, nema tvö, hef ég
umritað fyrir gítarinn frá píanói
og f leiri hljóðfærum.“
Það hlýtur að vera list út af fyrir
sig?
„Þú segir það. Það er að minnsta
kosti heilmikil vinna.“
Spurður hvort gítarinn megi sín
einhvers í samkeppni við fiðluna
svarar Páll: „Þetta er engin sam-
keppni, heldur samvinna, enda
heitir eitt lagið Samtvinna, það
samdi John Speight sérstaklega
fyrir okkur og við frumfluttum það
í júlí 2018 í Fuglasafninu í Mývatns-
sveit. Þar var gaman að spila fyrir
fuglana og fólkið.“
Frédéric Chopin og John Willi-
ams eru meðal höfunda á efnis-
skránni, að sögn Páls. „Ég verð líka
að nefna eitt frábært tónskáld, það
er hin franska Chaminade sem
fæddist í kringum miðja 19. öld og
lifði fram undir miðja þá 20. Það
var erfitt fyrir hana að fá að læra
á hljóðfæri á sínum tíma, hún átti
bara að vera heima að sinna konu-
hlutverkinu, en braust til mennta.
Við spilum þrjú verk eftir hana.
Svo erum við með sígaunaverk
eftir uppáhaldsf iðluleikarann
hennar Laufeyjar, Fritz Kreisler,
og endum á titillagi myndarinnar
Schindler’s list, sem er samið fyrir
fiðlu og hljómsveit en sumir segja
að gítarinn sé hljómsveit í hönd-
unum á góðum spilara!“
Það er Tónlistarfélag Akureyrar
sem stendur fyrir þessum tón-
leikum í samstarfi við Menningar-
félag Akureyrar og Félag íslenskra
tónlistarmanna. gun@frettabladid.is
Engin samkeppni heldur samvinna
Þau Laufey og Páll hófu samstarf árið 1986 og eiga að baki marga konserta,
upptökur fyrir útvarp og sjónvarp og einn geisladisk, Ítölsk tónlist frá 1996.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 43L A U G A R D A G U R 1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
1
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:0
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
7
-0
6
A
0
2
2
5
7
-0
5
6
4
2
2
5
7
-0
4
2
8
2
2
5
7
-0
2
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K