Fréttablaðið - 29.01.2019, Blaðsíða 9
Ég bið Árna Björnsson
velvirðingar á að hafa rang-
hermt úr bókinni hluta frá-
sagnarinnar.
Ágæti Dagur, ég á góðan vin sem heldur því fram að Göbbels hafi endurholdgast
sem hross í Skagafirði með rop-
vanda. Ropið er auðvitað fyrst og
fremst hljóð en það á rætur sínar
í lofti sem er þrýst upp í gegnum
barkann. Þess ber að geta að þetta
loft er sjaldnast eitrað að því marki
sem sú lofttegund var sem Göbbels
og félagar hans notuðu til þess
að fremja glæpi á saklausu fólki.
Roparinn gjöreyðileggur hins
vegar andann í öllum hesthúsum
sem hann kemur í.
Þetta er bara eitt dæmi um það
hvernig hin ýmsu vandamál hafa
tilhneigingu til þess að skjóta upp
kollinum í breyttri mynd og á
öðrum stað. Göbbels blaðraði út
í eitt til þess að hræða og hrekkja.
Hrossið ropaði jafnt nótt sem
nýtan dag og ég held því fram að
það hafi gert það í þeim tilgangi
að hrekkja. Ég er nefnilega einn af
þeim sem hafa reynt hross að ein-
beittum brotavilja, þau hafa hent
mér yfir girðingar og ofan á hraun-
grýti í þeim velskilgreinda tilgangi
að lækka í mér rostann. Það er sem
sagt íslenska hestinum að þakka að
ég er allra manna hógværastur.
Það vandamál sem skaut upp
kollinum hér í henni Reykjavík fyrir
skömmu minnir óhjákvæmilega á
svipað vandamál sem var á ábyrgð
herramanns sem heitir Oliver North
og vann fyrir Ronald Reagan, leik-
ara frá Kaliforníu, sem varð forseti
Bandaríkjanna í raun og veru þótt
hann hafi sjálfur alltaf staðið í þeirri
trú að hann væri bara að leika for-
setann. Oliver var háttsettur í hern-
um og vann hin ýmsu myrkraverk
fyrir Reagan en það frægasta var
þegar hann seldi Írönum vopn þrátt
fyrir að Bandaríkjaþing hefði lagt
blátt bann við því, og notaði tekjur
af sölunni til þess að fjármagna upp-
reisn gegn sósíalískri ríkisstjórn í
Níkaragva. Þegar þetta komst upp
var Oliver staðinn að því að mata
pappírstætara á öllum gögnum sem
lutu að málinu. Þetta varð til þess að
í áratug á eftir voru litlir pappírstæt-
arar um heim allan kallaðir Olli en
þeir stóru Oliver North.
Nú skaut sams konar vandamál
upp kollinum á skrifstofu þinni
þegar þú lést eyða tölvupóstum
sem gengu milli þín og Hrólfs sem
var yfirmaður eignasýslu borgar-
innar. Þetta er sami Hrólfur og hefur
lýst því yfir að hann beri ábyrgð á
braggasukkinu við Nauthólsvík.
Það var engin tilviljun sem réði því
hvaða tölvupóstum var eytt, það var
ekki bara einhver sem af slysni ýtti á
takka, vegna þess að sömu póstum
var eytt af eftirritunardiskum. Það
var greinilega einbeittur vilji að
baki eyðingu póstanna.
Sú skýring sem þú veittir upphaf-
lega á því að póstunum hafi verið
eytt var sú að Hrólfur ynni ekki
lengur hjá borginni. Þetta mátti
sem sagt skilja sem svo að þér þætti
það ósköp eðlilegt að þegar menn
í opinberum störfum hyrfu frá
þeim væri tölvupóstum sem lúta að
vinnu þeirra eytt. Mér skilst að þetta
stangist jafnvel á við lög og gerir
það í það minnsta við heilbrigða
skynsemi og er aldeilis fáránlegt af
stjórnmálamanni að láta herma upp
á sig þvílíkt axarskaft. Það er nefni-
lega næsta víst að það gæti ekkert
það verið í tölvupóstunum eyddu
sem væri verra fyrir þig en að vera
staðinn að því að eyða þeim.
Þegar einhverjir fóru að efast um
að póstunum hefði verið eytt stað-
festi innri endurskoðun borgar-
innar að þeim hefði svo sannarlega
verið eytt, en bættu því við að þótt
þeim hefði verið eytt þyrfti það alls
ekki að hafa verið af annarlegum
hvötum. Þar sýndi innri endur-
skoðun borgarinnar að hún hefur
snöggtum meira ímyndunarafl en
ég. Þótt líf mitt lægi við gæti ég ekki
nefnt aðra þá ástæðu fyrir því að
eyða svona póstum en þá sem hlyti
að teljast annarleg.
Svo er auðvitað hitt að þegar þú
gafst skýringu á því hvers vegna
póstunum var eytt er ekki ólíklegt
að menn hafi misskilið þig. Það er
nefnilega oft á tíðum engu auðveld-
ara að finna meiningu í því sem þú
segir en í ropanum úr endurholg-
uðu skepnunni norður í Skagafirði.
Kannski varst þú að biðjast afsök-
unar á ódæðinu og tjá vilja þinn
til þess að bæta fyrir það. Ef það
reynist rétt er enginn vandi að laga
þetta. Þessir póstar sitja að öllum
líkindum enn á harða drifinu á
tölvunni þinni og þarf ekkert meira
til en nokkra klukkutíma fagmanna
til þess að ná í þá. Það væri ekki bara
skynsamlegt heldur sjálfsagt að þú
létir sækja tölvupóstana þannig að
borgarbúar sjái að það sé ekkert
óhreint í því pokahorni. Ef þú gerir
það ekki ertu í raun réttri búinn
að játa glæpinn og segja okkur að
í póstunum hafi verið nokkuð það
sem þoli ekki dagsins ljós og sé svo
mikilvægt að fela að þú sért reiðu-
búinn að fórna til þess borgarstjóra-
embættinu.
Það er hins vegar engin ástæða
fyrir þig til þess að örvænta vegna
þess að Oliver North er búinn að
sanna að það er líf eftir gagnaeyð-
ingu. Hann var um daginn kosinn
forseti NRA (National Rifle Associ-
ation) sem eru samtök sem berjast
fyrir því að Bandaríkjamenn megi
allir eiga þau tæki sem reynast þeim
svo vel við að drepa hver annan.
Höfuðborg fyrir tölvupóst –
Opið bréf til borgarstjóra Reykjavíkur
Kári Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar erfða-
greiningar
Í pistli mínum í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag fór ég helst til glannalega (og rangt) með
stórskemmtilega frásögn úr stór-
virkinu Saga daganna eftir dr. Árna
Björnsson. Í gær birtist í blaðinu
athugasemd frá höfundi þar sem
hann átelur mig fyrir þessi mistök
og skýrir frá hinu rétta í málinu.
Ég bið Árna Björnsson velvirðing-
ar á að hafa ranghermt úr bókinni
hluta frásagnarinnar. Sömuleiðis
vona ég að ekki falli blettur á nafn
síra Jóns Halldórssonar þótt ég hafi
reynt að vera fyndinn á hans kostnað
í skrifum mínum. Sagnfræðingar
framtíðarinnar hafa vonandi vit á
því að taka pistlaskrifum mínum
almennt með miklum fyrirvara, en
leggja trúnað sinn frekar við vand-
aða fræðimenn á borð við Árna.
Dr. Árna Björnssyni þakka ég
fyrir leiðréttinguna—og einnig fyrir
ævistarf sitt sem hefur verið mér
óþrjótandi uppspretta skemmtunar
og fræðslu í gegnum tíðina. Ég skal
vanda mig betur næst.
Afsakið ruglinginn
Þórlindur
Kjartansson
Þessir póstar sitja að öllum
líkindum enn á harða drif-
inu á tölvunni þinni og þarf
ekkert meira til en nokkra
klukkutíma fagmanna til
þess að ná í þá. Það væri ekki
bara skynsamlegt heldur
sjálfsagt að þú létir sækja
tölvupóstana þannig að
borgarbúar sjái að það sé
ekkert óhreint í því poka-
horni.
Ford EcoSport býður upp á mikla veghæð sem kemur sér vel í snjó
og við aðrar erfiðar aðstæður. Þú situr líka hærra og
það er mun þægilegra að ganga um bílinn.
Ford EcoSport Titanium S er sérlega vel búinn
m.a. leðuráklæði á sætum, 17” álfelgum,
Xenon aðalljósum, 8” snertiskjá,
tölvustýrðri loftkælingu, 7 hátölurum,
bakkmyndavél, SYNC3 hljómtækjum
með raddstýringu og neyðarhringingu,
ESP stöðugleikakerfi með spólvörn,
leðurklætt fjölstillanlegt stýri,
Apple CarPlay og Android Auto.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
FORD ECOSPORT
HÁSETINN
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford EcoSport
ford.is
3.850.000KR.
FORD ECOSPORT TITANIUM S SJÁLFSKIPTUR:
FORD ECOSPORT VERÐ FRÁ: 3.050.000 KR.
Ford_EcoSport_5x15_20190121_END.indd 1 21/01/2019 11:12
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 2 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9
2
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
B
-A
7
6
C
2
2
2
B
-A
6
3
0
2
2
2
B
-A
4
F
4
2
2
2
B
-A
3
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K