Fréttablaðið - 29.01.2019, Blaðsíða 2
Veður
Norðaustan og norðan 8-15 í dag
með éljum, en víða bjart S- og V-
lands. Frost 1 til 10 stig og kólnandi
veður, einkum inn til landsins.
SJÁ SÍÐU 14
Gengu hart fram gegn göngugötu
Verslunar- og fasteignaeigendur við Laugaveg mættu vígreifir til rýnifundar í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar sem markmiðið var að ræða sjónarmið hags-
munaaðila um varanlegar göngugötur. Andstæðingum hugmynda um göngugötur var mörgum hverjum heitt í hamsi í umræðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
STJÓRNSÝSLA Þingvallanefnd ákvað
í nóvember að ganga ekki inn í við-
skipti með steypugrunn innan frið-
landsins á bakka Þingvallavatns.
Um er að ræða grunn á lóðinni
Valhallarstíg nyrðri 7 sem áður hefur
verið í fréttum, síðast 2017 er Þing-
vallanefnd snerist hugur og ætlaði að
ganga inn í kaup Gísla Haukssonar í
Gamma á grunninum af hjónunum
Boga Pálssyni og Sólveigu Dóru
Magnúsdóttur fyrir 70 milljónir
króna. Fjármálaráðuneytið sagði á
endanum ekki forsendur til að kaupa
eignina „miðað við það verð sem lagt
hefur verið til grundvallar“. Gekk Gísli
einnig úr skaftinu og grunnurinn var
því áfram í eigu Boga og Sólveigar.
Þingvallanefnd barst í október í
haust bréf frá Boga. Hann hafði þá
fengið tilboð í húsgrunninn frá föður
sínum, Páli Samúelssyni. Páll var eig-
andi Toyota-umboðsins á Íslandi til
2005. Þingvallanefnd ákvað sem fyrr
segir að nýta ekki forkaupsréttinn.
Ekki er unnt að sjá að þessu sinni
hvaða viðskiptum ríkið er að hafna
því strikað er yfir kaupverðið í afriti
af skjölum sem send voru Frétta-
blaðinu. „Nöfn og fjárhæðir hafa
verið teknar út með vísan til 9. gr.
upplýsingalaga,“ útskýrir þjóðgarðs-
vörður. „Óheimilt er að veita almenn-
ingi aðgang að gögnum um einka- eða
fjárhagsmálefni einstaklinga sem
sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari,
nema sá samþykki sem í hlut á,“ segir
í umræddri lagagrein.
Samkvæmt fasteignaskrá var gefið
út afsal fyrir eigninni til Páls Samúels-
sonar um miðjan desember.
Þegar málið kom á borð Þing-
vallanefndar á árunum 2016 og
2017 þótti verulegur vafi leika á því
að framkvæmdir Boga og Sólveigar á
árunum fyrir hrun samræmdust skil-
málum. Í bréfi Ólafs Arnar Haralds-
sonar, þáverandi þjóðgarðsvarðar,
til forsætisráðuneytisins í október
2016 rakti Ólafur Örn að Bogi og
Sólveig hefðu látið rífa sumarhús á
lóðinni og í stað þeirra hefði verið
gerður 133,7 fermetra grunnur úr
steinsteypu á stöplum með kjallara.
Stærð kjallarans væri ekki innifalin í
tilgreindri stærð.
„Þingvallanefnd telur að þar sem
sumarhúsin voru rifin og steyptur
var í stað þeirra grunnur á stöplum
ásamt kjallara séu hugsanlega í reynd
brostnar forsendur fyrir því að endur-
bygging sumarhúsanna teljist til
þeirra lagfæringa eða breytinga sem
þegar var búið að samþykkja.“
Í svarbréfi Einars Á. E. Sæmund-
sen, núverandi þjóðgarðsvarðar, til
Boga Pálssonar þar sem tilkynnt er
um að fallið sé frá forkaupsréttinum
er ekki minnst á efasemdir um að
framkvæmt hafi verið í heimildar-
leysi á lóðinni. Hins vegar leiðbeint
um hvernig halda megi bygging-
unni áfram. Til þess þurfi að sækja
um nýtt byggingarleyfi hjá Blá-
skógabyggð þar sem gamla leyfið sé
fallið úr gildi. Einnig þurfi samþykki
Þingvallanefndar fyrir öllum fram-
kvæmdum í þjóðgarðinum.
Grunnurinn er á lóð í eigu ríkisins.
Leigusamningur var endurnýjaður
árið 2011 til tíu ára. gar@frettabladid.is
Kaupir umdeilda eign
sonarins á Þingvöllum
Forkaupsréttur ríkisins að steypugrunni í þjóðgarðinum á Þingvöllum var ekki
nýttur og hefur Páll Samúelsson keypt af syni sínum og tengdadóttur. Verðið er
ekki gefið upp. Grunnurinn er á lóð í eigu ríkisins með leigusamning til 2021.
Nöfn og fjárhæðir
hafa verið teknar
út með vísan til 9. gr.
upplýsingalaga.
Einar Á. E. Sæmundsen,
þjóðgarðsvörður á Þingvöllum
Þingvallanefnd vildi kaupa 2016 og breyta í nestispall. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐARFULL BÚÐ
AF NÝJUM
VÖRUM
KJÓLL
8.590 kr .
SVÍÞJÓÐ Fjöldi rúmenskra hjúkr-
unarfræðinga, sem ráðnir hafa verið
til starfa í Svíþjóð, er með útskriftar-
skírteini frá skólum í Rúmeníu án
þess að hafa stundað þar nám. Frá
þessu er greint í fréttaskýringaþætti
sænska ríkissjónvarpsins.
Skólarnir hafa tekið við greiðsl-
um frá „nemendunum“, innritað þá
í nám og útskrifað án þess að þeir
hafi tekið þátt í kennslunni.
Stjórnvöld í Rúmeníu hyggjast
nú skoða alla skóla í landinu sem
bjóða upp á nám í heilbrigðisgeir-
anum. – ibs
Keyptu fölsuð
prófskírteini
SAMGÖNGUR Hámarkshraði verður
lækkaður niður í 50 km/klst. á 75
einbreiðum brúm á þjóðvegum
landsins á næstunni. Í þeim hópi
eru allar einbreiðar brýr á hring-
veginum. Breytingin tekur gildi um
leið og skipt hefur verið um skilti við
brýrnar. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Vegagerðinni.
Ákvörðun um þessa breytingu var
tekin af yfirstjórn Vegagerðarinnar
fyrr í þessum mánuði. Í tilkynning-
unni kemur einnig fram að stefnt sé
að fleiri öryggisaðgerðum við brýr á
þjóðvegum landsins. Ekki er þó vikið
að því hvaða aðgerðir það eru sem
þar um ræðir.
Meðal brúa sem eru í þessum
hópi má nefna brýr yfir Jökulsá á
Sólheimasandi, Svínafellsá, Breið-
balakvísl og Skaftafellsá. – jóe
Hámarkshraði
á einbreiðum
brúm lækkar
VÍSINDI Ekki liggur fyrir hver afdrif
hvalveiðiskýrslu Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands (HHÍ) verða. Stjórn
HHÍ fundaði í liðinni viku vegna
skýrslunnar en kemur almennt
saman til fundar einu sinni á ári.
„Forstöðumanni HHÍ var falið að
taka saman ábendingar sem borist
hafa og leggja þær fyrir stjórnina sem
síðan mun taka afstöðu til þeirra á
næsta fundi,“ segir Daði Már Kristó-
fersson, formaður stjórnar HHÍ. Ekki
er víst hvenær þeirri vinnu lýkur. – khn
Taka saman
ábendingar
vegna skýrslu
Daði Már
Kristófersson.
Rúmenar fengu útskriftarskírteini
gegn greiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
B
-6
C
2
C
2
2
2
B
-6
A
F
0
2
2
2
B
-6
9
B
4
2
2
2
B
-6
8
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K