Fréttablaðið - 29.01.2019, Blaðsíða 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Til eru fréttir sem setja sálar-lífið á annan endann. Þessu fengu Spánverjar að finna
fyrir í þrettán daga þegar örlögin
undu fram eina þá mestu harm-
sögu sem hægt er að hugsa sér.
Tveggja ára drengur, Julen að
nafni, dettur í borholu og liggur á
sjötíu metra dýpi þar sem ekki er
hægt að ná til hans. Brunnurinn er
á toppi fjalls nokkurs við bæinn
Totalán og var nú hafist handa við
að grafa eina þrjátíu metra niður
í fjallið og þaðan var síðan boruð
hola samhliða þeirri sem barnið lá
í. Því næst voru gerð göng úr þeirri
nýju yfir í þessa ólukkans holu
sem boruð hafði verið í leyfisleysi
og op hennar, einhverra hluta
vegna, óvarið fyrir harmleikjum
sem þessum. Að þessu loknu
var loks hægt að komast að líki
drengsins.
En allir harmleikir bjóða líka
upp á nýja von og hana er ekki
erfitt að finna í þessu tilviki.
Með samtakamætti allra þeirra
sem að þessu komu, og lágu þar
íbúar þorpsins ekki á liði sínu,
var mögulegt að vinna verk á
nokkrum dögum sem undir venju-
legum kringumstæðum hefði
tekið nokkra mánuði. Það er að
segja, einn ganginn enn sannast að
þegar mikið liggur við er hægt að
áorka því sem áður var talið ofar
mannlegum mætti. Þetta er afar
holl hugvekja nú þegar heimurinn
er á heljarþröm sökum græðgi
okkar. Hins vegar, hvað þessa
veröld varðar þá er nokkuð síðan
að þörfin á þessum samtakamætti
gerði vart við sig en við erum
ennþá að funda um málið og að
standa í stappi við þverhausa eins
og Trump sem halda að til ein-
hvers sé að byrgja brunninn eftir
að barnið er dottið ofan í hann.
Julen og framtíð
heimsins
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
BAKÞANKAR
Aðeins í takmarkaðan tíma
SUPREME
með kjúklingabaunum og kínóa
2
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
B
-6
7
3
C
2
2
2
B
-6
6
0
0
2
2
2
B
-6
4
C
4
2
2
2
B
-6
3
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K