Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Side 7
7LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017
Líkaminn er rauði þráðurinn í allri minni list-
sköpun. Þegar sköpunarferli listaverka minna
hefst er skynjun líkamans mikilvægust og í raun
grundvöllur fyrir því að þörfin til sköpunar sé til
staðar. Líkaminn gegnir mörgum hlutverkum í
þessu samhengi; hann er uppsprettan, viðfangið,
útkoman og jafnvel listaverkið sjálft. Hann kemur
mér á sporið, heldur mér við efnið þegar hinn
rökvísi hugur efast og er endalaus brunnur sem ég
sæki í. Þannig er líkaminn og listin tengd órjúfan-
legum böndum.
(Sunna María Schram, 2010)
Þessi orð skrifaði ég í inngangi að lokaritgerð
minni, Listin í líkamanum - líkaminn í listinni, úr
myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010.
Þarna hafði ég fengist við listsköpun í 4 ár og var
falið það verkefni að fjalla um eigin verk í lokarit-
gerð til BA prófs. Þegar ég hafði tekið saman
grunnstefin mín og þá hugsun sem tengdi saman
hugðarefni mín var svarið nokkuð ljóst. Líkaminn var rauði þráðurinn
en efnistökin fólust í hugmyndinni um valdeflingu kvenna og feminíska
nálgun á líkamann, ekki síst sprottið frá jákvæðri fæðingarupplifun minni
tveimur árum áður. Ég velti því fyrir mér á þessum tíma hvaða forsendur
lægju að baki því að sköpun listaverks hæfist, áður en fullur skilningur
í formi orða, hugmynda eða kenninga mótast í huga þess sem skapar.
Líkamlega skynjaði ég þörf til sköpunar og framkvæmda og upplifði
þá tilfinningu að standa frammi fyrir tómarúmi sem skapaði tækifæri til
uppfyllingar. Þetta er kallað í fyrirbærafæðinni forskynjun holdsins eða
fagurfræði villtu hugsunarinnar þar sem grunnforsenda sköpunar er
líkaminn. Með því að treysta líkamanum opnast tækifæri til frumsköp-
unar og sterkrar líkamlegrar upplifunar.
Strax eftir útskrift úr LHÍ eignaðist ég annað barn mitt, í fallegri og
magnaðri heimafæðingu, en í kringum það ferli var ég svo heppin að
kynnast Áslaugu Hauksdóttur, ljósmóður. Sáði hún fræi hjá mér um að
láta draum minn rætast um að verða ljósmóðir. Ég fann þó að mig vantaði
enn nokkur verkfæri í verkfærakassann minn áður en ég gæti látið þann
draum rætast. Í kjölfarið sat ég einn vetur tíma í kynjafræði við Háskóla
Íslands og lærði þar að hið persónulega er pólitíkst og gerði mér grein
fyrir því að mín fyrsta feminíska ákvörðun í lífinu hafði falist í því að
treysta líkama mínum og innsæi í allri minni sköpun, í víðum skilningi.
Eftir eitt ár í meistaranámi við skúlptúrdeild
Kunsthochschule Berlin, Weissensee fannst mér
ég fyrst tilbúin til þess að hefja ferðalagið að því
að verða ljósmóðir.
Fyrsta önnin í hjúkrunarfræði var ótrúlegur
tími. Ég sat á bókasafni í Berlín, hlustaði á fyrir-
lestra frá Háskólanum á Akureyri og gerði mér
grein fyrir því að í fyrsta sinn fannst mér allt vera
rétt og að meika sens. Fannst mér öll púslin vera
að falla á rétta staði og hefur sú tilfinning bara
vaxið frá þeim tíma.
Sú reynsla sem ég tek með mér í ferðalagið í
átt að ljósmóðurdraumnum er fyrst og fremst sú
að treysta innsæinu. Ég hef einnig óbilandi trú á
konum og að fæðingar þeirra geti verið uppspretta
og forsenda þess að varðveita og viðhalda krafti
þeirra og sjálfstæði! Girlpower!
Ég upplifi því að snertiflötur hugmyndafræði
þessara tveggja faga, myndlistar og ljósmóður-
listar, sé augljós. Að líkaminn kunni, geti og skilji
hvert hans hlutverk er og sé alltaf grunnforsendan. Þegar öllu er á botn-
inn hvolft tók ég kannski ekki þá u-beygju sem ég hélt í upphafi, heldur
meira eins og z-beygju. Eða kannski var þetta allt saman rökrétt framhald
þar sem eitt leiddi af öðru og varð að þessu hressilega ferðalagi sem enn
sér ekki fyrir endann á.
Sunna María Schram,
myndlistarmaður og ljósmóðurnemi
LJÓSMÓÐURLIST // LIST LJÓSMÓÐUR
L I S TAV E R K Á F O R S Í Ð U
FORSÍÐAN – UM MYNDLISTARMANNINN OG VERKIÐ
Einkasýningar
2010 - Crymo gallerí, Hér sé stuð – hálfvitinn
Samsýningar
2013 - Stiftung Bauhaus Dessau, Hello Goodbye
2011 - Monty Abn Belgía, The Dimons that are inside me
2010 - UKS Osló, Bad Moon Rising
2010 - Skaftfell, Seyðisfirði, The Flag Factory
2010 - Salthúsið, Stöðvarfirði, Æringur
2009 - Kaffistofan, nemendagallerí LHÍ, Er þetta ekki
bara helvíti fínt?
2008 - Hallgrímskirkja, Bók bókanna
2006 - Gallerí Gyllinhæð, mótamælasýning vegna
Kárahnjúkavirkjunnar
Sunna María Schram lauk BA námi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands
árið 2010. Hún hefur tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis en hún var
einnig nemandi í Kunsthochschule Berlin, Weissensee í Þýskalandi í skúlptúr-
deils skólans á mastersstigi. Hún lauk BS. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskól-
anum á Akureyri vorið 2017. Nú er hún nemandi á 1. ári í ljósmóðurfræði við
Háskóla Íslands.
Sunna María segir um verkið:
„Meðganga og barnsfæðingar voru mér ofarlega í huga þegar ég skapaði verk
mitt sem ber heitið Fléttukjóllinn, árið 2007, þá barnshafandi af frumburðinum
mínum. Þarna hafði ég skapað fléttukjólinn í hálfgerðri leiðslu þar sem líkam-
inn tók yfir og framkvæmdi nánast að mér óafvitandi, í tvennum skilningi.
Meðganga mín og Fléttukjóllinn urðu hliðstæður. Undirmeðvitundin fékk að
ráða för, eitt leiddi að öðru og einhvern veginn myndaðist verkið af sjálfu sér“.