Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Síða 15

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Síða 15
15LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017 hafa verið birtar niðurstöður sem sýna að aldur við fyrstu blæðingar, trú kvenna á að blæðingar hafi áhrif á hegðun og notkun verkjalyfja við tíðaverkjum hefur áhrif í þá veru að konur eru líklegri til að hlutgera sig (Sveinsdóttir, 2017). Hér er athyglinni beint að tíðaverkjum og þeir skoðaðir í ofangreindu samhengi. Tíðaverkir Tíðaverkir hefjast venjulega einu til tveimur árum eftir fyrstu blæðingar um svipað leyti og stöðugleiki kemst á tíðahringinn (Kannan, Chapple, Miller, Claydon og Baxter, 2015). Að öllu jöfnu hefjast verkirnir nokkrum klukkustundum áður en blæðingar hefjast og standa yfir í hálfan sólarhring og allt upp í þrjá sólarhringa. Verkirnir geta verið misslæmir frá einni konu til annarrar en styrkleika tíðaverkja má flokka eins og aðra verki í væga, meðalslæma og mjög slæma (Kural, Noor, Pandit, Joshi og Patil, 2015). Vægir verkir eru taldir valda óþægindum eða tilfinningu um vanlíðan en hafa ekki áhrif á starf eða nám konunnar. Meðalslæmir og slæmir verkir geta hins vegar truflað persónulegt og félagslegt líf kvenna, dregið verulega úr framtakssemi þeirra og leitt til fjarvista úr vinnu eða skóla (Weissman, 2004). Ekki er algengt að truflunin sé mjög alvarleg (Ju, Jones og Mishra, 2014). Tíðaverkir virðast mjög algengir en greint hefur verið frá því að allt að 93% kvenna fái þá (Habibi, Huang, Gan, Zulida og Safavi, 2015; Kural o.fl., 2015) og má ætla að 10-33% kvenna fái slæma tíðaverki (Aktaş, 2015; Habibi o.fl., 2015; Kural o.fl., 2015; Patel, Tanksale, Sahasrabhojanee, Gupte og Nevrekar, 2006). Hérlendis hefur algengi tíðaverkja mælst 78,4% hjá háskólastúdentum á aldrinum 19 til 48 ára (Herdís Sveinsdóttir, Ragna Ásþórsdóttir og Ragnheiður Halldórsdóttir, 2015). Konur leita sjaldan aðstoðar vegna tíðaverkja (Aktaş; 2015, Fraser, Mansour, Breymann, Hoffman, Mezzacasa og Petraglia, 2015) þó flestar með verki greini frá því að einkennin hamli þeim við ýmsar daglegar athafnir og íþróttaiðkun og hafi neikvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan (Grandi o.fl., 2012; Parker, Sneddon og Arbon, 2010; Seven, Güvenç, Akyüz og Eski, 2014). Ýmsir áhættuþættir hafa verið nefndir fyrir slæma tíðaverki en niðurstöður rannsókna eru þó misvísandi. Ungur aldur við fyrstu blæðingar hefur tengst verri tíðaverkjum (Gagua, Tkeshelashvili og Gagua, 2012; Grandi o.fl., 2012; Patel o.fl., 2006; Khodakarami, Masoomi, Faradmal, Nazari, Saadati og Sharifi, 2015) þótt það sé ekki algilt (Al-Jefout, Seham, Jameel, Randa og Luscombe, 2015). Miklar tíðablæðingar, fleiri dagar á blæðingum, reykingar, offita, áfengisneysla, mikil neysla koffíns, sykurs og salts, barnleysi, hreyfingarleysi, of hár eða of lágur líkamsþyngdarstuðull og ættgengi og hefur allt verið nefnt sem áhættuþættir tíðaverkja (Gagua o.fl., 2012; Grandi o.fl., 2012; Lee, Chen, Lee og Kaur, 2006; Ozerdogan, Sayiner, Ayranci, Unsal og Giray, 2009; Navvabi Rigi o.fl., 2012). Rannsóknir á sambandi verkjanna við óreglulegar blæðingar hafa ekki staðfest slíkt samband (Patel, Karelia og Piparva, 2016; Shah, Monga, Patel, Shah og Bakshi, 2013). Heilsutengd lífsgæði (HL) hafa lítið verið skoðuð í samhengi við blæðingar, en hugtakið lífsgæði er mikið notað sem útkomubreyta í hjúkrunarrannsóknum í þeim tilgangi að lýsa heildarlíðan einstaklinga (Fulton, Miller og Otte, 2012). Við mat á HL er verið að meta skoðun fólks á gæðum lífs síns og hvernig heilsufar þess hefur áhrif þar á. Hugtakinu er ætlað að ná yfir almenna heilsu, líkamlega og andlega þætti, tilfinningalíf, vitræna þætti, hlutverk og félagslega færni og innihalda jákvæða og neikvæða þætti lífsins (Kolbrún Albertsdóttir, Helga Jónsdóttir og Björn Guðbjörnsson, 2009). Engin rannsókn fannst þar sem mælitækið Short Form 36 Health Survey (SF-v36), sem er notað í þessari rannsókn, var notað til að skoða tíðaverki og HL. Þetta mælitæki er eitt algengasta tækið til að mæla HL og hefur þann kost að hafa verið notað hjá mismunandi hópum og við margs konar aðstæður (Poradzisz og Florczak, 2013). Hins vegar fundust þrjár rannsóknir þar sem notaðar voru aðrar og einfaldari skilgreiningar á lífsgæðum og niðurstöður þeirra sýndu að tíðaverkir hafa áhrif á almenn lífsgæði (Onur o.fl., 2012; Unsal, Ayranci, Tozun, Arslan og Calik, 2010; Weisberg, McGeehan og Fraser, 2016). Viðhorf kvenna til blæðinga hafa verið rannsökuð meðal mismunandi hópa og í mismunandi menningarsamfélögum og gefa niðurstöður vísbendingu um að viðhorf til blæðinga hafi áhrif á og stýri jafnvel hegðan kvenna (Herdís Sveinsdóttir o.fl., 2015; Sveinsdóttir, 2017). Rannsóknir á viðhorfum til blæðinga og tíðaverkja benda til þess að konur með mikla tíðaverki eigi erfiðara með að sjá tíðir sem eðlilegt fyrirbæri (Sönmezer og Yosmaoğlu, 2014; Rempel og Baumgartner, 2003; Schooler o.fl., 2005). Hugtakið hlutgerving (e. objectification) vísar til menningar sem hlutgerir einstaklinga. Oftast eru það konur sem eru hlutgerðar og hefur það þau áhrif að á einhverju stigi mótast félagsþroski stúlkna og kvenna þannig að þær fara að meðhöndla sjálfar sig sem hlut sem sé metinn eftir útlitinu. Þær fara að samsama sig sjónarmiði þess sem hlutgerir þær, verða ofuruppteknar af líkamlegu útliti sínu sem þær telja að stjórni því hvernig þeim farnast í lífinu og fara að líta á líkamann sem hlut sem þær líta stöðugt gagnrýnum augum. Afleiðingarnar geta birst í skömm á eigin líkama og að forðast að samsama sig honum (Herdís Sveinsdóttir o.fl., 2015; Sveinsdóttir, 2017; Slater og Tiggemann 2015). Engin rannsókn fannst þar sem tíðaverkir voru skoðaðir í samhengi við hlutgervingu. Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar eru í framvarðasveit heilbrigðiskerfisins og í lykilaðstöðu til að hafa áhrif á viðhorf fullorðinna kvenna jafnt sem ungra stúlkna sem eru að hefja blæðingar. Það er því mikilvægt að þær þekki og taki þátt í gagnrýninni umræðu um blæðingar, viðhorf til þeirra, hlutgervingu, heilsutengd lífsgæði og áhrif þessa á líf kvenna. Þessi rannsókn er innlegg í þá umræðu. Markmið úrvinnslunnar hér er að a) skoða samband heilsutengdra lífsgæða, viðhorfa til blæðinga, hlutgervingar, upphafs blæðinga, núverandi blæðinga, líkamsþyngdar og tíðni líkamsræktar hjá íslenskum konum á aldrinum 18 til 40 ára við tilvist tíðaverkja; b) greina hvað spáir fyrir um styrk tíðaverkja hjá konum með tíðaverki. AÐFERÐ Rannsóknarsnið Rannsóknin var lýsandi þversniðskönnun þar sem gagna var aflað með heimsendum spurningalistum. Úrtak Þýði rannsóknarinnar var 54186 konur á aldrinum 18–41 árs. Handahófskennt úrtak 1000 kvenna var tekið úr þjóðskrá og er úrtaksvilla viðunandi eða aðeins +31,1 (95% öryggisbil) (Þórólfur Þórlindsson og Þorlákur Karlsson, 2003). Tólf konur töluðu ekki íslensku og 69 spurningalistum var skilað þar sem heimilisfang var rangt. Lokaúrtakið var því 919 konur og svörun var 35% (n=319). Gagnasöfnun Gagna var aflað í október og nóvember 2013 og var byggt á heildaraðferð Dillman (1991). Samkvæmt þessari aðferð voru spurningalistar póstsendir til þeirra sem lentu í úrtaki ásamt skýringabréfi og frímerktu skilaumslagi. Ítrekun var send þátttakendum bréfleiðis tvisvar og í síðara skiptið fengu þátttakendur auk ítrekunarbréfs spurningalistann og svarumslag sent aftur. Mælingar Tíðaverkir voru mældir með einni spurningu: „Finnur þú fyrir tíðaverkjum á meðan á blæðingum stendur?“ og voru svarmöguleikar já/nei. Þátttakendur, sem svöruðu spurningunni játandi, voru spurðir um styrk verkjanna á tölukvarða frá 0 (engir verkir) til 10 (mjög miklir verkir). Heilsutengd lífsgæði (HL) voru mæld með SF-36v2 heilsukvarðanum (Short Form 36 Health Survey). Kvarðinn er samsettur af átta undirkvörðum sem meta heilsu, virkni og vellíðan, en þeir deilast svo í líkamlega og andlega heilsu. Spurningarnar eru 36 og er þeim öllum svarað á raðkvarða sem hafa mismunandi svarmöguleika eftir eðli spurninga. Við úrvinnslu SF-36v2 er hrágögnum umbreytt í stig byggð á lykli frá rétthafa mælitækisins (Quality Metric Inc. Lincoln, Bandaríkjunum). Við þessa umbreytingu liggja stigin frá 0 til 100 og fleiri stig benda til meiri lífsgæða. Almennt má túlka stigafjöldann þannig að fleiri stig en 50 séu yfir viðmiði fyrir almenning (hér bandarískar konur á aldrinum 18 til 94 ára) og stig undir 50 undir því viðmiði (Ware, Kosinski, Bjorner, Turner-Bowker, Gandek og

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.