Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Page 16

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Page 16
16 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017 Maruish, 2007; Rannveig Jónasdóttir, 2009). Hér verða aðeins birtar niðurstöður fyrir líkamlega og andlega heilsu. Réttmæti og áreiðanleiki mælitækisins hafa verið staðfest í stórum rannsóknum sem tóku til heilbrigðra og veikra einstaklinga (Ware og Gandek, 1998). Mælitækið var þýtt á íslensku af viðurkenndum aðilum (Rannveig Jónasdóttir, 2009) og hafa próffræðilegir eiginleikar íslensku útgáfunnar mælst viðunandi í hópi íslenskra stúdenta (Margrét Eiríksdóttir, 2011) og meðal gjörgæslusjúklinga (Rannveig Jónasdóttir, 2009). Viðhorf til blæðinga voru mæld með Spurningalistanum um skoðun á og viðhorf til tíðablæðinga (e. Beliefs and Attitudes Towards Menstruation Questionnaire (BATM)) (Marván, Ramírez- Esparza, Cortés-Iniestra og Chrisler, 2006). BATM er 40 atriða listi (svarmöguleikar mjög ósammála=1 til mjög sammála=5). Listinn skiptist í fjóra undirflokka: 1. Skapraun samanstendur af 11 atriðum og snýr að löngun til að hafna blæðingum (fleiri stig, meiri löngun). 2. Leynd (10 atriði) fjallar um mikilvægi þess að halda blæðingum leyndum, vera vandræðaleg á blæðingum og að eiga erfitt með að tala um þær. Fleiri stig benda til að þátttakendur séu frekar sammála þessu. 3. Fordæming og forskrift (14 atriði) fjallar um að konur eigi að haga sér á ákveðinn hátt á blæðingum og fleiri stig benda til að þátttakendur séu frekar sammála því. 4. Ánægjulegar sem samanstendur af 5 atriðum sem snúa að tilfinningum um vellíðan og stolt. Fleiri stig þýða meiri vellíðan og meira stolt yfir blæðingum (Marván o.fl., 2006). Almennt má segja að fleiri stig á mælitækinu í heild þýði að þátttakendur séu mjög sammála því að blæðingar hafi áhrif á frammistöðu og daglegt líf en færri stig þýða að þeir séu ósammála því. Hlutgerving var mæld með tveimur mælitækjum. Sjálfshlutgervingar- spurningalistinn (e. Self-Objectification Questionnaire (SOQ)) mælir að hvaða marki þátttakendur líta á eigin líkama á huglægan, útlitstengdan hátt eða á hlutlausan, hæfnitengdan hátt. Þátttakendum er sagt að skrá 10 eiginleika líkamans út frá mikilvægi þeirra, fimm eru útlitstengdir (þyngd, kynþokki, líkamlega aðlaðandi, stæltir vöðvar og mælingar) og fimm hæfnitengdir (líkamleg samhæfing, heilsa, styrkur, orka og líkamlegt ástand). Við úrvinnslu eru annars vegar útlitstengdir eiginleikar lagðir saman og hins vegar hæfnitengdir. Því næst eru heildarhæfnistig dregin frá heildarútlitsstigum. Stig liggja á bilinu -25 til 25. Því hærri sem útkoman er því meira horfa þátttakendur til útlitstengdra eiginleika og hlutgera sig. Lægra gildi þýðir að þátttakendur meti meira hæfnisþætti tengda líkamanum og hlutgeri sig minna. Ekki er unnt að mæla innri áreiðanleika SOQ þar sem þátttakendur verða að velja á milli svara. Hitt mælitækið var Hlutgerði líkamskvarðinn (e. Objectified Body Consciousness Scale (OBCS)) sem er 24 atriða listi og merkja þátttakendur við á tölukvarða frá 1 til 7 þar sem 1 þýðir mjög ósammála og 7 mjög sammála. OBCS- kvarðinn inniheldur þrjá undirkvarða Líkamsskömm (8 atriði), Trú á stjórnun (8 atriði) og Eftirlit (8 atriði). Hátt gildi á Líkamsskömm veldur því að konunni líður eins og hún standi sig ekki ef hún uppfyllir ekki menningartengdar væntingar um líkama sinn, lágt gildi þýðir að henni finnist hún í góðu lagi þó hún uppfylli ekki slíkar væntingar. Hátt gildi á Trú á stjórnun, þýðir að konan trúir að hún hafi stjórn á þyngd sinni og útliti ef hún leggur hart að sér, lágt gildi felur í sér að konan telji sig ekki stjórna þyngd og útliti heldur sé þessum þáttum stjórnað af erfðum. Hátt gildi á Eftirliti þýðir að konan fylgist iðulega með útliti sínu og hugsar um líkama sinn út frá útliti hans, lágt gildi þýðir að hún fylgist sjaldan með útliti sínu og hugsar um líkamann út frá líkamlegri líðan (sjá frekari lýsingu í Herdís Sveinsdóttir o.fl., 2015, og Sveinsdóttir, 2017). Upphaf blæðinga var mælt með fimm spurningum og núverandi blæðingar með 8 spurningum (sjá töflur 1 og 2 þar sem sjá má breyturnar og hvernig þær voru mældar). Að lokum var spurt um líkamsþyngdarstuðul, hversu oft var farið í líkamsrækt, aldur, sambúð, börn heima og menntun (sjá töflur 1 og 2 þar sem sjá má breyturnar og hvernig þær voru mældar). Úrvinnsla Tölfræðiúrvinnsla fór fram með tölfræðiforritinu Statistical Package for the Social Sciences 22.00 (IBM Corp, 2013). Notuð var lýsandi tölfræði auk þess að t-próf, krosstöflur og Fisher-próf var notað til að skoða marktæk sambönd meginbreyta rannsóknarinnar (sem sýndar eru í töflum 1 og 2) við tilvist tíðaverkja. Línuleg aðhvarfsgreining var gerð til að skoða hvað spáir fyrir um styrk tíðaverkja (útkomubreyta) hjá konum með verki. Spearmans-rho var notað til að skoða tengsl útkomubreytunnar við breytur rannsóknarinnar. Breytur með marktæk tengsl, auk bakgrunnsbreyta, voru settar í greininguna. Siðfræði Fengið var leyfi frá Vísindasiðanefnd (Nr VSN-13-120) auk þess sem rannsóknin var tilkynnt til Persónuverndar (S6385). Þátttakendur fengu kynningarbréf með viðeigandi upplýsingum, m.a. um rétt sinn til að hætta þátttöku hvenær sem væri óskuðu þeir þess. Þá voru í bréfinu upplýsingar um ábyrgðaraðila rannsóknarinnar og hvert þátttakendur gætu snúið sér ef þeir óskuðu frekari upplýsinga. Svar við spurningalistanum var talið ígildi samþykkis. NIÐURSTÖÐUR Til að meta hversu vel úrtakið endurspeglar þýðið var meðalaldur þátttakenda (M=30+7,0; n=319) borinn saman við meðalaldur þýðis (M=29,3+6,9, N=54186). Munurinn var ekki marktækur (t=1,922; df=319; p=0,06). Lýsandi niðurstöður Meginbreyta rannsóknarinnar er tíðaverkir og sögðust 84,4% (n=270) þátttakenda hafa tíðaverki en 15% (n=48) ekki. Meðalstyrkur verkja hjá þeim sem greindu frá verkjum var 5,4 (sf=2,4) á kvarða frá 0-10. Aðrar lýsandi niðurstöður er að finna í töflum 1 og 2. Hluta þeirra hefur verið lýst annars staðar en eru birtar hér með samþykki þess tímarits (Sveinsdóttir, 2017). Í töflu 2 kemur fram að meginhluti þátttakenda er í sambúð, með börn á heimilinu, með háskólapróf og útivinnandi. Mat þátttakenda á líkamlegu heilsufari (M=49,1) og almennu heilsufari (M=49,0) út frá SF-36v2 var aðeins lægra en mat bandarískra kvenna (sjá töflu 1). Viðhorf til blæðinga var frekar hlutlaust þó tilhneiging væri til að þykja skapraun að þeim (M=3,6) en óþarfi að leyna þeim (M=1,9). Sjálfshlutgerving mælist ekki mikil. Meðalgildi á SOQ var -16,8 þannig að þátttakendur meta sig út frá hæfni frekar en útliti líkamans. Meðalgildi á Eftirliti var 4,3 sem sýnir að þátttakendur fylgjast vel með útliti sínu, meðalgildi á Trú á stjórnun var 5,4 sem þýðir að þátttakendur trúi því að þær geti haft stjórn á þyngd sinni og útliti ef þær leggja nógu hart að sér og á Líkamsskömm var meðalgildið Tafla 1. Meðalstig á raðbreytum rannsóknarinnar og marktækur munur á meðalstigum út frá tilvist tíðaverkja. Tíðaverkir Já Nei Marktækni* n M+ (sf)+ n M (sf) n M (sf) Lifnaðarhættir og bakgrunnur Aldur (ár) 319 30,0 (7,0) 270 29,7 (6,9) 48 31,7 (7,4) em Líkamsþyngdarstuðull 313 25,9 (5,2) 265 25,8 (5,2) 46 26,2 (5,0) em Hugsa of mikið um mat# 320 3,0 (1,1) 270 2,9 (1,1) 48 3,1 (1,2) Samviskubit yfir því að borða of mikið# 320 2,8 (1,1) 270 2,8 (1,1) 48 2,7 (1,1) Líkamlegt heilsufar (út frá stöðluðu þýði kvenna) 320 49,1 (10,4) 270 53,4 (7,3) 48 55,9 (5,2) p<0,05 Sálrænt heilsufar (út frá stöðluðu þýði kvenna) 320 49,0 (10,7) 270 47,0 (10,1) 48 51,8 (9,9) p<0,01 Skoðun á og viðhorf til tíðablæðinga Skapraun 312 3,6 (7,0) 270 3,7 (0,7) 47 3,3 (0,8) p<0,01 Leynd 318 1,9 (0,5) 270 1,9 (0,5) 47 1,9 (0,6) em Fordæming og forskrift 311 2,1 (0,6) 270 2,1 (0,6) 47 1,9 (0,5) p<0,01 Ánægjulegar 316 2,7 (0,7) 270 2,8 (0,8) 47 2,6 (0,7) em Sjálfshlutgerving 292 (-16,8) 244 -16,4 (10,5) 46 -18,8 (8,4) em Hlutgerði líkamskvarðinn Eftirlit 318 4,3 (1,0) 269 4,3 (0,9) 48 4,2 (1,0) em Trú á stjórnun 317 5,4 (0,8) 268 5,3 (0,8) 47 5,5 (0,8) em Líkamsskömm 313 3,1 (1,1) 269 3,1 (1,1) 48 2,7 (1,0) p<0,05 Fyrstu blæðingar Meðalaldur við fyrstu blæðingar 316 12,8 (1,6) 266 12,8 (1,6) 48 13,0 (1,5) em Núverandi blæðingar Lengd blæðinga (dagar) 317 5,1 (1,5) 269 5,3 (1,4) 47 5,0 (1,7) em Lengd tíðahrings (dagar) 290 28,5 (5,6) 246 28,8 (5,4) 42 27,8 (3,5) em Styrkur tíðaverkja (0=enginn verkur; 10=mjög miklir verkir 289 5,0 (2,7) 265 5,4 (2,4) 23 0,6 (1,6) p<0,001 Hversu mikil áhrif telur þú tíðaverki hafa á líf þitt? (1=engin áhrif; 10=mjög mikil áhrif) 312 2,7 (2,5) 268 3,1 (2,5) 43 0,5 (0,9) p<0,001 Lifnaðarhættir Mat á þyngd 317 2,4 (0,7) 267 2,4 (0,7) 48 2,3 (0,7) Reglubundin líkamsrækt 269 2,9 (1,2) + M=meðaltal; sf=staðalfrávik * Notað er t-próf # Aldrei=1 til alltaf=5

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.