Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Side 22

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Side 22
22 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017 að fá að hringja í þær. Getnaðarvarnir eru ekki leyfilegar og flestar fjölskyldur eiga að meðaltali 5 til 10 börn og í samfélaginu sem við heimsóttum var ein móðir sem átti 18 börn. Þó flestar mæður kjósi að fæða heima með aðstoð ljósmóður, mega konur fæða á spítala með aðstoð lækna, t.d. kona í áhættumeðgöngu. Þar sem Amish fólk er ekki með sjúkratryggingu leggjast allir á eitt í samfélaginu til að borga fyrir sjúkrahúsdvöl. Enginn í samfélaginu er með bankareikning og þykir það víst skondin sjón þegar höfuð fjöl- skyldunnar mætir með ferðatösku fulla af peningum á sjúkrahúsið til að borga fyrir vist og þjónstu. Við fengum far með Pamelu til að heimsækja Millie sem bjó í nágrenninu. Umhverfið var hjúpað dulúð. Flennistórir akrar þar sem ræktað var allskonar grænmeti og maís. Húsin voru falleg og reisuleg og óhætt að segja að það hafi komið okkur spánskt fyrir sjónir þegar við mættum prúðbúnum Amish hjónum í fullum skrúða keyrandi um á hestakerru. Okkur var boðið heim til ljós- móðurinnar í bænum og var heimilið hreint og snyrtilegt. Olíu- lampar héngu á veggjum í stað rafmagnsljósa. Gaseldavél var í eldhúsinu og hver innanstokksmunur hafði sínu hlutverki að gegna. Við fengum að sjá ljósmæðratöskuna hennar sem var stút- full af jurtalyfjum sem hún bjó til sjálf. Þar voru meðal annars jurtalyf fyrir gangsetningu, svefnleysi og ógleði ásamt mörgu öðru. Í töskunni var hún einnig með samdráttarlyf Syntocinon og Methergin sem Pamela hafði látið hana fá og kennt henni að nota. Í lokin fengum við að fara í “apótekið” hjá Millie og var boðið að kaupa jurtalyf við hinum ýmsustu kvillum eins og stinningar- vandamálum, ófrjósemi, kvíða og þunglyndi svo eitthvað sé nefnt. AÐ LOKUM Á síðasta kvöldi námskeiðsins héldu ljósmæðurnar á The Farm athöfn þar sem allar komu saman. Allar sátu saman í hring með kerti. Hver og ein sagði frá einhverju sem stóð upp úr eftir vikuna. Edythe talaði um innblásturinn og styrk kvennanna sem kemur fram þegar konur hafa trú á sjálfa sig og styðja hvor aðra. Hulda talaði um mikilvægi þess að hlusta alltaf á innsæi sitt og vitnaði í orð eins kennarans “If you don’t use it, you’ll lose it.” Í lokin vorum við kallaðar upp ein og ein þar sem fram fór blessun á höndum, við dýfðum höndunum í stóra skál sem var full af vatni, blómum og lavender. Á sama tíma bað Pamela Guð um að blessa hendur okkar, sem koma til með að hlúa að konum og börnum í framtíðinni. Með þessum fallegu orðum lauk ógleymanlegu námskeiði á The Farm. Hugmyndin sem við vorum með í byrjun námskeiðsins um að við myndum lítið bæta við þekkingu okkar hafði verið algjörlega röng. Það kom okkur svo sannarlega á óvart hvað námskeiðið var vandað og fór langt fram úr væntingum okkar. Eftir námskeiðið flugum við til Boston þar sem við slökuðum á og versluðum. Það var undarleg tilfinning að koma aftur í hraðann sem fylgir nútíma samfélagi með netsamband, sjónvarp, hrein handklæði og ofgnótt. Fræðsludagur um brjóstagjöf var haldinn með þátttöku Ljósmæðrafélagsins þann 27. október, auglýstur fyrir ljósmæður, hjúkrunar- fræðinga og lækna sem sinna mjólkandi mæðrum. Aðalfyrirlesari var Catherine Watson Genna (BS, IBCLC, NYC). Haldin voru erindi um fjölbreytt efni brjóstagjafar svo sem um blæbrigði gripsins (Nuances of Latch), Rauð flögg ráðgjafans! (Red flags for BF helpers), Barnið sem vill ekki taka brjóstið (Non- Latching Babies) Bakflæði (Reflux), Þegar barnið braggast ekki (Feilure to thrive). Eins og heiti fyrirlestra gefur til kynna var þetta spennandi og fræðandi dagur um þetta mikilvæga viðfangsefni í ljósmóðurstarfi. FRÆÐSLUDAGUR UM BRJÓSTAGJÖF F R É T T I R Ú R F É L A G S S TA R F I Með Inu May og þátttakendum í námskeiðinu

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.