Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Qupperneq 40

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Qupperneq 40
40 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017 Skráning á aukaverkunum Þáttur í ábyrgri áhættustjórnun væri að bæta við þetta gæðaskal ákveðinni verklagsreglu með tilvísun á gagnagrunn þar sem skylt væri að skrá öll tilvik aukaverkana ítarlega og hver beri ábyrgð á þeirri skrán- ingu. En í verklagsreglunni stendur fyrir að „Áhættuaukaverkanir ber að skrá í sjúkraskrá og eftir atvikum í atvikaskráningu LSH“. Einungis fjórar áhættuaukaverkanir eru taldar upp og eru það blóðþrýstingsfall, Há mænudeyfing með áhrif á öndun og meðvitund, öndunarletjun og deyfing virkar ekki eða aðeins að hluta. Þrátt fyrir mikla leit tókst ekki að finna upplýsingar um tíðni auka- verkana og fylgikvilla af notkun mænurótardeyfingar í fæðingum. Hér á landi og í öðrum Evrópulöndum eru aukaverkanir og fylgikvillar mænu- rótardeyfinga líklega ekki skipulega skráðar. Á fæðingarvakt Landspít- ala eru aukaverkanir skráðar í frjálsum texta í athugasemdardálk (munn- legar upplýsingar Anna Sigríður Vernharðsdóttir, yfirljósmóðir, 13. desember 2017). Gæði í heilbrigðisþjónustu eru til marks um það að hve miklu leyti veitt þjónusta eykur líkur á bættri heilsu og auknum lífsgæðum og að hve miklu leyti þjónustan er veitt í samræmi við bestu mögulegu þekk- ingu (Reglugerð nr. 1148/2008). Þegar ákveðið er að leggja mænu- rótardeyfingu þyrfti að vera skýr ábending fyrir þörf á deyfingunni og þannig að hugsanlegur ávinningur af lagningu deyfingarinnar vegi þyngra en mögulegir áhættuþættir. Með því að tryggja að fræðsluþörf til barnshafandi kvenna um mænurótardeyfingu í fæðingu sé uppfyllt er hægt að tryggja betur gæði þjónustunnar þar sem konurnar eru þannig betur í stakk búnar til að taka upplýsta ákvörðun. Það er þekkt að víða erlendis þurfa konur að skrifa undir eyðublað fyrir fæðingu sem sýnir að kona hefur fengið nægar upplýsingar til að geta tekið upplýsta ákvörðun og samþykkir með undirskrift sinni að leggja megi mænurótardeyfingu sé þess þörf. Til eru ýmis módel af fræðslu og eyðublöðum sem hægt væri að aðlaga að okkar aðstæðum og nýta í mæðraverndarfræðslu hér á landi. Samkvæmt ráðleggingum „Obtaining Valid Consent“ (Clinical Governance Advice No.6, January 2015) frá Royal College of Obstetrici- ans and Gynaecologists er lagt upp með að ítarleg og góð fræðsla sé veitt áður en samþykkis er óskað og þannig tryggt að konur geti veitt upplýst samþykki fyrir lagningu mænurótardeyfingar í fæðingu. Mælst er til að konur fái fræðsluna á meðgöngutímanum frekar en í fæðingunni sjálfri þar sem sannað þykir að þá séu konur mun móttækilegri fyrir fræðslunni og betur í stakk búnar til að vega og meta kosti og galla og koma með spurningar til að skerpa á skilningnum. Einn meginþáttur gæða í heil- brigðisþjónustu er einmitt rétt tímasetning. Bætt verklag og gæði þjónustu Til að bæta gæði þjónustunnar og byggja á öryggismenninguna væri rétt að bæta verklag í mæðraverndinni til að tryggja að allar barnshafandi konur fái viðeigandi fræðslu um mænurótardeyfinu til að geta tekið upplýsta ákvörðun um notkun deyfingarinnar þegar kemur að fæðingu. Til að tryggja gott verklag væri rétt að konur kæmu með undirritað upplýst samþykki með sér á fæðingarstað sem staðfesti að konan hefði fengið staðlaða viðurkennda fræðslu. Einnig er þörf á að beita virkri áhættustjórnun og bæta úr skráningu aukaverkana og fylgikvilla deyfingarinnar á fæðingarstað til að tryggja betri yfirsýn svo hægt sé að endurbæta kerfið þegar frávik koma í ljós (Staðallinn ISO 31000:2009). Góður öryggisbragur einkennist af því að öryggi sjúklinga er sett í öndvegi og áhættustjórnun er samofin öllu því sem gert er. Megin- þættir til að bæta öryggisbrag eru að stofnanir tryggi öryggi sjúklinga, viðhafi fagleg samskipti, samstarf og skráningu atvika (Reglugerð nr. 1148/2008). Í Alþjóðasiðareglum ljósmæðra (1993) sem eru siðareglur Ljós- mæðrafélags Íslands, er skýrt kveðið á um siðferðilega skyldu ljósmæðra til að fræða konur og stuðla þannig að aukinni hæfni þeirra til ábyrgrar ákvarðanatöku og jafnframt sýna sjálfræði þeirra virðingu. En þar segir: Ljósmæður virða rétt kvenna til að taka upplýstar ákvarðanir og stuðla jafnframt að því að konur taki ábyrgð á afleiðingum eigin ákvarðana. Ljósmæður vinna með konum og styðja rétt þeirra til að taka virkan þátt í öllum ákvörðunum er lúta að umönnun þeirra. Ljós- mæður starfa ásamt öðrum konum með heilbrigðisyfirvöldum að því að skilgreina þá heilbrigðisþjónustu sem konur hafa þörf fyrir og þær leitast við að tryggja að þeim gæðum sem standa til boða sé réttlátlega skipt með tilliti til forgangs í heilbrigðisþjónustu og aðgangs að henni. Drög að úrbótum - tillögur Þverfaglegt teymi heilbrigðisstarfsfólks, ljósmæðra og svæfingarlækna komi saman að gerð staðlaðs fræðsluefnis sem byggir á gagnreyndum upplýsingum og telst hnitmiðað, auðskilið og auðflutt, til að nota á meðgöngu og/eða í fæðingu. Fræðsluefnið mun auka fagleg gæði þjón- ustunnar og auka virði hennar. Fræðsluefnið skal hafa þann tilgang að veita barnshafandi konum fullnægjandi upplýsingar um virkni, ábendingar og frábendingar og eins þekktar aukaverkanir mænurótardeyfinga í fæðingu. Fræðsluefninu er ætlað að tryggja sjálfræði konunnar og getu til að taka upplýsta og ábyrga ákvörðun um að óska eftir og/eða þiggja mænurótardeyfingu í fæðingu. Einnig skal útbúið staðlað eyðublað sem nota skal samhliða fræðslu- efninu. Eyðublaðið skal staðfesta með undirskrift að kona hafi fengið viðkomandi fræðslu og hvort hún samþykki lagningu deyfingarinnar ef þörf er á. Undir eyðublaðið skal einnig kvitta ljósmóðir sem veitir fræðsluna og skal það vera dagsett. Eyðublaðið fylgir svo mæðraskrá konunnar með henni á fæðingarstað. Þegar fræðsluefni og eyðublað er tilbúið hefst innleiðingarferli og skal það haft að leiðarljósi að sama fræðsla sé veitt alls staðar á landinu. Leggja skal þjónustukannanir bæði fyrir konur sem fá fræðsluna og eins fyrir þær ljósmæður sem koma að þjónustu við konur í barn- eignarferlinu til að mæla gæði þjónustunnar. Útbúa skal og samhæfa gagnagrunn sem nýttur er til skráningar á öllum aukaverkunum og fylgikvillum sem af mænurótardeyfingum í fæðingu hljótast svo hægt sé að meta umfangið og vinna að úrbótum alls staðar sem við verður komist. SAMANTEKT Til að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og draga úr áhættu þarf verklag og ábyrgð að vera skýr og byggð á bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma. Þjónustuþegar eiga að fá þjónustu sem er veitt í samræmi við skilgreinda meginþætti gæða, þjónustan á að vera örugg, rétt tímasett, skilvirk og samfelld, byggð á jafnræði og ekki síst notendamiðuð og árangursrík (Laura Sch. Thorsteinsson og félagar, 2012). Eins og fram hefur komið er fræðslu um mænurótardeyfingu til barnshafandi kvenna hér á landi ábótavant og ekki í samræmi við lög eða siðareglur. Bæta má með breyttu verklagi og litlum tilkostnaði gæði og öryggi þessarar þjónustu, lagningu mænurótardeyfingar í fæðingu í samræmi við lög og siðareglur (Lög nr. 74/1997; Alþjóðasiðareglur ljósmæðra, 1993). Til að endurspegla góða starfshætti þurfum við að geta svarað eftir- farandi spurningum (Áhættustjórnunarstaðall, ISO 31000:2009); Hvað getur gerst og af hverju? Með núverandi fyrirkomulagi er ekki tryggt að kona í fæðingu geti tekið upplýsta ákvörðun þegar hún óskar eftir og/eða þiggur mænurótardeyfingu. Hægt er að breyta því. Hverjar eru afleiðingarnar? Fæðandi kona og barn hennar geta orðið fyrir aukaverkunum sem fylgt geta mænurótardeyfingu. Afleiðingarnar af því að viðhalda núverandi starfsháttum draga úr sjálfræði og ábyrgð kvenna. Hægt er að draga úr líkum á óþarfa inngripum og þar með líkum á aukaverkunum af þeim með fræðslu. Þekktar eru fjölmargar aukaverkanir, misalvarlegar. Einstaka óalgeng en alvarleg tilfelli hafa ratað í opinbera umræðu svo sem tilfelli ungrar 16 ára frumbyrju sem fékk mænurótardeyfinu í fæðingu sem leiddi til þess að hún er 75% öryrki eftir. Að hennar sögn var deyfingin lögð án allrar fræðslu og ekki með samþykki hennar (DV, 3. febrúar 2016). Hverjar eru líkurnar á endurtekningu í framtíðinni? Líkunum á endurtekingu þarf að huga að og mæla en þar skiptir viðeigandi skrán-

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.