Mosfellingur - 12.01.2017, Qupperneq 2
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 2. febrúar
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Mosfellingur ársins að þessu sinni er kringlukastarinn öflugi
Guðni Valur Guðnason. Það er ekki
á hverjum degi sem við Mosfellingar
eigum keppanda á Ólympíu-
leikum. Guðni Valur var
í átta manna hópi sem
fór til Ríó fyrir Íslands-
hönd. Bjartsýnin skín
úr augunum á honum
og hann ætlar sér að ná
ennþá lengra. Það
er nokkuð ljóst.
Guðni er vel að
þessum titli
kominn.
Okkar Mosó er verkefni sem Mosfellsbær er að kynna til
leiks. Samráðsverkefnið er í líkingu
við það sem Reykjavíkurborg hefur
unnið með sínum íbúum. Íbúar geta
sent inn hugmyndir sem fara í pott.
25 milljónum verður síðan varið í
framkvæmdir sem bæjarbúar kjósa
að lokum um. Þetta fær vonandi
Mosfellinga til að kveikja á perunni
og benda á það sem betur má fara í
þeirra nánasta umhverfi.
Þorrablót Aftureldingar er á næsta leiti. Viðburður sem er
gjörsamlega búinn að festa sig í sessi í
bæjarfélaginu. Mæli með mætingu.
Okkar Mosó
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
héðan og þaðan
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
VaRMÁRSKÓLI
18. apríl 1964
Ég leitaði í dagbókina
fyrir árið 1964 til að rifja
upp tilefni ljósmyndanna
sem hér birtast. Starfsár
Barnaskólans að Varmá var
í 8 mánuði á þessum árum
og nemendur 7-12 ára.
Unglingaskólinn var í gamla
skólahúsinu á Brúarlandi.
Myndirnar eru teknar
laugardaginn 18. apríl
á Varmárvelli og við
sundlaugina. Komið var að
vorprófum og barnaprófi
(12 ára) hjá þeim elstu og
ástæða til að bregða á leik.
Lið nemenda sýndi læri-
feðrunum enga miskunn
og vann leikinn með fimm
mörkum gegn tveimur.
Mynd 2: Lið nemenda: Framar frá vinstri: Thor Thors, Lágafelli,
Valgeir Guðmundsson, Markholti 1, Brynjar Viggósson, Skógum,
Laust Krüger Ottsen, Álafossi, Kristján Hjartarson, Hlaðgerðarkoti.
Aftar: Jón Gunnar Benediktsson, Bjargastöðum, Signý Jóhannsdóttir,
Dalsgarði, Sveinn Sigvaldason, Skólabraut 3, Ómar Önfjörð
Magnússon, Selholti, Bjarni Ásgeir Jónsson, Reykjum,
Bjarki Bjarnason, Mosfelli, Páll Árnason, Reykjalundi.
Mynd 1: Skólastjóri og kennarar:
Framar: Tómas Sturlaugsson,
Klara Klængsdóttir, Eyjólfur
Magnússon.
Aftar: Bjarni Sigurðsson, Lárus
Halldórsson, Sigvaldi Sturlaugs-
son, Birgir D. Sveinsson.
Mynd 3: Fagnað í leikslok:
Aðstæður á vellinum ekki
sem bestar!