Mosfellingur - 12.01.2017, Page 6
Eldri borgarar
Þjónustumiðstöðin
Eirhömrum
Fram undan
í FélagsstarFinu
gaman saman
Söngur, spil og óvæntar uppákomur
annan hvern fimmtudag í vetur. Byrjum
12. janúar með Ólafi Liljurós kl. 13:30 í
borðsal Eirhamra. Léttum okkar lund
og höfum gaman saman :) Síðan verður
næsta Gaman saman 26. janúar.
nÝtt!
listmálunarnámskeið.
Boðið verður upp á 8 skipta námskeið í
málun með akríl/olíulitum. Námskeiðið
er ætlað byrjendum, en líka þeim sem
hafa málað eitthvað. Fólk mætir með
sína striga, liti (olíu eða akríl) og pensla
en trönur og litir til að bjarga sér eru á
staðnum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn
7. febrúar kl. 12.30-15.30. Leiðbeinandi
er Hannes Valgeirsson kennari, mynd-
listarmaður og málari. Verð 10.000 kr.
Skráningar krafist. Allar upplýsingar eru í
síma 586-8014.
tréútskurður
byrjar 11. jan kl. 19:00.
Kennari er að vanda Stefán Erlingsson.
Skráningar krafist.
Félagsvist
byrjar 20. jan kl. 13:00 n.k.
Í borðsal Eirhamra. Verðlaun fyrir efstu
sætin. Allir velkomnir.
Bridge
Er á miðvikudögum í allan vetur í
borðsalnum, allir velkomnir.
Kanasta
verður áfram á sínum stað annan hvern
fimmtudag og byrjar 19. jan kl. 13:00 í
borðsalnum.
Postulín
Ransý kemur og verður með postulíns-
kennslu í vetur á fimmtudögum. Áhuga-
samir hafi samband við félagsstarfið í
síma 586-8014.
leshringur hittist fyrsta mánudag í
mánuði á Eirhömrum kl. 10:30
Hreyfing vetur 2017
Almenn leikfimi með Karin sjúkraþjálfara
byrjar á Eirhömrum kl. 10:45 og 11:15 alla
fimmtudaga og fyrsti tími er 12. jan.
VATNSLEIKFIMI byrjar 9. jan, kennt
tvisvar í viku, á mán. og mið. kl. 11:15 í
Lágafellslaug. Ringó verður að Varmá
þriðjud. kl. 11:30 og fimmtudaga 12:00.
Boccia verður að Varmá fimmtudaga
kl.10:50. Dansleikfimi verður að Varmá
miðvikudaga 15:45. Kennari er Brynja.
módelsmíði
Verður kennd tvisvar sinnum í viku á
mánudögum og fimmtudögum kl. 13:00
í smíðastofu Hlaðhömrum 2. Allir vel-
komnir. 586-8014 fyrir nánari upplýsingar.
glerkennsla
Verður áfram í umsjón Fríðu á föstu-
dögum kl 10:00-14:00 og byrjar næsta
námskeið 20. janúar. Skráningar krafist í
síma 586-8014 eða 698-0090.
leirnámskeið
Byrjar 16. janúar, kennari verður Fríða og
kennt verður á mánudögum kl. 10:00-
14:00. Skráningar krafist í síma 586-8014
eða 698-0090.
ÞOrraKallagErÐ
JARL OG JARA
Í tilefni þorrans ætlum við í félagsstarfinu
að bjóða upp á leiðsögn í gerð fígúra
svipaðra og fyrir jólin en nú eru þau
skötuhjú komin í ullarföt og sauðskinns-
skó. Þeir sem vilja vera með mæti í hand-
verksstofu þriðjudag eða miðvikudag 24.
og 25. jan. Allt efni á staðnum. Skráning í
síma 586-8014 eða 698-0090.
Perluhópur Jónu hittist alla
mánudaga og miðvikudaga kl. 13:00. Allir
velkomnir að vera með.
abstrakt útsaumur
Alla miðvikudaga til og með 1. feb
verðum við í abstrakt útsaumi í mynda-
ramma. Gerum litlar myndir sem passa
í rammana. Allt efni á staðnum og allir
velkomnir að vera með.
Minnum á að félagsstarfið er fyrir alla
eldri borgara, öryrkja og atvinnulausa,
endilega komið og verið með. Selt er kaffi
alla virka daga á Eirhömrum kl. 14:30.
Hlökkum til að sjá ykkur.
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Félag aldraÐra
í mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Annasamt ár hjá
Kili á Kjalarnesi
Árið 2016 var annasamt hjá Björg-
unarsveitinni Kili en sveitin fór í 85
útköll á árinu. Inni í þeirri tölu eru
ekki talin verkefni og útköll sem
sveitin sinnti á Hálendisvaktinni
í sumar en þar voru Kjalarmenn
í rúmar tvær vikur, að Fjallabaki
og á Sprengisandi. Útköll síðasta
árs hafa verið jafn fjölbreitt eins
og þau eru mörg og má þar nefna,
umferðalokarnir vegna óveðurs,
óveðursaðstoð, leit að hvalshræi,
leit að týndu fólki, umferðarslys og
bráð veikindi. Ásamt því að mæta
í að meðaltali í 1,5 útköll í viku var
þátttaka í ýmsum forvarnarverkefn-
um, t.d. dreifing endurskinsmerkja
til leik- og grunnskólabarna,
átak gegn snjalltækjanotkun við
akstur og fræðslufundur um slys og
veikindi barna.
Guðni Valur Guðnason, 21 árs kringlu-
kastari, er Mosfellingur ársins 2016. Árið
hjá honum var vægast sagt viðburðaríkt og
toppurinn var að sjálfsögðu þátttaka hans
á Ólympíuleikunum í Ríó.
Guðni Valur hefur tekið gríðarlegum
framförum í greininni þau þrjú ár sem
hann hefur stundað kringlukast af fullum
krafti. Áður hafði Guðni æft aðrar greinar í
frjálsum, golf, körfubolta og ýmsar íþróttir
sem krakki.
„Það skipti í rauninni ekki máli í hvaða
grein maður var þegar maður var yngri en
langskemmtilegasta mótið var Goggi Gal-
vaski sem haldið var hérna í Mosó,“ segir
Guðni Valur.
sækir reynslu til besta kastara landsins
Guðni Valur æfði með Aftureldingu á
sínum yngri árum en keppir nú fyrir hönd
ÍR undir dyggri handleiðslu Péturs Guð-
mundssonar. Þar sækir Guðni Valur mikla
reynslu og þekkingu hjá einum besta kast-
ara sem Íslendingar hafa eignast
Guðni Valur kastaði 60,45 m á Ólympíu-
leikunum í sumar og lenti í 21. sæti af 35
þátttakendum. Þá gerði hann góða ferð til
Finnlands á árinu þar sem hann landaði
Norðurlandameistaratitli í flokki 23 ára og
yngri. Hann vann einnig gull á Smáþjóða-
leikunum sem fram fóru á Möltu.
Ætlar sér stóra hluti á árinu
Guðni Valur setur markið hátt á árinu og
ætlar sér að komast á Heimsmeistaramótið
í sumar og vinna Evrópumeistaramótið í
sínum aldurshópi. Lágmarkið fyrir HM er
65 m en besti árangur Guðna er 63,5 m.
„Ég á nóg inni og ætla mér stóra hluti.“ Þá
er stefnan tekin á Smáþjóðaleika og fjölda
annarra móta og keppnisferða á árinu.
Guðni Valur var á dögunum útnefndur
frjálsíþróttakarl ársins og hlaut einnig tit-
ilinn íþróttakarl ÍR 2016. „Það er hrikalega
skemmtilegt að bæta nafnbótinni Mosfell-
ingur ársins við í safnið og mun ég bera
titilinn stoltur,“ segir þessi framúrskarandi
íþróttamaður sem vert verður að fylgjast
með í náinni framtíð.
Guðni Valur er Mosfellingur ársins • Keppti í kringlukasti á Ólympíuleikunum í Ríó í sumar
Hefur náð ótrúlegum
árangri á stuttum ferli
guðni valur tekur við
viðurkenningunni
úr höndum hilmars
ritstjóra mosfellingsBæjarblaðið Mosfellingur hefur
staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins
síðastliðin ár. Nafnbótina hafa hlotið:
2005 Sigsteinn Pálsson
2006 Hjalti Úrsus Árnason
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
2008 Albert Rútsson
2009 Embla Ágústsdóttir
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
2011 Hanna Símonardóttir
2012 Greta Salóme Stefánsdóttir
2013 Hljómsveitin Kaleo
2014 Jóhanna Elísa Engelhartsd.
2015 Sigrún Þ. Geirsdóttir
2016 Guðni Valur Guðnason
moSfEllInGuR ÁRSInS
kastað í ríó
Leikfélag Mosfellssveitar
kynna ævintýrasöngleikinn
eftir Þorvald Þorsteinsson
með tónlist eftir
Jóhann G. Jóhannsson
Leikstjórn: Agnes Wild
Frumsýning 22. janúar 2017
Sýningar á sunnudögum kl. 14:00
í Bæjarleikhúsinu, Mosfellsbæ
Miðaverð: 2.500 kr.
Miðapantanir í síma 566-7788
586 8080
selja...
hafðu samband www.fastmos.is
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Mynd/RaggiÓla
Mos-
fell-
ingur
ársins
2016
Guðni valur er sá
tólfti sem hlýtur
nafnbótinahefur náð ótrúlegum
árangri á stuttum tíma
goggi galvaski var
skemmtilegasta mótið 6
Kringlukastarinn
og Ólympíufarinn
Guðni Valur
Guðnason
MOSFELLINGUR
1. tbl. 16. árg. fimmtudagur 1
2. janúar 2016 DReift fRít t inn
á öll heiMili og fyRiRtæki í Mo
sfellsbæ, á k jalaRnesi og í k jÓ
s
R É T T I N G AV E R K S TÆ Ð I
Jóns B. ehf
Flugumýri 2, Mosfellsbæ
Símar: 566 7660 og 697 7685 jonrett
@internet.is
www.jonb.iS
Þjónustuverkstæði
Bílaleiga
á staðnum
cabas
tjónaskoðun
ný
skiptum um framrúður
Mosfellingur
á netinu