Mosfellingur - 12.01.2017, Qupperneq 16
Badmintonmaður
Aftureldingar 2016
Kristinn Breki Hauksson er 17 ára. Hann
byrjaði að æfa badminton innan við 10 ára
og hefur stundað íþróttina hjá Aftureld-
ingu alla tíð.
Afrek á árinu:
-Íslandsmeistari í tvíliðaleik U17.
-Hefur unnið til fjölda verðlauna á
unglinga- og fullorðinsmótum, bæði í
einliða- og tvíliðaleik.
-Vann sig upp í A-flokk í fullorðins-
flokkunum á árinu. Flokkaskipting á
fullorðinsmótum skiptist í meistaraflokk,
A og B flokk.
Kristinn stundar æfingarnar af alúð,
mætir ávallt og leggur sig allan fram.
Hann tekur þátt í öllum mótum sem kost-
ur er. Til að bæta enn meira við æfing-
arnar þá hefur hann, auk þess að sækja
æfingar hjá Aftureldingu, sótt æfingar hjá
Badmintondeild Hafnarfjarðar.
Kristinn Breki Hauksson badminton
Íþróttamaður Golfklúbbs
Mosfellsbæjar 2016
Kristján Þór er 28 ára gamall kylfingur.
Kristján hefur stundað golf hjá Golfklúbbi
Mosfellsbæjar frá um 10 ára aldri.
Kristján hefur sýnt það á undanförnum
árum að hann er einn allra besti kylfingur
landsins. Kristján sigraði með yfirburðum
á meistaramóti GM auk þess að sigra
á lokamóti ársins á Eimskipsmótaröð-
inni, Honda Classic mótinu. Þar setti
Kristján nýtt vallarmet þar sem hann lék
lokahringinn á 7 höggum undir pari.
Þegar tvö mót eru búin af keppnistíma-
bilinu 2016-2017 er Kristján Þór efstur á
stigalista Eimskipsmótaraðarinnar.
Kristján Þór Einarsson golf
Íþróttamaður handknattleiks-
deildar Aftureldingar 2016
Hann hefur æft og keppt í handbolta
með uppeldisfélagi sínu Aftureldingu
frá því hann flutti frá Akureyri þegar
hann var ungur drengur í 4. flokki. Árni
Bragi er harðduglegur íþróttamaður,
öflugur og þroskaður leikmaður og
spilar stórt hlutverk í liði mfl. karla.
Hann átti stóran þátt í frábærum
árangri Aftureldingar í Olísdeildinni á
síðasta tímabili.
Árni Bragi er fjölhæfur og klókur
leikmaður og getur spilað bæði sem
hornamaður og í hægri skyttu. Hann
er jafnframt einn fljótasti og besti
hraðaupphlaupsmaður deildarinnar.
Árni Bragi hefur allt til að bera sem
góður íþróttamaður þarf að hafa að
leiðarljósi til að ná góðum árangri.
Hann sinnir æfingum af dugnaði og
samviskusemi, er reglusamur og
meðvitaður um andlega og líkamlega
þætti sem skipta máli í þjálfun og keppni.
Hann er metnaðarfullur og kappsamur við að ná markmiðum sínum.
Árni Bragi Eyjólfsson handknattleikurKynninG Á ÍÞróttAfólKi
sEM tilnEfnt Er
KosninG fEr frAM
Á www.Mos.is
Úrslit vErðA tilKynnt
fiMMtudAGinn 19. jAnÚAr
Kosning fer fram á vef Mosfellsbæjar www.mos.is dagana 12. -
16. janúar. velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og konu í 1., 2. og 3.
sæti. Kosningin er ekki gild nema valið sé í öll þrjú sætin. Úrslit verða
kynnt fimmtudaginn 19. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt aðal- og varamönnum
í Íþrótta- og tómstundanefnd, að kjósa íþróttakarl
og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2016.
Efst í kjöri árið 2015