Mosfellingur - 12.01.2017, Page 17

Mosfellingur - 12.01.2017, Page 17
Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2016 Íþróttamaður blakdeildar Aftureldingar 2016 Eduardo Berenguer kom til félagsins haustið 2015 og var mikill liðsstyrkur fyrir uppbygginguna í karlaliði félagsins. Hann kom með þekkingu og reynslu inn í liðið sem hann er óspar á að miðla öðr- um og yngri leikmönnum sérstaklega og er hann þeim góð fyrirmynd í íþróttinni. Eftir fyrri umferðina á síðustu leiktíð var hann valin besti kantspilarinn á Íslandi. Blakdeildin telur að Eduardo sé vel að þessum titli kominn því í uppbygg- ingunni skiptir fyrirmyndin miklu máli ásamt reynslu og jákvæðni. Eduardo Berenguer blak Frjálsíþróttamaður Aftureldingar Guðmundur Ágúst Thoroddsen er 21 árs og er með fremstu spretthlaupurum hér á landi síðasta ár. Hann er kominn á þann aldur að öll keppni er hörð til að ná landsliðssæti. Guðmundur hefur æft hjá Frjálsíþróttadeild Aftureldingar í um fimm ár og er gríðarleg góð fyrirmynd allra íþróttamanna. Hann leggur mikið á sig til að ná settum markmiðum og bæting um 10% úr sekúndu er mikill sigur í einni sprett- hlaupsvegalengd í einu keppnishlaupi. Guðmundur á kost á því að fara sex sinnum á æfingar í hverri viku og hver æfing er stundum í þrjár klukkustundir. Þessi íþróttamaður á mikið inni og með miklum sjálfsaga mun hann ná langt. Helsti árangur 2016: Íslandsmeistari í flokki 20 til 22 ára á Meistaramóti Íslands í ágúst sl. í 100, 200 og 400 m. Guðmundur Ágúst Thoroddsen frjálsíþróttir Kynning á íþróttakörlum sem tilnefndir eru vegna kjörs til íþróttakarls Mosfellsbæjar 2016, og afrekum þeirra á árinu. Hestaíþróttamaður Harðar 2016 Reynir Örn er framúrskarandi afreks- maður í hestaíþróttinni. Hann hefur verið valinn hestaíþróttamaður Harðar níu sinnum og var valinn íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2015. Hann er alinn upp í Herði og hefur aðeins keppt sem Harðarmaður. Hann hefur oft keppt fyrir Ísland erlendis og var árið 2016 engin undantekning. Reynir varð í öðru sæti í fimmgangi á Norðurlandamóti í Noregi. Hann varð Íslandsmeistari í samanlöguðum fimmgangsgreinum á Íslandsmótinu í sumar. Reynir er mjög góð fyrirmynd yngri kynslóða í Herði. Hann keppti á öllum mótum sem Hörður hélt, ásamt því að keppa á öllum stórmótum sem haldin voru á Íslandi og var nánast alltaf í úrslitum. Reynir Örn er á heimslista FEIF Worldranking 2016 sem eru heimssamtök Íslandshesta, hann er þar í 5.sæti í slaktaumatölt T2 - 6. sæti í samanlögðum fimmgangsgreinum. Hestamannafélagið Hörður er mjög hreykið af því að hafa svo frábæran afreksmann innan sinna raða. Reynir Örn Pálmason hestaíþróttir Knattspyrnumaður Aftureldingar 2016 Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban lék alla 22 leiki Aftureldingar í sumar og skoraði í þeim 11 mörk og var markahæsti leikmaður liðsins. Wentzel Steinarr lagði sömuleiðis upp annað eins af mörkum, bæði úr opnum leik og með frábærum spyrnum úr föstum leikatriðum. Það má því segja að Wentzel Steinarr hafi verið afar mikilvægur hlekkur í liði Aftureldingar sem var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Inkasso deildinni að ári. Wentzel var annað árið í röð fyrirliði liðsins og hefur vaxið mikið í því hlutverki. Wentzel sýndi mikla leiðtoga- hæfni i sumar, innan vallar sem utan, og var fyrirmynd fyrir yngri leikmenn liðsins. Wentzel var kjörinn leikmaður ársins á lokahófi Aftureldingar og hlaut yfirburða kosningu. Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban knattspyrna KoSninG Á WWW.MoS.iS

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.