Mosfellingur - 12.01.2017, Side 20
Ásgeir Sveinsson hóf störf ungur að árum hjá Heildverslun Halldórs Jónssonar en árið 2008 tók hann
við framkvæmdastjórastöðu fyrirtækis-
ins. Þarfir viðskiptavina eru ávallt hafðar í
öndvegi og kappkostað er að veita framúr-
skarandi þjónustu en fyrirtækið skiptist
í þrjár deildir, snyrtivöru-, hárvöru- og
verslunardeild.
Ásgeir segir að rekstur fyrirtækisins sé
svipaður því að þjálfa lið í hópíþrótt. Það
þarf að vera með rétta liðið í höndunum,
allir þurfa að vera vel þjálfaðir og þekkja
sín hlutverk.
Ásgeir er fæddur í Reykjavík 23. janúar
1967. Foreldrar hans eru þau Áróra Sjöfn
Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur og
Sveinn Kjartansson framkvæmdastjóri.
Áróra lést árið 1989. Ásgeir er miðjubarnið
í systkinahópnum en hann á einnig fjögur
hálfsystkini.
„Ég er alinn upp í Breiðholti og í Vestur-
bænum. Þegar ég var sjö ára þá skildu for-
eldrar mínir og mamma flutti til Danmerk-
ur til að fara í framhaldsnám. Við systkinin
fluttum til móðurömmu okkar og afa og ól-
umst upp hjá þeim þangað til við fluttum
að heiman.“
Forréttindi að alast upp í Selvogi
„Mínar helstu æskuminningar eru frá
Hlíðarvatni í Selvogi. Föðurafi minn og
amma áttu hús við vatnið og þar dvöldum
við bræðurnir með þeim öll sumur. Við
fórum í silungsveiði, fjallgöngur og önnur
spennandi náttúruævintýri.
Það voru algjör forréttindi að hafa feng-
ið að alast upp í þessu umhverfi og læra til
verka í þessari náttúruperlu sem Selvogur-
inn er.“
Íslandsmeistarar upp alla flokka
„Frá tíu ára aldri tóku íþróttirnar
við og ég spilaði mest með Víkingi,
fótboltinn á sumrin og handboltinn á vet-
urna. Minn árgangur og árgangarnir í kring
voru mjög sterkir í handbolta og við urðum
Íslandsmeistarar upp alla yngri flokkana
sem var mjög gaman.
Afi og amma sem ég ólst upp hjá voru
mjög virk í störfum hjá Víkingi og heimilis-
lífið var litað af störfum þeirra fyrir félag-
ið. Þau mættu á alla leiki þannig að mað-
ur fékk mjög gott íþróttauppeldi og bjó við
mikinn stuðning.
Ég byrjaði ungur að þjálfa handbolta og
tók allar þjálfaragráður sem í boði voru hér
á landi í þeim fræðum. Ég starfaði sem þjálf-
ari hjá Víkingi, Fram og Aftureldingu.“
Ætlaði að verða kennari
Ásgeir gekk í Breiðagerðis-
skóla og svo í Réttarholts-
skóla. „Mér fannst alltaf
gaman í skólanum og eignaðist góða vini
sem ég held ennþá sambandi við.
Ég tók þátt í öllu félagslífi, sérstaklega í
Réttó, og var formaður nemendaráðs í tvö
ár. Eftir Réttó fór ég í Fjölbraut í Ármúla á
íþróttabraut. Ég ætlaði að verða íþrótta-
kennari og fara í ÍKÍ á Laugarvatni. Eftir
útskrift, sem var um áramót, sótti ég um
á Laugarvatni og fékk inngöngu sem var
mjög erfitt á þeim tíma.
Þar sem skólinn átti ekki að byrja fyrr en
um haustið þá ákvað ég að fara að vinna
og sótti um starf hjá Heildverslun Halldórs
Jónssonar. Planið var að vera þar þangað til
að ég færi í námið. Ég ákvað svo að fresta
því um eitt ár en sá frestur lengdist held-
ur betur því ég er ekki farinn ennþá,“ segir
Ásgeir og hlær.
„Ég starfaði einnig í aukavinnu á íþrótta-
deild Bylgjunnar í 10 ár við lýsingar á hand-
og fótboltaleikjum.“
Fluttu til Noregs
„Hjá Halldóri starfaði ég til ársins 1996 en
þá ákvaðum við hjónin að flytja til Noregs
en ég er giftur Helgu Sævarsdóttur hjúkrun-
ar- og lýðheilsufræðingi. Sonur okkur Elvar
var þá orðinn tveggja ára. Í Noregi fór ég í
háskólanám í markaðsfræðum og stjórnun.
Plön okkar breyttust vegna veikinda í fjöl-
skyldu Helgu og við fluttum heim ári síðar
og þá á Egilsstaði þar sem við bjuggum í
rúmt ár en Helga er ættuð þaðan. Þetta ár
starfaði ég hjá Landflutningum.
Við Helga eignuðumst tvö börn til við-
bótar, þau Ásu Maríu sem er fædd 1998, og
Hilmar sem er fæddur 2000. Við keyptum
okkur hús í Mosfellsbæ og Helga hóf störf
á Heilsugæslunni. Heimilislíf okkar gengur
mikið út á íþróttir, útivist og ferðalög bæði
innanlands og utan.“
Tókum ekki þátt í góðærispartíinu
„Eftir að við fluttum að austan hóf ég
störf hjá Lystadún Markó sem var í eigu HJ
og starfaði þar til 2001. Þaðan fór ég aftur til
Halldórs og byrjaði sem deildarstjóri en tók
svo við sem framkvæmdastjóri árið 2008,
korteri í hrun.
Þetta er 60 ára gamalt fyrirtæki og hjá
okkur starfa 30 manns. Það var mikil áskor-
un og lærdómur að taka við sem stjórnandi
í innflutningsfyrirtæki á þessum tíma.
Við áttum því láni að fagna að hafa ekki
tekið þátt í góðærispartíinu og stóðum því
styrkum fótum. Þetta reyndist okkur vel,
við náðum að bæta við okkur merkjum og
stækka fyrirtækið.
Að reka svona fyrirtæki er eins og að
þjálfa lið í hópíþrótt. Sterk liðsheild skiptir
mestu máli. Það þarf að vera með rétta liðið
í höndunum, allir þurfa að vera vel þjálfað-
ir og þekkja sín hlutverk. Ég hef lagt mikla
áherslu á þessa þætti sem stjórnandi.“
Liðið stefnir á að vinna titla á næstunni
Handboltinn hjá Aftureldingu hefur
skipað stóran sess í lífi Ásgeirs. Fyrst starf-
aði hann sem þjálfari en undanfarin ár hef
hann verið formaður meistaraflokksráðs.
„Í kringum meistaraflokkinn starfar öfl-
ugur hópur sjálfboðaliða sem hefur unnið
faglega og með þolinmæði að markmiðum
sínum varðandi liðið undanfarin ár. Okkar
stefna er að byggja liðið upp á uppöldum
Aftureldingarmönnum. Það hefur tekist
og við stefnum að því að liðið vinni titla á
næstu misserum. Við erum með mjög hæf-
an þjálfara, Einar Andra Einarsson, sem er
með öflugt teymi með sér sem tryggir fag-
lega og góða þjálfun.“
Finnum fyrir miklum stuðningi
Síðastliðið haust tók til starfa handbolta-
akademía hjá FMos í samstarfi við Aftur-
eldingu og er því óhætt að segja að það sé
í gangi víðtækt, markvisst og öflugt starf í
handboltabænum Mosfellsbæ.
„Við finnum fyrir miklum stuðningi
bæjarbúa sem hefur aukist að undanförnu
vegna góðs árangurs sem okkar unga lið
hefur náð. Stemningin á heimaleikjunum
er mikil en við myndum gjarnan vilja sjá
enn fleiri fjölskyldur á pöllunum.
Ég get fullyrt að bestu áhorfendurnir í
handboltanum á Íslandi eru í Mosó, stemn-
ingin er alltaf að verða betri og betri sem er
okkar markmið.“
Stærsta og flottasta þorrablótið
Ég spyr Ásgeir hvað hann ætli að gera í
tilefni tímamótanna en hann á 50 ára af-
mæli í enda mánaðarins? „Planið er að
halda afmælispartí en fyrst þarf ég að huga
að enn stærra partíi sem er Þorrablót Aftur-
eldingar, það verður haldið 21. janúar.
Við Helga höfum starfað í þorrablóts-
nefnd í nokkur ár með frábæru fólki. Í ár er
10 ára afmælisblót sem verður það stærsta
og flottasta hingað til. Undanfarin tvö ár
hefur verið uppselt og það stefnir í að það
verði aftur í ár.“
- Mosfellingurinn Ásgeir Sveinsson20
Ásgeir og Helga á brúðkaupsdaginn 1. júlí 1995.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni.
Það voru algjör forréttindi
að hafa fengið að alast
upp í þessu umhverfi og læra
til verka í þessari náttúruperlu
sem Selvogurinn er.
Ásgeir Sveinsson framkvæmdastjóri hjá Halldóri Jónssyni ehf. og formaður meistara-
flokksráðs karla í handbolta fullyrðir að bestu áhorfendur á Íslandi séu í Mosó
Sterk liðsheild
skiptir mestu máli
HIN HLIÐIN
Hvernig slakar þú best á? Í heita
pottinum í Ásholtinu eftir góða útivist.
Besta bíómynd allra tíma?
Forrest Gump.
Hvert er neyðarlegasta atvik sem þú
hefur lent í? Þegar ég var í viðskiptaferð
í Frakklandi og stakk upp í mig myndar-
legri wasabi-kúlu við kvöldverðarborðið
sem ég hélt að væri guacamole. Gleymi
ekki furðusvipnum á sessunautum mín-
um, hitanum, sviðanum og tárunum sem
fylgdu á eftir.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Uppi á Helgafelli á fallegum degi.
Uppáhaldsverslun?
Mér leiðist í búðum en útivistar-
og íþróttaverslanir eru skástar.
Þrjú orð sem lýsa þér best?
Duglegur, þrjóskur, bjartsýnn.
Hvað heillar þig í fari fólks?
Frumkvæði, heiðarleiki og húmor.
Hvaða matur freistar þín? Lamb
með bernaise og nánast öll villibráð.
hilmar, elvar
og ása maría
bræðurnir
kjartan og ásgeir
ásgeir og helga
á hornströndum