Mosfellingur - 12.01.2017, Qupperneq 23
HáHolti 13-15 - sími 578 6699
Mörg ef ekki flest sálfræðileg
vandamál má með einum eða
öðrum hætti tengja við laka eða
neikvæða sjálfsmynd. Vissulega
má rökræða hvort sé orsök og
hvort sé afleiðing en burtséð frá
því er ljóst að jákvæð sjálfsmynd
er mikilvæg fyrir hamingjuríkt
og farsælt líf.
Oft er talað um að börn, og þá sér-
staklega unglingar, séu í leit að sjálfum
sér. Þótt sumum kunni að finnast orða-
lagið skrýtið er þetta ekki svo fjarri lagi
því þegar við þroskumst eflist tilfinning
okkar fyrir því hver við erum og sjálfs-
myndin mótast. Persónueinkenni koma
stöðugt betur í ljós og við lærum á styrk-
leika okkar og veikleika.
Sjálfsmynd er í raun allar þær hug-
myndir sem einstaklingur hefur um
sjálfan sig og hvað honum finnst um
sjálfan sig. Öll reynsla hefur áhrif á og
mótar skoðanir barna um þau sjálf. Það
hvernig aðrir bregðast við þeim, þeirra
eigin viðbrögð í ólíkum aðstæðum og
þær ímyndir sem haldið er að þeim í
samfélaginu öllu hefur áhrif á þá mynd
sem þau hafa af sjálfum sér.
Meðvitaður og ómeðvitaður
samanburður á því hver þau
eru og hver þau vildu vera eða
við aðra sem þau vildu gjarnan
líkjast litar sjálfsmynd þeirra.
Til að myndin verði litrík og
falleg og börnunum líði vel í
eigin skinni er mikilvægt að
þau séu hvött til dáða, þeim sé hrósað
þegar við á og þau finni vel hvað okkur
þykir vænt um þau. Hrós, bros, faðmlag
og vinalegt viðmót skiptir miklu máli
þegar kemur að því að styrkja jákvæða
sjálfsmynd barna á mótunarárunum.
Öllum er okkur nauðsynlegt að lifa
í sátt við eigin persónu – og umhverfi
okkar. Gott sjálfstraust og trú á eigin
getu eru ein öflugasta forvörnin gegn
áhættuhegðun og besta tryggingin fyrir
vellíðan og velgengni í lífinu. Stuðlum
því markvisst að jákvæðri sjálfsmynd
barna okkar og eflum sjálfstraust þeirra
á allan þann hátt sem okkur er unnt.
HuldaSólrúnGuðmundsdóttir,
sálfræðingurogforeldri
Í sátt við sjálfan sig
SkólaSkrifStofa moSfellSbæjar
Skóla
hornið
KOMDU Í SKÁTANA!
fálkaskátar
5.-7. bekkur
Fimmtudagar frá 16-17:30
eða 17:30-18
Drekaskátar
3.-4. bekkur
3. bekkur: Mánudagar kl. 16-17
4. bekkur: Mánudagar kl. 17-18
REKKAskátar
Framhaldsskóli
Mánudagar kl. 20-21:30
dróttskátar
8.-10. bekkur
Miðvikudagar kl. 20-21:30
Skátastarfið hefst á ný eftir jólafrí vikuna 9.-15. janúar
skátafélagið mosverjar
Skálanum álafossvegi 18 - Sími: 566 6455
mosverjar.is - facebook.com/mosverjar
www.mosfellingur.is - 23