Mosfellingur - 12.01.2017, Page 28
- Aðsendar greinar28
Opnunartími
sundlauga
lágafellslaug
Virkir dagar: 06:30 - 21:30
Helgar: 08:00 - 19:00
Varmárlaug
Virkir dagar: 06:30-08:00 og 15:00-21:00
Laugard. kl. 08:00-17:00 og sunnud. kl. 08:00-16:00
Þjónustuauglýsing
í mosfellingi
kr. 5.000 + vsk.*
nafnspjaldastærð = 97 x 52 mm
*Miðast við 5 birtingar eða fleiri - mosfellingur@mosfellingur.is
Háholti 14 | Mosfellsbæ | s. 520 3200
www.artpro.is
Þjónusta við mosfellinga
a
Háholti 14 • 270 Mosfellsbæ • arioddsson@arioddsson.is
Símar: 895-0383 / 867-7704 / 564-4070
www.arioddsson.is
FAGMENNSKA Í FYRIRRÚMI
MÚRVERK - FLÍSALAGNIR - ALMENN VIÐHALDSVINNA
SAUMA.IS
Viðgerðir og brey�ngar á öllum fatnaði ásamt
gluggatjaldasaum.
Opið: Mánudaga—Föstudags 13:00—17:00
Nethylur 2a, 2 hæð 110 Reykjavík Sími: 770 3997 - sauma@sauma.is
Gleðilegt nýtt ár til ykkar allra með þökk
fyrir liðin. Fram undan er mikil og stór-
brotin dagskrá á döfinni í samvinnu
við Félagsstarfið og Elvu Björgu að Eir-
hömrum.
Við skulum gera allt sem við getum
til að njóta þess sem í boði er. Þjóð-
sagnanámskeið mun byrja þann 17.
janúar n.k. ef næg þátttaka fæst. Enn
eru örfá sæti laus. Skráið ykkur hjá famos@fa-
mos.is sendið inn nafn, og símanúmer ásamt
kennitölu.
Við erum að byrja fjórðu önnina í Módel-
smíðinni og þar er svo til fullbókað. Listmálun
er að hefjast á nýjan leik. Síðan eru tréútskurður,
bókband, glervinnsla og hugsanlega kennsla á
spjaldtölvur ef næg þátttaka fæst ásamt að venju
hannyrðum.
Allar ýtarlegri upplýsingar fást hjá Félagsstarf-
inu að Eirhömrum. Tekið verður í spil og spilað
bingó ásamt félagsvist sem mun verða auglýst
nánar.
Eitt atriði fyrir aldraða og eldri borgara er að
hafa eitthvað fyrir stafni og láta sér ekki leiðast.
Í mínum síðasta pistli fyrir áramót setti ég
fram spurninguna: „Erum við á réttri leið?“
Ýmis lög hafa síðan verið samþykkt á Alþingi.
Þar á meðal Lög um breytingu á lögum um al-
mannatryggingar. Ég vil því skoða málið betur.
Þegar ég tók að mér formennsku í stjórn Fa-
Mos, fyrir nærri þremur árum síðan, varð mér
ljóst að ein besta kjarabót fyrir þá aldurshópa
sem eru í félaginu og sem hætt hafa atvinnu-
þátttöku, væri að knýja á um skatta-
tilslakanir. Þegar á hólminn var komið
var það deginum ljósara að nær útilok-
að væri að óska eftir tilslökun og vægari
skattlagningu á eldri borgara.
Ein fyrsta ábendingin sem kom frá
þingmanni úr kjördæminu var sú,
að hendur alþingismanna væru svo
bundnar við stjórnarskrá Íslands, sér-
stakleg 65. gr. um að allir skuli vera jafnir fyrir
lögum. Nýlega samþykkt ofannefnd lög bera því
miður með sér m.a. eftirtalin atriði sem spurn-
ingar vakna um.
1. Enn er ekki búið að samhæfa lögin við eldri
útgáfu laganna. Hvers vegna ekki?
2. Ef ákvæði um jafnrétti á að gilda, ættu ein-
hleypingar að hafa sérstakar bætur vegna hús-
næðis umfram gifta? Er verið að stuðla að auk-
inni skilnaðartíðni?
3. Sagt er manna á milli að um 4.200 einstakl-
ingar verði af svokölluðum grunnlífeyri sem var
á bilinu 40-47.000 á mánuði, ef þeirra sparnað-
ur og ráðdeild gefur þeim meira en 531.406 kr.
á mánuði. Upphæðin kemur hvergi fram í lög-
unum. Hvers vegna ekki? Er talan fengin fram
með reiknilíkönum? Sumir segja að hér sé um
eignaupptöku að ræða. En hver hefði trúað því
á fráfarandi ríkisstjórn?
4. Líklegt er að sumir njóti einhverra lagfær-
inga með þessum nýju lögum. Það er í góðu
lagi.
Bestu félagskveðjur.
Harald S. Holsvik, formaður stjórnar FaMos.
Kæru FaMos félagar
Rauði krossinn í Mosfellsbæ óskar bæj-
arbúum og landsmönnum öllum gleði-
legs og farsæls nýs árs.
Við viljum þakka kærlega þeim fjöl-
mörgu sem hafa ljáð okkur hluta af því
dýrmætasta sem við öll eigum, þ.e.
tíma, við að skapa betra samfélag á
starfssvæði okkar.
Starfssvæði Rauða krossins í Mos-
fellsbæ er nokkuð stórt og byggðin dreifð. Við
störfum því ekki aðeins í Mosfellsbæ, heldur
einnig á Kjalarnesi og í Kjósinni. Verkefnin eru
fjölmörg og fjölbreytileg. Sum þeirra ná út fyrir
starfssvæði deildarinnar, auk þess sem við tök-
um þátt í ýmsum verkefnum á vegum RkÍ og
alþjóða Rauða krossins. Einnig vinnum við að
ýmsum verkefnum með öðrum Rauða-kross-
deildum á höfuðborgarsvæðinu s.s. að neyðar-
vörnum og málefnum hælisleitenda.
Eftir að Útlendingastofnun tók Víðines á leigu
má ætla að stór hluti hælisleitenda á Íslandi búi
á starfssvæði deildarinnar, en fyrir var töluverð-
ur fjöldi hælisleitenda í Arnarholti á Kjalarnesi.
Við erum einnig þannig staðsett að stór hluti er-
lendra ferðamanna fer í gegnum bæinn okkar á
leið sinni um Gullna hringinn, uppsveitir Árnes-
sýslu og Hringveginn til norðurs.
Deildin hefur því tvisvar á síðasta ári og nú
þegar einu sinni á þessu ári, þó nýhafið sé, þurft
að opna Fjöldahjálparstöð fyrir erlenda ferða-
menn sem hafa lent í hrakningum eða slysum.
Það er því í mörg horn að líta.
Deildin stóð fyrir nokkrum fjáröflunum á
síðasta ári, þar sem aflað var tekna til verkefna
deildarinnar. Tilgangurinn með þessum fjáröfl-
unum var ekki síður sá að hitta íbúa svæðisins
og eiga við þá samtal. Sem dæmi má nefna að
deildin var með skottsölu á bæjarhátíðinni „Í
túninu heima“, auk þess sem ungir og upprenn-
andi listamenn söfnuðu fyrir deildina með tón-
leikum á hátíðinni.
Nú stendur yfir rúðusköfusala, þar sem fólk
getur stutt við starfið og eignast í leið-
inni handhæga rúðusköfu í bílinn
merkta Rauða krossinum og með áletr-
uninni „Byggjum betra samfélag“ á
nokkrum tungumálum. Hægt er kaupa
rúðusköfuna á skrifstofu deildarinnar í
Rauðakrosshúsinu að Þverholti 7, auk
þess sem hún hefur verið seld á fjöl-
fjörnum stöðum.
Þeir fjármunir sem safnast hafa í þessum fjár-
öflunum renna óskiptir til verkefna deildarinn-
ar. Einnig er hægt að styrkja starfið með því að
gerast félagsmaður í deildinni. Félagsgjaldinu er
mjög í hóf stillt. Deildin er svo lánsöm að vera
með þónokkurn fjölda félagsmanna, en félags-
gjaldið rennur óskipt til deildarinnar að frádreg-
inni innheimtuþóknun. Að gerast félagsmaður
og greiða félagsgjaldið er því góð leið til að styðja
við deildina hér í Mosfellsbæ með einni hóflegri
greiðslu á ári.
Vilji fólk styðja enn betur við starf RkÍ er hægt
að gerast Mannvinur, en þeir greiða mánaðar-
legt framlag. Það framlag rennur ekki beint til
deildarinnar hér, heldur fer til ýmissa verkefna
RKÍ.
Um leið og Rauði krossinn í Mosfellsbæ þakk-
ar kærlega fyrir allan þann stuðning sem hann
hefur fengið með beinum fjárstuðningi og í
formi dýrmæts tíma sjálfboðaliða, þá viljum við
einnig þakka fyrir allar ábendingarnar og hlý
orð í okkar garð. Við hvetjum fólk áfram til að
hafa samband og láta vita hvar þrengir að. Leita
upplýsinga um starfið og taka þátt. Hér gildir að
betur sjá augu en auga og margar hendur vinna
létt verk.
Það er einnig ómetanlegt fyrir okkur sjálfboða-
liðana og verkefnastjóra að heyra að fólk kunni
að meta það sem vel er gert og eftir því tekið sem
við gerum til að byggja betra samfélag.
Fyrir hönd Rauða krossins í Mosfellsbæ,
Hilmar Bergmann, formaður stjórnar.
Kæru bæjarbúar og nærsveitungar
Næsta blað kemur út: 2. feb
Efni og auglýsingar skulu
berast fyrir kl. 12, mánu-
daginn 30. janúar.
mosfellingur@mosfellingur.is