Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Side 2
2 4. janúar 2019FRÉTTIR
Þ
ykkvabæjarsnakkið fæst
hvergi. Mér skilst að fram-
leiðslunni hafi verið hætt,“
segir ónefndur heimildar-
maður í textaskilaboðum til blaða-
manns. Sá gengur undir nafninu
Nostalgíu-Halli og elskar allt það
sem tengdist íslenskri dægur-
menningu á síðustu öld. Slíkar
ábendingar eru líf og yndi okkar
fjölmiðlamanna, sérstaklega á erf-
iðum fréttadögum. „Hvers eiga
beikonbugðufíklar að gjalda?“
hugsaði blaðamaður og hóf þegar
rannsóknarvinnu. Ekki bara fyrir
sig og Nostalgíu-Halla heldur fyrir
þjóðina alla.
Ein dýrasta auglýsing
Íslandssögunnar
Ef ungmenni eða einhverjir með
skert langtímaminni eru að lesa
þessa grein þá er mikilvægt að
staldra við. Þetta er ekkert gaman-
mál. Þykkvabæjarnaslið hefur lif-
að með þjóðinni í áratugi, þökk sé
ekki síst eftirminnilegri sjónvarps-
auglýsingu sem á líklega Íslands-
met í langlífi.
Þar fer stórleikarinn Rúrik Har-
aldsson á kostum en auglýsingin
er líklega ein sú dýrasta sem fram-
leidd hefur verið. Það var ekki síst
vegna þess að í lok auglýsingarinn-
ar stakk persóna Rúriks Þykkva-
bæjarsnakki upp í sig og um leið
og hann sagði hina goðsagna-
kenndu línu: „Trúir þú á álfasög-
ur?“ þá stækkuðu eyru hans. Það
þótti mikið tækniundur á sínum
tíma og kostaði sitt.
Áður hafði Egill Ólafsson hafið
upp raust sína með eftirminnileg-
um hætti. „Þar lifa litlir grasálf-
ar með langar grænar húfur, sem
grafa þar upp gullin sín og gera
úr þeim skrúfur,“ söng Egill og á
meðan hömuðust lúsiðnir álfar
við að framleiða snakk. Ljúffengt
íslenskt snakk.
Á meðan minningarnar helltust
yfir blaðamann rannsakaði hann
málið fljótt og vel. Ekkert snakk
var að finna á vörusíðum Þykkva-
bæjar og því var ekkert annað í
stöðunni en að hringja í fyrirtæk-
ið. Þegar réttur einstaklingur svar-
aði loks tók martröðin við. „Já,
við erum hætt með þessar vörur í
framleiðslu. Það var í september,“
staðfesti fulltrúi fyrirtækisins.
„Ókei, í september núna í fyrra,“
sagði undirritaður annars hugar
á meðan hann skrifaði niður svar-
ið. „Nei, árið 2017,“ sagði starfs-
maðurinn. „Ha?“ var það eina sem
blaðamaður gat stunið upp.
Í ljós kemur að martröð beikon-
bugðufíkilsins er verri en nokkurn
grunaði. Eina íslenska kartöflu-
snakkið sem framleitt var á Íslandi
heyrði sögunni til fyrir tæpu einu
og hálfu ári og ekki múkk heyrð-
ist í fjölmiðlum. Aðspurður hvort
fréttatilkynning hefði verið send
út svaraði starfsmaður Þykkva-
bæjar: „Nei, við tilkynntum það
ekkert sérstaklega. Ástæðan var sú
að tollar voru felldir niður á erlent
snakk í byrjun árs
2017 og við gátum
ekki lengur keppt
við þau verð.“
Þrátt fyrir enga
fjölmiðlaumfjöllun
sagði hann að að-
dáendur Þykkva-
bæjarsnakksins
hafi reglulega sam-
band og spyrjist
fyrir um vörurnar.
„Já, við fáum tals-
vert af fyrirspurnum.
Við finnum alveg
að margir sakna
Þykkvabæjarsnakks-
ins,“ sagði starfsmað-
urinn. n
Sous vide
Fyrir nokkrum misserum sló
„sous vide“-eldunaraðferðin í
gegn. Allir keyptu sér tæki og
rúmlega 11 þúsund Íslendingar
gengu í samnefndan hóp á
Facebook. Þegar fárviðrinu
slotaði stóð eftir sú staðreynd
að fólk var að sjóða mat í
plasti. Sous vide-tækin munu
fá heiðurssess í geymslum
landsmanna eins og fóta-
nuddtækin forðum.
Floss
Hinn hressi dans fór sem eldur í
sinu á síðasta ári. Fyrst byrjuðu
börnin og síðan fóru fullorðnir
að reyna fyrir sér. Að sjá
miðaldra fólk reyna að „flossa“
er mannleg eymd í sinni
tærustu mynd. Floss-dansinn
mun falla í gleymskunnar dá
á árinu.
Skegg
Skegg á öllum kynjum er á
útleið. Skegg eru óþægileg,
fagurfræðilega á skjön og
þjóna ekki neinum praktískum
tilgangi.
Tenerife
Hjarðhegðun Íslendinga er
mikil og enginn er maður
með mönnum nema hann
skelli sér til „Tene“. Núna eru
allir búnir að fara og það er
vísindalega sannað að það
er mannskemmandi að fara
ítrekað í sumarleyfi á sama
áfangastað. Fer einhver
lengur í sumarfrí til Rimini eða
Mallorca? Hélt ekki.
Snapchat
Það mun fjöldi fólks nota
Snapchat áfram á árinu en
miðillinn er ekki lengur „kúl“.
Það er auðvitað dauðadómur.
Unga fólkið er farið á aðra
miðla og eftir standa miðaldra
einstaklingar og reyna að halda
í rafrænan æskuljómann.
hlutir sem fara úr tísku árið 2019
Á þessum degi,
4. janúar
871 – Orrustan um Reading er háð.
Aðalráður af Wessex berst við og lýtur í
lægra haldi fyrir innrásarher Dana.
Síðustu orðin
„Mér hefur aldrei liðið
betur.“
– Bandaríski leikarinn Douglas
Fairbanks eldri (1883–1939)
1874 – Samuel Colt selur bandarísku
ríkisstjórninni fyrstu Colt-skamm-
byssuna.
1903 – Fíllinn Topsy er drepinn með
rafstraumi. Það var gert að undirlagi
eiganda Topsy, Luna Park á Coney-eyju í
Brooklyn í Bandaríkjunum.
1972 – Rose Heilbron sest fyrst kvenna
í dómarasæti í Old Bailey í London.
1999 – Jesse Ventura, fyrrverandi
glímukappi, verður ríkisstjóri Minnesota-
fylkis í Bandaríkjunum.
ENGINN TRÚIR LENGUR
Á ÁLFASÖGUR
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Stækkun eyrna Rúriks Haraldssonar
heitins þóttu mikið tækniundur á sínum tíma.
Enginn mun aftur geta bragð-
að á beikonbugðum. Enginn.