Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Síða 6
6 4. janúar 2019FRÉTTIR
Ó
lafur William Hand, upplýs
ingafulltrúi og markaðs stjóri
hjá Eimskip, hefur verið
fundinn sekur um alvarlegt
ofbeldi gegn barnsmóður sinni,
sem og brot gegn barnaverndarlög
um þar sem dóttir þeirra varð vitni
að ofbeldinu. Dómur þessa efnis var
kveðinn upp í Héraðsdómi Reykja
víkur þann 19. desember síðast
liðinn. Atvikið átti sér stað á heim
ili Ólafs sumarið 2016 er móðirin
hugðist sækja dótturina og fara með
hana í sumarleyfisdvöl til Indó
nesíu. Barnsmóðirin, sem fer ein
með forsjá barnsins, greindi frá því
fyrir dómi að af svörum Ólafs fyrir
atvikið teldi hún mega ráða að hann
ætlaði ekki að skila barninu í tíma
fyrir ferðina þrátt fyrir úrskurð sýslu
manns þar um. Vegna þessa og þar
sem hún óttaðist viðbrögð hans hafi
hún kallað eftir lögreglufylgd.
Barnsmóðirin kom á vettvang
með lögreglumanni og sambýlis
manni sínum. Hún fór inn í hús
Ólafs í óleyfi þegar Ólafur opnaði
fyrir henni. Sagði barnsmóðirin í
vitnaskýrslu að hún hefði gert það
þegar hún heyrði barnið kalla til sín
grátandi álengdar. Ólafur var ákærð
ur fyrir að hafa tekið barnsmóðurina
hálstaki og þrengt ítrekað að hálsi
hennar, hrint henni þannig að hún
féll í gólfið, rifið í hár hennar og ýtt
henni utan í vegg. Þá er eiginkona
Ólafs ákærð fyrir að hafa hlaupið ít
rekað á konuna og klórað hana. Hin
ákærðu sökuðu barnsmóðurina um
húsbrot og ofbeldi á vettvangi. Lög
reglan féll hins vegar frá saksókn á
hendur barnsmóðurinni og var sú
ákvörðun síðar staðfest af ríkissak
sóknara.
Ólafur neitaði að hafa tekið
barnsmóðurina hálstaki, hrint
henni í gólfið eða ýtt henni utan í
vegg. Hann segist hins vegar hafa
gripið um hana ofarlega og lagt
hana niður í gólfið.
Áverkar á barnsmóðurinni
Barnsmóðirin kvartaði undan verk
í hálsi eftir atvikið, sársauka við að
kyngja, hósta, blóðbragði í munni,
sem og höfuðverk og verk í herðum
og baki. Þá hafi blóð verið í þvagi
hennar. Hún segist jafnframt hafa
orðið fyrir fósturláti vegna árásar
innar. Staðfest er að hún missti
fóstur um þetta leyti. Samkvæmt
dómsniðurstöðu ber gögn hins
vegar ekki með sér að fósturlátið
megi rekja til árásarinnar. Gögn og
myndir bráðamóttöku LSH vegna
líkamsskoðunar leiða í ljós marga
yfirborðsáverka á hálsi, tognun og
ofreynslu á hálshrygg, yfirborðsá
verka á bakvegg og brjóstkassa, og
loks tognun og ofreynslu á brjóst
hrygg.
Ólafur sakfelldur en eiginkona
hans sýknuð
Ólafur var fundinn sekur um líkams
árás á barnsmóður sína sem og um
brot á barnaverndarlögum þar sem
dómurinn taldi sannað að dóttir
hans hefði orðið vitni að árásinni.
Var hann fundinn sekur um að hafa
tekið barnsmóður sína hálstaki,
þrengt ítrekað að hálsi hennar og
hrint henni þannig að hún féll í gólf
ið – en sýknaður af því að hafa rif
ið í hár hennar og hrint henni utan
í vegg. Er Ólafur dæmdur í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá
er hann dæmdur til að greiða kon
unni 400.000 krónur í miskabætur
og verjanda sínum um 1,5 milljónir
króna.
Eiginkona Ólafs var sýknuð af
ákæru um líkamsárás.
Dráttur á rannsókn kann að hafa
forðað Ólafi frá fangelsisvist en fram
kemur í dómsorði að rannsókn
málsins hafi dregist svo lengi að
óhjákvæmilegt sé að skilorðsbinda
refsingu Ólafs.
Sakaði hana um umgengnis
tálmanir í viðtali við Stöð 2
Ólafur og konan eignuðust dóttur
árið 2006 en þau áttu í frem
ur stuttu sambandi. Í febrúar árið
2017 kom Ólafur fram í löngu við
tali á Stöð 2 þar sem hann sagðist
ekki hafa fengið að sjá dóttur sína
í átta mánuði. Það er nákvæmlega
sá tími sem liðinn var frá þeim at
burðum sem lýst er í framangreind
um dómi héraðsdóms. DV hefur
undir höndum gögn sem sýna að
það er samkvæmt ákvörðun yfir
valda sem Ólafur nýtur ekki reglu
legrar umgengni við barnið. Byggir
sú ákvörðun meðal annars á því að
barnið treystir sér ekki til að hitta
á hann vegna ofbeldisins sem það
var vitni að. Í þeim gögnum kem
ur einnig fram að Ólafur sagði sig
frá ferli þar sem fagmenn unnu
að því, með stuðningi móður, að
byggja upp traust og koma á um
gengni á forsendum barnsins, með
al annars undir eftirliti. Stuttu eftir
að hafa þannig neitað að vinna að
umgengni, fór hann í sjónvarpsvið
tal og ásakaði barnsmóður sína um
tálmanir. Heldur hann því fram að
hún hafi ruðst inn á heimili hans
með ofbeldi. n
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
n Háttsettur hjá Eimskip n Lýsti umgengnistálmunum í sjónvarpi
Ólafur Hand sakfelldur fyrir
ofbeldi gegn barnsmóður sinni
Ágúst Borgþór Sverrisson
agustb@dv.is