Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Síða 10
10 4. janúar 2019FÓKUS
FÓKUS
Gylfaflöt 6 - 8
S. 587 - 6688
fanntofell.is
BORÐPLÖTUR
& SÓLBEKKIR
Einbýlishúsið var skærasta stjarnan í kvikmyndinni Húsið –
Trúnaðar mál sem leikstýrt var af Agli Eðvarðssyni. Kvikmyndin var
gefin út árið 1983 og er fyrst íslenskra hrollvekja í flokki svonefndra
„geiramynda“. Hrollur myndarinnar byggist á dulmögnuðu and-
rúmslofti, flöktandi skuggum og undarlegum draumum.
Húsið, sem var byggt árið 1926, er stórt og reisulegt, um 300 fer-
metrar og hvítt að lit. „Þarna var mjög laglegt hús sem við gerðum
ljótt,“ segir Egill um húsið við Ásvallagötu. „Eigendurnir leyfðu okk-
ur að mála tvær hliðar upp á nýtt. Það stóð þarna hvítt og fínt en við
vildum hafa það grátt og ljótt.“
Jóhann Páll Valdimarsson, sem stýrði Forlaginu og JPV í fjölda
ára, og eiginkona hans, Guðrún Sigfúsdóttir, áttu húsið og lánuðu
hópnum heimilið á meðan þau fóru í frí til Bandaríkjanna. „Kon-
an mín hefur alltaf talað um að það væru vondir andar í húsinu en
ég reyni að leiða drauga hjá mér,“ segir hann og bætir við að Egill og
félagar hafi hrifist svo mikið af húsinu á sínum tíma að annað kom
ekki til greina en að nota það fyrir kvikmyndina, en sögusagnir um
draugagang hefðu ekki sakað hvað andrúmsloftið áhrærði.
K
vikmyndir eru töfraheimur
og margt sem þarf til svo
úr verði heil kvikmynd.
Það er ekki bara fólk í ótal
hlutverkum, bæði fyrir framan og
aftan myndavélarnar. Leikmunir
skipta líka öllu máli, bæði litlir
og stórir, og leikmynd þarf líka að
vera til staðar.
Í mörgum kvikmyndum gegna
hús eða íbúðir stóru hlutverki af
heildarmyndinni og erfitt er að
sjá fyrir sér að myndin væri sú
sama hefði annað hús (eða íbúð)
verið notað. Hver man til dæm-
is ekki eftir húsi McCallister-fjöl-
skyldunnar í Home Alone og íbúð
vinahópsins í Friends?
Sama á við um margar ís-
lenskar kvikmyndir og hér eru
fimm alkunn hús úr þekktum
kvikmyndum.
Húsin í bíó
Ekki er allt sem sýnist
Í kvikmyndinni Ég man þig, sem gerð er eftir samnefndri bók Yrsu
Sigurðardóttur, gegnir hús á Hesteyri á norðanverðum Vestfjörðum
stóru hlutverki. Húsið er þó alls ekki á Hesteyri, heldur stendur það
við Víkurbraut 4 í Grindavík og með aðstoð tölvutækninnar er það
fært til Vestfjarða.
Húsið heitir Bakki og er í eigu Minja- og sögufélags Grindavík-
ur, en félagið eignaðist húsið í maí 2015 og hefur unnið að endur-
byggingu þess. Ég man þig er að miklu leyti kvikmynduð í og við
Bakka.
Bakki er forn verbúð, byggð 1933, og er talin vera elsta uppistand-
andi verbúð á Suðurnesjum. Vonir standa til að í framtíðinni muni
Bakki hýsa byggðasafn Grindvíkinga og aðra menningartengda starf-
semi.
Pét ur Ein ars son, fyrr ver andi
for stjóri Straums og þríþraut-
ar kappi, lánaði íbúð sína í mið-
bæ Reykjavíkur fyrir kvikmynd
Baltasars Kormáks, Eiðurinn,
Pétur lánaði ekki bara íbúð-
ina, heldur líka sjálfan sig, þar
sem hann átti stórleik sem
staðgengill Baltasars Kormáks
þar sem hann synti og hjólaði
af miklum krafti.
Í viðtali við Smartland árið
2016 sagði Pétur: „Ég er svo
hepp inn að eiga íbúð við höfn-
ina með út sýni sem passaði
vel í mynd ina og það var bara
gam an. En þetta var meira fyr-
ir tæki en við gerðum okk ur
grein fyr ir og mikið af tækj um
og fólki í hús inu í nokkra daga
en allt gekk vel á end an um.
Það var vissu lega skrítið að sjá
Gísla Örn og Heru reykja stór ar
jón ur í sóf an um hjá mér en þau
eru frá bær ir leik ar ar og íbúðin
er flott ari eft ir tök urn ar. Það er
mik ill heiður að vera hluti af
stærstu íslensku mynd inni sem
hef ur verið gerð.“
Einn þekktasti sumarbústaður landsins kom við sögu í Stellu í orlofi
(1986), en Stella fékk hann lánaðan og fór með Salomon vin sinn
þangað í afslöppun með kostulegum afleiðingum.
Sumarbústaðurinn, sem er í Norðurnesi í Kjós, var byggður árið
1978. Hann var settur á sölu í júlí 2017 og segir á heimasíðu fast-
eignasalans „mikil eftirspurn var eftir húsinu og fengu færri en
vildu.“ Þegar kvikmyndin var tekin var lítill gróður við bústaðinn,
sem hefur tekið ótrúlegum breytingum á þeim rúmu 30 árum sem
liðin eru frá tökum myndarinnar.
Baltasar Kormákur valdi eitt þekktasta og fallegasta einbýlishús
landsins, sem heimili fjölskyldu persónu hans í Eiðinum; Bakkaflöt
1 í Garðabæ, sem teiknað var af arkitektinum Högnu Sigurðardóttur
árið 1965.
Húsið ber sterk höf und ar ein kenni en í verk um sín um lagði Högna
áherslu á tengsl bygg ing ar við nátt úr una.
Högna var fædd árið 1929 og var fyrst Íslendinga til að læra við
École des Beaux-Arts í París, þaðan sem hún útskrifaðist árið 1960.
Fyrsta húsið sem byggt var samkvæmt hönnun Högnu var ein-
býl is hús í Vest manna eyj um, við Bú astaðabraut 11. Það skemmd ist í
Heima eyj argos inu árið 1973 og er Brekku gerðið því elsta stand andi
verk henn ar.
Bakki – Ég man þig
Ásvallagata 8
– Húsið
Sumarbústaður Antons flugstjóra
– Stella í orlofi
Mýrargata
- Eiðurinn
Högnuhús – Eiðurinn
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is