Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Page 25
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Nýtt ár – nýr lífsstíll
HJÁ HÖLLU:
Heilsusamlegt og gott
SAFA- OG SÚPUVIKAN BYRJAR 7. JANÚAR
Hún Halla María Svans-dóttir hefur lengi boðið fólki upp á hollan og
heilnæman mat og þegar
hún opnaði veitingastaðinn
Hjá Höllu í Grindavík í lok
árs 2015 hafði hún í nokkur
ár sinnt veitingaþjónustu
sem var smá í sniðum, með
heimsendingum og síðar
veitingavagni. En starfsemin
heldur sífellt áfram að vaxa
þar sem grunnurinn er stór
hópur ánægðra viðskipta-
vina sem koma aftur og
aftur. Staðurinn í Grindavík
er að Víkurbraut 62 og tekur
60 manns í sæti. Annar
Hjá Höllu-staður er síðan í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og
tekur 45 manns í sæti. Halla
er auk þess með um 300
viðskiptavini í fyrirtækjaþjón-
ustu og eru það mestmegnis
fyrirtæki í Reykjavík, á meðan
gestir staðarins í Grindavík
eru heimamenn og fólk úr
Keflavík.
„Þó að þetta flokkist sem
heilsuveitingastaður þá eru
þetta ekki bara vegan- eða
grænmetisréttir. Þeir eru
vissulega í boði en hér er líka
hægt að fá kjöt og almennt
er matseðillinn mjög fjöl-
breyttur. En hollustan kemur
ekki síst fram í því að hér ger-
um við allt af frá grunni, vinn-
um okkar eigin sósu og gerum
okkar safa og búst úr ferskum
ávöxtum og grænmeti. Við
notum hreint kjöt og búum til
okkar eigin salatsósu, og svo
framvegis,“ segir Halla.
Safa- og súpuvikan: Góð leið
til að hefja nýtt ár á heilsu-
samlegum nótum
Eftir mikið ofát um hátíðirnar
þurfa margir á því að halda,
og virkilega þrá það, að hefja
nýtt ár á hreinu fæði og gæta
hófs. Mörgum hentar að
hreinsa líkamann með því að
vera á fljótandi fæði í nokkra
daga. Safa- og súpuvikan er
áhugaverður kostur fyrir þau
sem eru í þessum hugleiðing-
um en hún hefst mánudaginn
7. janúar:
„Viðskiptavinir fá þá þrjá
safa, tvö búst og eina súpu
fyrir kvöldið. Þetta er hæfi-
legur dagskammtur til að
ná sér niður eftir hátíðirnar,“
segir Halla.
Nánari upplýsingar og
pantanir eru á vefsíðunni
hjahollu.is. Sjá einnig Face-
book-síðuna Hjá Höllu. n