Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Síða 26
Nýtt ár – nýr lífsstíll 4. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
ÍSLENSKA FLATBAKAN:
Borðum hollari pizzur á nýju ári
P izzur þurfa ekki að vera óhollar og á Íslensku Flatbökunni, Bæjarlind 2, Kópavogi, er boð-
ið upp á mikið úrval af hollum pizz-
um. Allar pizzurnar eru úr súrdegi og
eru einstaklega léttar í maga. Einnig
er í boði glúteinskertur pizzubotn
fyrir þá sem eru með glúteinóþol.
Íslenska Flatbakan er með lands-
ins mesta úrval af vegan-pizzum og
vegan-forréttum. Er hún með fyrstu
veitingastöðum sem buðu upp á
vegan-valmöguleika á matseðlinum.
Pizzurnar á Íslensku Flatblökunni
henta einstaklega vel þeim sem
eru að taka sín fyrstu skref í átt
að vegan-lífsstíl en vilja verðlauna
sig með gómsætum mat af og til.
Pizzurnar geta verið ótrúlega léttar
og ferskar en einnig vel útilátnar og
toppaðar með alls konar sósum eða
olíum. Þeir sem vilja breyta aðeins til
geta líka prófað forréttina eða eftir-
réttina sem eru margir vegan.
Tvær vinsælustu vegan-pizzurnar eru:
Sú Ferska: Súrdeig, pizzasósa, vegan-
-ostur, döðlur, hvítlaukur, klettasalat,
ferskir tómatar, ferskur rauðlaukur, spicy
mayo og svartur pipar.
Sú Fullkomna: Súrdeig, pizzasósa,
vegan-ostur, döðlur, hvítlaukur, sveppir,
þistilhjörtu, salthnetur, basil og sjávar-
salts- og oreganoblanda.
Spennandi tilboð í janúar:
Allar vegan-pizzur á 2.800 kr.
Allir vegan-forréttir á 1.650 kr.
Íslenska Flatbakan er fjölskyldurek-
inn veitingastaður sem var stofnaður
árið 2015. Sem fyrr segir er staðurinn
til húsa að Bæjarlind 2 í Kópavogi. Opið
er mánudaga–fimmtudaga frá 11 til 21,
föstudaga frá 11 til 22, laugardaga frá
12 til 22 og sunnudaga frá 12 til 21. Mat-
seðil og fleiri upplýsingar er að finna á
vefsíðunni flatbakan.is. Sjá einnig Face-
book-síðuna Íslenska Flatbakan. n