Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 28
Nýtt ár – nýr lífsstíll 4. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
Kísilsteinefnið inniheldur
hreinan jarðhitakísil
Kísilsteinefnið geoSilica inniheldur hreinan jarðhitakísil sem unninn er úr jarðhitavatni Hellisheiðar-
virkjunar. Læknisfræðilegar rannsóknir
hafa leitt í ljós að kísill gegnir mikil-
vægu hlutverki í mannslíkamanum og
er honum nauðsynlegur. Kísill er sér-
staklega mikilvægur fyrir heilsu beina
enda örvar hann myndun kollagens í
líkamanum, en kollagen er helsta uppi-
staða bandvefjar sem er að finna í
beinum, húð, hári, nöglum, liðböndum,
sinum og brjóski.
Kísill hjálpar einnig kalki að koma
sér fyrir í beinvef og er því mikilvægt
að taka inn kísil samhliða kalkinntöku
til að kalkið nýtist sem best. Inntaka
kísilsteinefnis gæti haft fyrirbyggjandi
áhrif gegn beinþynningu.
Kísilsteinefnið geoSilica styrk-
ir bandvef, styrkir hár og neglur og
vegna betri myndunar kollagens getur
inntaka kísilsins stuðlað að sléttari og
fallegri húð.
Fyrirtækið geoSilica Iceland hef-
ur þróað vöruna, framleiðir hana og
selur. Þau Fidu Abu Libdeh og Burkni
Pálsson, ásamt Ögnum ehf., stofnuðu
fyrirtækið árið 2012. Um haustið það
ár fékk geoSilica verkefnastyrk Tækni-
þróunarsjóðs til rannsókna og þróunar
á vörunni. Hún kom síðan á markað í
desember árið 2014: 100 prósent há-
gæða náttúrulegt íslenskt kísilsteinefni
í vökvaformi, tilbúið til inntöku.
Nýjar vörur frá geoSilica slá í gegn
geoSilica hefur eflt mjög vöruþróun
á síðustu misserum og hafa nýjar
vörur frá fyrirtækinu slegið rækilega
í gegn. geoSilica kísilsteinefni eru á
metsölulistanum Top 10 Best Sell-
ers in Silica Mineral Supplements á
Amazon US.
geoSilica býður nú upp á eftirfar-
andi vörulínu:
n geoSilica kísill -Íslenskt kísilstein-
efni
n geoSilica Renew – Fyrir húð, hár
og neglur
n geoSilica Recover – Fyrir vöðva
og taugar
n geoSilica Repair – Fyrir liði og bein
Nánari upplýsingar um vörurnar
og virkni þeirra er að finna á vef-
síðunni geosilica.is. Þar er
einnig að finna merkilegar
reynslusögur margra
Íslendinga sem hafa
notað vörurnar
frá geoSilica með
undraverðum
árangri. Við látum
eina fljóta hér með:
Ásdís Geirsdóttir
„Nokkrum mánuðum
eftir að ég átti yngri
dóttur mína í nóvem-
ber 2014 fór að bera á miklu
hárlosi hjá mér. Ásamt því var ég
mjög slæm í húðinni og neglurnar
á mér brotnuðu endalaust. Mér
var þá bent á kísilsteinefnið frá
geoSilica. Það er 100% náttúrulegt
steinefni sem er þróað og fram-
leitt á Íslandi úr jarðhitavatni frá
Hellisheiðarvirkjun. Kísilsteinefnið
kemur í vökvaformi og ætlast er til
að maður taki inn 1 msk. (10 ml) á
hverjum degi. Það sem mér fannst
líka virkilega gott við kísilinn er að
hann inniheldur engin aukaefni –
aðeins kísil og vatn – og er einnig
bragðlaus. Ég ákvað að prófa enda
orðin frekar langþreytt á þessu
ástandi og búin að prófa bæði
sjampó fyrir hárlos, ýmis krem og
naglaherði. Ein flaska dugði mér í
einn mánuði og eftir um 2 vikur var
ég farin að sjá verulegan
mun á húðinni, hárinu
og nöglum. Ég ákvað
því að taka aðra
góða törn og keypti
flöskur næstu tvo
mánuðina og ár-
angurinn lét ekki á
sér standa!
Ég náði svo að
sannfæra manninn
minn um að prófa
kísilinn líka. Hann er
með psoriasis en kísillinn
hefur reynst fólki með psoria-
sis einstaklega vel. Hann sá einnig
mikinn mun á húðinni sinni og
margir blettir sem hann var með
urðu þynnri og minnkuðu til muna.
Síðan þá höfum við nokkrum
sinnum tekið tarnir með kísilinn frá
geoSilica og alltaf sé ég jafn mikinn
mun á mér og þá sérstaklega á
húðinni og nöglunum. Auk þess
finnst mér þetta minnka slen og
stirðleika sem oft hellist yfir marga
yfir vetrartímann.“ n
Vatnsleikfimi er frábær líkams-rækt sem hentar bæði fullfrísku fólki og fólki með ýmis stoð-
kerfisvandamál, bakverki, vefjagigt eða
slitgigt. Jóna Örlygsdóttir íþróttakennari
hefur um árabil boðið upp á hressandi
og skemmtilega vatnsleikfimi í Mýrinni í
Garðabæ (TM-höllin).
„Vatnsleikfimin hjá mér er ætluð
fólki á vinnufærum aldri eins og það er
kallað, aldursbilið í tímunum er frá u.þ.b.
45–65 ára,“ segir Jóna en hennar þjálf-
un byggist upp á fjölbreyttum æfing-
um til að auka liðleika, styrk og úthald.
Áherslan í leikfiminni er lögð á að nýta
vatnið sem mótstöðu til að bæta hreyfi-
getu og auka líkamlega færni. Margir
sem mæta eru með gigtarvandamál,
bakverki og önnur stoðkerfiseinkenni,
aðrir eru tiltölulega heilsuhraustir og er
leikfimin þá góð viðbót við aðra hreyf-
ingu. „Maður getur svo margt í vatni
sem ekki er gott að gera á þurru landi
og ávinningurinn af því hafa vatnið sem
mótstöðu er mikill. Meiðslahætta er
nánast engin og líðanin eftir hreyfingu í
vatni er alveg dásamleg.“
Jóna kennir vatnsleikfimi fimm daga
vikunnar og er yfirleitt með tvo til þrjá
hópa á dag. „Ég gæti þess að hafa
hópana ekki of stóra, það er nauðsyn-
legt að hver einstaklingur fái leiðbein-
ingar samkvæmt sinni getu,“ segir Jóna.
„Ég legg líka mikið upp úr því að kynna
mér ástand hvers og eins og hafa þjón-
ustuna eins persónulega og hægt er.
Ég hef mikla og góða reynslu af þjálfun,
starfaði til dæmis lengi á Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði, hef starfað á líkams-
ræktarstöðvum og undanfarið hef ég
líka verið í samstarfi við starfsendur-
hæfinguna VIRK.“
Næstu hópar í vatnsleikfiminni fara í
gang þann 16. janúar. Skráning er hafin
og skal skrá sig með því að senda skila-
boð á Facebook-síðunni Mýrin vatns-
leikfimi eða senda tölvupóst á netfangið
myrin.vatnsleikfimi@gmail.com. n
MÝRIN VATNSLEIKFIMI:
Heilsuefling í vatni