Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 34
34 FÓLK - VIÐTAL 4. janúar 2019
Á
vinnustofu Þrándar við
Nýlendugötu er nýtt verk í
fæðingu. Stórt og ógnvæn
legt verk af frelsisstyttunni
sem tengist stöðu Íslands í Atl
antshafsbandalaginu. Meistarinn
segist eiga eftir að laga það til og
setja meiri húmor í það.
Eru einhver verk sem þú byrjar á
en verða aldrei fullvaxta?
„Já, það kemur fyrir að ég missi
trúna á verkum. Verk sem ég er
kannski búinn að vera að hamast
á í einhvern tíma en svo verða þau
ekki eins og ég vildi.“
Þrándur sækir tvær gulleitar
myndir af Reykjavíkurtjörn. Önnur
þeirra fæddist aldrei en hin yngri er
stærri og gerð á betri striga. Þránd
ur deilir húsnæði með öðrum
listamönnum, í húsnæði þar sem
Royalbúðingarnir voru áður fram
leiddir. Tækin eru þarna enn innan
um listmuni af ýmsum toga.
Teiknaði með Hugleiki frænda
Þú ert að norðan, er það ekki?
„Jú, í aðra röndina. Norðmaður í
hina. Pabbi er úr Svarfaðardalnum
og mamma frá Noregi. Ég fæddist
á Akureyri og ólst þar upp að hluta
til. Annars vorum við að flakka mik
ið milli Íslands og Noregs, við og
systur mínar tvær.“
Faðir Þrándar er sagnfræðingur
að mennt og starfaði við stálplötu
smíði. Móðir hans þýddi fyrir
norsku lögregluna.
„Ég var mikið rólyndisbarn og
alltaf að teikna og dunda mér, vel
upp alinn og þægilegur strákur,“
segir Þrándur. „Það var lítið um
vandræði á mér. Teikningin átti hug
minn allan og ég var aldrei í nein
um íþróttum. Ég átti einnig ýmis
lúðaáhugamál eins og hlutverka
FEGURÐ
ENDING
MÝKT
Kostirnir eru ótvíræðir:
• Fallegra hús
• Ekkert viðhald
Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is
VEGGKLÆÐNINGAR
Fyrir allar gerðir húsa, ný
jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða
Þrándur Þórarinsson hefur haslað sér völl sem
umtalaðasti listmálari þjóðarinnar. Hann rær gegn
straumnum og málar verk í anda gömlu meistar-
anna, en er óhræddur við að skeyta nútímanum inn
í. Útkoman getur verið allt í senn falleg, undarleg,
stuðandi og bráðfyndin. DV ræddi við Þránd um
æskuna, einmanaleikann, frægðina, hina árlegu
höfnun um listamannalaun og fleira.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Þrándur hefur
varla undan að mála
Umtalaður Nábrók Bjarna og Klausturfokk
komust í fréttirnar.
n Fær ekki listamannalaun n Erfiðara að stuða fólk í dag
nGangverðið 300 til 500 þúsund krónur