Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 41
414. janúar 2019 TÍMAVÉLIN
Suðurlandsbraut 14 • 108 Reykjavík • Sími 588 0188 • slysabaetur@slysabaetur.is
VIÐ SÆKJUM
BÆTURNAR
Ekki flækja málin.
S
igurður Eiríksson Breið-
fjörð var eitt af merkisskáld-
um 19. aldar en lifibrauð
sitt hafði hann af beykisiðn.
Sigurður var rímnaskáld mikið og
ótal verk hans hafa verið gefin út á
prenti. Minningu hans fylgdi hins
vegar alltaf sú skömm að hafa
hloti dóm fyrir tvíkvæni.
Trassaði að skilja í Eyjum
Sigurður var fæddur árið 1798 á
Rifgirðingum í Breiðafirði. Hann
hélt út til Danmerkur til að nema
beykisiðn og starfaði við það víða
um land, til dæmis á Ísafirði, í
Reykjavík, Flatey og Vestmanna-
eyjum. Einnig á Grænlandi. Sig-
urður varð ekki ríkur af þessu og
um tíma var hann í óreglu og fór
illa með peninga. Kvennamál
hans voru einnig mikið til tals.
Árið 1826, þegar Sigurður bjó
í Eyjum, gekk hann að eiga Sig-
ríði Nikulásdóttur, vinnukonu í
Kornhól. Það hjónaband var ekki
sprottið af ást heldur af greiða við
kaupmanninn, Andreas Petreus,
sem hafði barnað hana. Nokkrum
mánuðum síðar eignaðist Sigurð-
ur sjálfur barn með með annarri
vinnukonu í Kornhól, Guðríði
Sigurðardóttur. Það dó hins vegar
ungt úr ginklofa. Tveimur árum
síðar flutti Sigurður vestur á Snæ-
fellsnes og skildi Sigríði eftir í Eyj-
um. Hún tók þá saman við versl-
unarmann að nafni Otti Jónsson.
Dómar, fátækt og drykkja
Árið 1836 flutti Sigurður á Gríms-
staði í Breiðavík á Snæfellsnesi
og hóf sambúð með Kristínu Ill-
ugadóttur sem þar bjó. Eftir eitt
ár í sambúð giftust þau en Sig-
urður hafði aldrei skilið við Sig-
ríði í Eyjum. Gengið var á Sigurð
í tvö ár vegna tvíkvænisins og var
hann að lokum dæmdur til 20
vandarhögga og hárra fjársekta.
Fór svo að konungur náðaði Sig-
urð hvað vandarhöggin varðaði
en sektirnar lágu á honum eins og
mara.
Árið 1841 fluttu þau snauð til
Seltjarnarness og var Sigurður þá
orðinn mjög bitur. Yfirgaf hann
jörðina með þessum orðum:
„Fjögur ár lét ég ljá
leiðar þúfur rota,
aldrei vaxi á þeim strá
eigendum til nota.“
Var sagt að túnin á Gríms-
stöðum hafi aldrei orðið söm eft-
ir þessi álög skáldsins. Sigurður
fékk vinnu í Reykjavík en bjó í fá-
tækt, drykkju og heilsuleysi. Fékk
hann reglulega köst, hugsan-
lega flogaveikisköst. Árið 1843 var
hann dæmdur til fangelsisvistar
fyrir ávísanafölsun en landlæknir
beitti sér fyrir því að hann myndi
ekki þurfa að sæta þeirri refsingu.
Heilsa Sigurðar var þá þannig að
líklegt væri að hann myndi ekki
lifa lengi og mannúðlegra að hann
fengi að deyja heima hjá sér. Hann
var hins vegar látinn sitja inni um
hríð árið 1845. Ári síðar var Sig-
urður látinn úr mislingum. n
H
jörtur Þórðarson var á með-
al fremstu vísindamanna
þjóðarinnar, ef ekki sá
fremsti. Nafn hans er hins
vegar lítt kunnugt hér á landi, enda
flutti hann ungur til Ameríku og
þar var hann þekktur sem Chest-
er. Hirti var líkt við sjálfan Nikola
Tesla. Hann stofnaði stórfyrirtæki,
fékk um eitt hundrað einkaleyfi og
keypti sína eigin eyju. Auk þess er
bókasafn hans eitt af þeim merki-
legri sem til eru í gervöllum Banda-
ríkjunum.
Heillaður af náttúruöflunum
Hjörtur var fæddur í Hrútafirði
árið 1867, næstyngstur fimm barna
Þórðar Árnasonar og Guðrúnar
Grímsdóttur frá Bjarnastöðum í
Hvítársíðu. Þegar Hjörtur var að-
eins sex ára flutti fjölskyldan vestur
um haf til borgarinnar Milwaukee í
Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum.
Síðar á lífsleiðinni sagðist hann eiga
tvær minningar frá æsku sinni á Ís-
landi, hafölduna og norðurljósin.
Fannst honum mesta furða að full-
orðna fólkið vissi ekkert af hverju
norðurljósin dönsuðu svo björt.
Skömmu eftir að fjölskyldan
kom út veiktist Þórður af taugaveiki
og lést. Guðrún flutti þá með börn-
in fimm í sveitina í Dane-sýslu þar
sem norskir trúboðar höfðu komið
upp samfélagi. Hjörtur var forvit-
inn um náttúruöflin strax í frum-
bernsku. Skógurinn og árnar í hinu
nýja heimalandi heilluðu hann
og kveiktu spurningar. Sem ungur
piltur hannaði hann alls kyns stífl-
ur og tæki til að láta árnar snúa hjól-
um.
Hjörtur hjálpaði við bústörfin
heima en hugur hans hneigðist til
eðlisfræðinnar. Hann fékk eðlis-
fræðibók eftir J.G. Fischer sem
hann las upp til agna og rafmagn-
ið heillaði hann mest. Hjörtur
talaði enn betri íslensku en ensku
en enskt nafn fékk hann strax
í skólagöngunni, Chester H.
Thordarson.
Yfirmaður hjá Edison
Átján ára flutti Hjörtur til Chicago
og bjó þar með systur sinni. Hann
hafði ekki efni á langskólagöngu í
eðlisfræði en fékk vinnu við smíðar
á raftækjum. Öll laun sem ekki fóru
í uppihald notaði hann til að kaupa
bækur um raftækni og vísindi.
Hjörtur starfaði við rafsmíðar, sem
var þá ný iðn, bæði í Chicago og St.
Louis. Loks fékk hann yfirmanns-
stöðu hjá félagi Thomasar Edison.
Árið 1895 hætti hann þar og stofn-
aði sitt eigið fyrirtæki, Thordarson
Electric Manufacturing Company.
Einnig giftist hann íslenskri sauma-
konu, Júlíönu Friðriksdóttur frá
Eyrarbakka, og eignuðust þau þrjú
börn.
Lítið var að gera fyrstu árin hjá
Hirti enda rafmagn ekki orðið al-
mennt. Hann hafði þó nokkuð að
gera við að smíða kennslutæki fyr-
ir háskóla. Þá fór hann að prófa sig
áfram með alls kyns uppfinningar
og sótti um einkaleyfi fyrir mörgum
þeirra. Á ævinni allri fékk Hjörtur
um eitt hundrað einkaleyfi og flest-
ir háskólar Bandaríkjanna áttu að
minnsta kosti eitt tæki frá Hirti.
Orðspor hins sjálfmenntaða manns
reis hratt og árið 1915 fékk Smith-
sonian-stofnunin hann til að smíða
milljón volta spenni á stórri heims-
sýningu í San Francisco. Fékk hann
viðurnefnið Nicola Tesla Chicago-
borgar.
Missti stjórnina í kreppunni
Fyrirtæki hans stækkaði jafnt og
þétt og frægð hans jókst með hverju
árinu. Áður en kreppan mikla skall
á störfuðu 1.500 manns hjá honum
og veltan var fimm milljónir dollara
á ári. Eftir kreppuna var fyrirtækið
í gjörgæslu og Hjörtur varð að láta
aðra um stjórnina. Flutti hann þá út
í eyjuna Rock Island sem hann hafði
keypt og vann þar að fleiri uppfinn-
ingum. Árið 1939 hlaut hann fálka-
orðuna frá Kristjáni X. konungi.
Í upphafi árs 1945 fékk Hjörtur
hjartaslag og lést. Skömmu síðar
var fyrirtækið sameinað öðrum og
fékk nýtt nafn Thordarson Meissner
sem er enn þá starfandi í dag. Árið
1965 keypti Wisconsin-fylki Rock
Island af erfingjum Hjartar og kom
þar á fót þjóðgarði. Í Wisconsin-há-
skóla er nafni Hjartar einnig haldið
á lofti þar sem Hjörtur arfleiddi
skólann að bókasafni sínu. Í safn-
inu eru margir fágætir munir og er
heildarvirði þess metið á um einn
og hálfan milljarð króna. n
SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ
DÆMDUR FYRIR TVÍKVÆNI
n Dó í fátækt og eymd
MESTI VÍSINDAMAÐUR ÍSLANDS
n Hjörtur Þórðarson, uppfinningamaður og rafsmíðamógúll
„Orðspor hins sjálfsmenntaða
manns reis hratt og árið 1915
fékk Smithsonian-stofnunin hann til
að smíða milljón volta spenni á stórri
heimssýningu í San Francisco
Rock Island Hjörtur bjó
þar síðustu árin.
Sigurður Breiðfjörð Þjóðskáld sem
lifði í eymd.