Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 50
50 MATUR 4. janúar 2019
Endurkoma brauðsins
og ár fitunnar
n Margt breytist í matarheiminum ef marka má sérfræðinga n Árið 2019 snýst allt um hreint fæði
Þ
ótt árið sé rétt hafið hafa sérfræðingar verið að spá fyrir um tísku
strauma í matarheiminum síðan seint á síðasta ári. Það er ýmis
legt sem breytist í fæðuvali okkar á þessu ári, og árum, ef marka
má spekinga, en hér er brot af því sem mun fá byr undir báða
vængi á árinu sem nú er gengið í garð.
Alls kyns blómkálsréttir hafa verið vinsælir upp á síðkastið og hefur
blómkálið komið í staðinn fyrir ýmis kolvetni, til dæmis kartöflur og
hrísgrjón. Nú er hins vegar ár kálsins runnið upp og mun fólk í
auknum mæli fylla kál eins og vefjur eða búa til kállasanja án pasta.
Í til dæmis Bretlandi eru hugmyndir um að skikka matvælaframleið
endur til að minnka sykurmagn í vörum sínum, sérstaklega þar sem
flestar vörur þurfa ekki á sykri að halda. Þetta gæti orðið alheims
tískustraumur ef marka má spekinga og mun fólk þar af leiðandi
kunna að fara betur með sykur, hætta að líta á hann sem óvin og
borða hann í skynsamlegra magni.
Tja, líkur eru á að á mörgum heimilum sé ekki til
hefðbundin mjólk heldur mjólk úr hnetum eða
höfrum. Sala á haframjólkinni Oatly fór fram úr
björtustu vonum á síðasta ári og seldist hún víða
upp. Þessir straumar halda áfram að bærast árið
2019 og sífellt fleiri snúa baki við hefðbundinni
mjólk.
Brauð hefur verið fórnarlamb ýmissa tískustrauma í mataræði og fólk hefur margoft snúið baki við þessum
gómsætu og fjölhæfu matvælum. En ekki árið 2019. Samkvæmt skýrslu Facebook yfir tískustrauma ársins
2019 verður um að ræða endurkomu brauðsins í öllum mögulegum og ómögulegum myndum. Þeir sem
eru lágkolvetna baka meira lágkolvetnabrauð og súrdeigsbrauð verður vinsælt sem aldrei fyrr. Loksins!
Ketómataræðið hefur orðið til þess að ostur
selst sem aldrei fyrr, enda inniheldur hann lítið
af kolvetnum. Því mun árið 2019 einkennast af
alls kyns ostasnakki, hvort sem það er þurrkaður
ostur eða ostaflögur.
Fita í tísku
Og fyrst við erum að tala um
ketó þá verður fitan líka ansi heit, til dæmis
MCTolía, kókossmjör, hefðbundið smjör og
ghee. Snakk sem er kallað fitusprengjur hefur
innreið sína á markað og alls kyns fituríkir
drykkir.
Æskubrunnurinn fundinn
Stjörnur eins og Elle
MacPherson og
Elizabeth Hurley
drekka collagen á
hverjum degi,
en þær virðast
sofa í formalíni.
Fleiri og fleiri
munu leggja sér
collagen til munns
enda á það að
bæta hárvöxt,
draga úr liðverkj
um og slétta húð
ina.
Færið ykkur paleo og vegan
Flestir tippa á að pegan mataræðið verða heitasta
trendið, en glöggir lesendur sjá að pegan er
samsett úr orðunum paleo og vegan, enda er þetta
mataræði blanda af þessu tvennu. Í paleomatar
æðinu er hvatt til mikillar kjötneyslu en í vegan
mataræðinu á að sneiða hjá öllum dýraafurðum. Í peganmatar
æðinu áeiga 75 prósent af matnum sem þú borðar að vera úr
plönturíkinu en 25 prósent kjöt. Það sem má borða á peganmatar
æðinu er grænmeti og ávextir með sykurstuðul á milli 55 og 69. Þar á
meðal er blómkál, brokkolí, tómatar, paprika, eggaldin, laukur,
sveppir, epli, kirsuber, sítrusávextir, perur, mangó og ananas. Þá má
borða hnetur, lárperur og ólífuolíu. Það sem ætti að takmarka á
peganmataræðinu, samanber 25 prósent kjöt, er nautakjöt,
kalkúna og kjúklingakjöt, lax og rækjur. Einnig á að borða egg,
baunir og náttúrulegan sykur eins og hlynsíróp, kókossykur, hunang,
döðlur og vanillu í hófi. Er þetta í takt við annan tískustraum sem er
hreint fæði. Engar unnar kjötvörur, takk!
Ljótur matur
Á Íslandi eru framleiddar ljótar kartöfluflögur úr
kartöflum sem eru ekki nógu fagrar til að komast
alla leið til neytenda. Þetta mun aukast og verður
framleitt úr alls kyns ljótum mat árið 2019. Ljóti
andarunginn breytist því í fallegan, og saðsaman,
svan.
Kjöt – samt ekki
Í Þýskalandi voru egg
sett á markað
nýverið sem eru í
raun ekki egg úr
hænu heldur egg
sem búin eru til á
rannsóknarstofu. Í
þessum bransa er
ýmislegt í pípunum og spá margir sérfræðingar að
árið 2019 verði ár kjöts sem búið er til á rann
sóknarstofum, sem þýðir að engin dýr voru sköðuð
við framleiðsluna. Í raun eru aðeins ein til tvær
frumur teknar úr dýrum og kjöt fjöldaframleitt út
frá þessum frumum.
Út að borða úti í kuldanum
Sérfræðingar spá því að fólk muni frekar elda heima hjá sér en að
fara út að borða. Þar er margt sem spilar inn í. Helsta orsökin fyrir
þessu er talin vera sú að verð á réttum á matsölustöðum hefur
hækkað meira síðustu misseri en verð á matvöru í verslunum. Þá er
einnig talið að vinsældir matarpakka, þar sem fólk fær uppskrift og
hráefni og þarf bara að elda, spili þarna inn í. Einnig sú staðreynd að
fæðið sem eldað er heima er hreinna en það sem er keypt á veitinga
stöðum.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Brauðið klikkar ekki
Bæ, bæ, blómkál
Stríðið gegn sykrinum
Áttu mjólk?
Því meiri ostur,
því betra