Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Qupperneq 50
50 MATUR 4. janúar 2019 Endurkoma brauðsins og ár fitunnar n Margt breytist í matarheiminum ef marka má sérfræðinga n Árið 2019 snýst allt um hreint fæði Þ ótt árið sé rétt hafið hafa sérfræðingar verið að spá fyrir um tísku­ strauma í matarheiminum síðan seint á síðasta ári. Það er ýmis­ legt sem breytist í fæðuvali okkar á þessu ári, og árum, ef marka má spekinga, en hér er brot af því sem mun fá byr undir báða vængi á árinu sem nú er gengið í garð. Alls kyns blómkálsréttir hafa verið vinsælir upp á síðkastið og hefur blómkálið komið í staðinn fyrir ýmis kolvetni, til dæmis kartöflur og hrísgrjón. Nú er hins vegar ár kálsins runnið upp og mun fólk í auknum mæli fylla kál eins og vefjur eða búa til kállasanja án pasta. Í til dæmis Bretlandi eru hugmyndir um að skikka matvælaframleið­ endur til að minnka sykurmagn í vörum sínum, sérstaklega þar sem flestar vörur þurfa ekki á sykri að halda. Þetta gæti orðið alheims­ tískustraumur ef marka má spekinga og mun fólk þar af leiðandi kunna að fara betur með sykur, hætta að líta á hann sem óvin og borða hann í skynsamlegra magni. Tja, líkur eru á að á mörgum heimilum sé ekki til hefðbundin mjólk heldur mjólk úr hnetum eða höfrum. Sala á haframjólkinni Oatly fór fram úr björtustu vonum á síðasta ári og seldist hún víða upp. Þessir straumar halda áfram að bærast árið 2019 og sífellt fleiri snúa baki við hefðbundinni mjólk. Brauð hefur verið fórnarlamb ýmissa tískustrauma í mataræði og fólk hefur margoft snúið baki við þessum gómsætu og fjölhæfu matvælum. En ekki árið 2019. Samkvæmt skýrslu Facebook yfir tískustrauma ársins 2019 verður um að ræða endurkomu brauðsins í öllum mögulegum og ómögulegum myndum. Þeir sem eru lágkolvetna baka meira lágkolvetnabrauð og súrdeigsbrauð verður vinsælt sem aldrei fyrr. Loksins! Ketó­mataræðið hefur orðið til þess að ostur selst sem aldrei fyrr, enda inniheldur hann lítið af kolvetnum. Því mun árið 2019 einkennast af alls kyns ostasnakki, hvort sem það er þurrkaður ostur eða ostaflögur. Fita í tísku Og fyrst við erum að tala um ketó þá verður fitan líka ansi heit, til dæmis MCT­olía, kókossmjör, hefðbundið smjör og ghee. Snakk sem er kallað fitusprengjur hefur innreið sína á markað og alls kyns fituríkir drykkir. Æskubrunnurinn fundinn Stjörnur eins og Elle MacPherson og Elizabeth Hurley drekka collagen á hverjum degi, en þær virðast sofa í formalíni. Fleiri og fleiri munu leggja sér collagen til munns enda á það að bæta hárvöxt, draga úr liðverkj­ um og slétta húð­ ina. Færið ykkur paleo og vegan Flestir tippa á að pegan mataræðið verða heitasta trendið, en glöggir lesendur sjá að pegan er samsett úr orðunum paleo og vegan, enda er þetta mataræði blanda af þessu tvennu. Í paleo­matar­ æðinu er hvatt til mikillar kjötneyslu en í vegan­ mataræðinu á að sneiða hjá öllum dýraafurðum. Í pegan­matar­ æðinu áeiga 75 prósent af matnum sem þú borðar að vera úr plönturíkinu en 25 prósent kjöt. Það sem má borða á pegan­matar­ æðinu er grænmeti og ávextir með sykurstuðul á milli 55 og 69. Þar á meðal er blómkál, brokkolí, tómatar, paprika, eggaldin, laukur, sveppir, epli, kirsuber, sítrusávextir, perur, mangó og ananas. Þá má borða hnetur, lárperur og ólífuolíu. Það sem ætti að takmarka á pegan­mataræðinu, samanber 25 prósent kjöt, er nautakjöt, kalkúna­ og kjúklingakjöt, lax og rækjur. Einnig á að borða egg, baunir og náttúrulegan sykur eins og hlynsíróp, kókossykur, hunang, döðlur og vanillu í hófi. Er þetta í takt við annan tískustraum sem er hreint fæði. Engar unnar kjötvörur, takk! Ljótur matur Á Íslandi eru framleiddar ljótar kartöfluflögur úr kartöflum sem eru ekki nógu fagrar til að komast alla leið til neytenda. Þetta mun aukast og verður framleitt úr alls kyns ljótum mat árið 2019. Ljóti andarunginn breytist því í fallegan, og saðsaman, svan. Kjöt – samt ekki Í Þýskalandi voru egg sett á markað nýverið sem eru í raun ekki egg úr hænu heldur egg sem búin eru til á rannsóknarstofu. Í þessum bransa er ýmislegt í pípunum og spá margir sérfræðingar að árið 2019 verði ár kjöts sem búið er til á rann­ sóknarstofum, sem þýðir að engin dýr voru sköðuð við framleiðsluna. Í raun eru aðeins ein til tvær frumur teknar úr dýrum og kjöt fjöldaframleitt út frá þessum frumum. Út að borða úti í kuldanum Sérfræðingar spá því að fólk muni frekar elda heima hjá sér en að fara út að borða. Þar er margt sem spilar inn í. Helsta orsökin fyrir þessu er talin vera sú að verð á réttum á matsölustöðum hefur hækkað meira síðustu misseri en verð á matvöru í verslunum. Þá er einnig talið að vinsældir matarpakka, þar sem fólk fær uppskrift og hráefni og þarf bara að elda, spili þarna inn í. Einnig sú staðreynd að fæðið sem eldað er heima er hreinna en það sem er keypt á veitinga­ stöðum. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Brauðið klikkar ekki Bæ, bæ, blómkál Stríðið gegn sykrinum Áttu mjólk? Því meiri ostur, því betra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.