Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Blaðsíða 54
54 4. janúar 2019FÓKUS
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Fregnir af frægum
Söngkonan Stefanía Svavarsdóttir og Benjamín Náttmörður Árnason, gítarleikari og
tónlistarkennari, eignuðust sitt fyrsta barn þann 18. desember þegar í heiminn kom
dásamlegur drengur.
„Svo urðu þau sex. Kettinum er nokk sama og þverneitaði því að vera með á mynd en við
fjögur erum að springa úr hamingju!“ sagði parið á Facebook í sumar þegar það tilkynnti
um bumbubúann, en fyrir á heimilinu voru einn köttur og tveir hundar.
„Við foreldrarnir erum gjörsamlega að springa úr ást og mamman grætur bara endalaust
úr hamingju yfir þessu „litla“ fullkomna kraftaverki,“ skrifuðu hinir nýbökuðu foreldrar
þegar drengurinn var fæddur. Fókus óskar þeim hjartanlega til hamingju með soninn.
Leikstjóraparið Margrét Seema Takyar og Grímur Hákonarson á von á stúlku.
Parið tilkynnti um bumbubúann með myndbirtingu á Facebook á gamlársdag. „2018 var
fullkomið, upp og niður og allt, alveg eins og ég vildi hafa það. Mín ósk er að 2019 mæti
eins og skemmtilegur, flókinn og kraumandi elskhugi sem hristir upp í þér. Ástir frá mér og
stúlku Grímsdóttur Takyar,“ skrifar Margrét.
Mar grét er nýlega flutt heim eftir 15 ára viðveru í New York og sá síðast um leikstjórn og
tökur á þáttunum Trúnó, sem sýndir eru í Sjónvarpi Símans. Grímur er þekktastur fyrir
myndirnar Hrútar og Litla Moskva. Fókus óskar parinu hjartanlega til hamingju með
bumbubúann.
Áramótaskaupið 2018 er milli tannana á fólki á nýju ári, eins og venjan er, og sitt sýnist hverjum um ágæti þess. En hvort sem fólki finnst
skaupið gott, lélegt eða eitthvað þar á milli, þá er frammistaða leikaranna með miklum ágætum, bæði reyndra leikara, sem flestir þekkja
og leikara af yngri kynslóðinni, sem jafnvel eru að stíga sín fyrstu skref frammi fyrir alþjóð.
Einn af fulltrúum yngri kynslóðarinnar er Rakel Björk Björnsdóttir, sem gerir sér lítið fyrir og bregður sér í gervi Katrínar Jakobsdóttur
forsætisráðherra með miklum ágætum og nær hún andlitsgeiflum Katrínar einstaklega vel. Rakel Björk er nemandi á lokaári við Lista
háskóla Íslands. Hún hefur fengist töluvert við leiklist síðustu ár og kom meðal annars fram í kvikmyndunum Falskur fugl og Þrestir.
Hún lagði stund á söngnám áður en hún fór í leiklistina og 2016 kom út frumraun hennar í söngheiminum, What If.
Leikkonurnar Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir vinna nú að þátta
röðinni Heilabrot, þáttum um geðsjúkdóma, sem sýndir verða á RÚV í mars. Leikstjóri er
Arnór Pálmi Arnarsson. Þríeykið vann áður að þáttaröðinni Framapot, sem sýnd var fyrir
tveimur árum. Þættirnir fjölluðu um Steineyju og Sigurlaugu Söru sem vita ekkert hvert
þær stefna í lífinu. Í þáttunum komast þær að því hvaða nám og störf standa ungu fólki
til boða og fá nasasjón af ýmiss konar starfsframa.
Eggert Skúlason, sjónvarpsmaður og
fyrrverandi ritstjóri DV, hefur undan
farna mánuði staðið í ströngu við
upptöku veiðiþáttanna Sporðakasta
sem sýndir verða á næsta ári. Tekur
Eggert þar með upp þráðinn frá því fyrir
tuttugu árum þegar samnefndir þættir
hans slógu í gegn hjá veiðimönnum. Ver
kefnið er Eggerti afar kært enda er hann
annálaður áhugamaður um hvers konar
veiði. Sonur Eggerts, Hafþór Eggertsson,
er hæfileikaríkur húðflúrlistamaður og
því fékk Eggert hann til þess að flúra
á sig heiti verkefnisins. Hann deildi af
rakstrinum með Facebookvinum sínum
á dögunum. „Eitt skemmtilegasta ár
sem ég hef átt lengi,“ sagði sjónvarps
maðurinn.
Erlendum leikurum í hópi Íslandsvina fjölgar stöðugt. Einn þeirra sem var staddur á
Íslandi yfir áramótin og inn í nýárið er bandaríski leikarinn Drew Van Acker, sem er best
þekktur fyrir hlutverk sitt sem Jason DiLaurentis í sjónvarpsþáttunum Pretty Little Liars,
en hann hefur einnig leikið í sjónvarpsþáttunum Training Day og Devious Maids.
Á Instagram má sjá að hann hefur meðal annars heimsótt Reynisfjöru, farið Gullna
hringinn og kafað í Þingvallavatni. Kærasta hans, Markie Adams, er með honum í ferðinni
og gerði Van Acker sér lítið fyrir og skellti sér á skeljarnar í Reynisfjöru og bað hennar.
Svarið var að sjálfsögðu já!