Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Qupperneq 56
4. janúar 2019
51. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
ford.is
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
Ford tekur þig lengra
Komdu, reynsluaktu og upplifðu nýjan Ford Focus
M A R K A R N Ý J A T Í M A !
Nýr Ford Focus markar nýja tíma hvað varðar tækni, þægindi,
innra rými og akstursupplifun í sínum flokki fólksbíla.
Hann hefur fengið frábæra dóma um allan heim.
Ford tekur þig lengra,
komdu, upplifðu og reynsluaktu nýjum Ford Focus
A L V E G N Ý R F O R D F O C U S
VERÐ FRÁ AÐEINS: 3.190.000 KR.
Staðalbúnaður er sérlega ríkulegur:
Mikill öryggisbúnaður: Ökumannsvaki (Drivers Alert), Árekstravari (Active City Stop), Veglínuskynjari
(Lane Keeping Alert). Ford SYNC raddstýrt samskiptakerfi með Bluetooth og neyðarhringingu (112),
My Key búnaður (forritanlegur lykill með takmörk á hámarkshraða, hljóðstyrk hljómtækja ofl.),
Apple CarPlay og Android Auto, Stillanlegir akstursmátar (Normal/Eco/Sport) o. m. fl.
Einnig fáanlegur sjálfskiptur og station
Nýr Focus heilsíða Ongoing 255x380 20181105_END.indd 1 05/11/2018 10:40
Barsmíða-
meistarar
fram-
tíðarinnar!
Tvíbent skilaboð
G
óður rómur var gerður
að nýársávarpi Guðna
Th. Jóhannessonar, for-
seta Íslands. Forsetinn
fór um víðan völl en áhrifaríkt
þótti þegar hann vakti athygli
á tíðum sjálfsvígum íslenskra
ungmenna. „Við erum að missa
ungt fólk. Í þessu landi velmeg-
unar eru sjálfsvíg helsta dánar-
orsök ungra karlmanna. Í þessu
landi frelsis og framfara verða of
mörg ungmenni háð fíkniefn-
um og ávanalyfjum,“ sagði for-
setinn. Fannst mörgum skjóta
skökku við að nokkrum klukku-
stundum síðar sæmdi Guðni
Agnesi Önnu Sigurðardóttur,
áfengisframleiðanda á Árskógs-
strönd, fálkaorðunni.
Rétt er að minna
á að orðunefnd,
sem Guðni Ágústs-
son veitir for-
stöðu, ákveð-
ur hverjir
skuli fá veg-
semdina.
Myndbönd af íslenskum börnum að stunda gróft ofbeldi í dreifingu
F
jöldi myndbanda af ís-
lenskum börnum á grunn-
skólaaldri er nú í dreifingu
á Instagram. Um er að ræða
á annan tug myndbanda sem sett
hafa verið inn á samfélagsmið-
ilinn nafnlaust. Börnin virðast
flest vera á aldrinum 12 til 16 ára.
Myndböndin eru tekin upp á síma
af einhverjum sem er að fylgj-
ast með, sum þeirra virðast vera
skipulögð en önnur myndböndin
sýna beinlínis grófar líkamsárásir
þar sem fjöldi barna fylgist með.
Síðan sem um ræðir er nafn-
laus og auglýsir eftir myndbönd-
um af slagsmálum barna. Önnur
börn geta þá sent inn myndbönd
og látið þau birtast án þess að
hægt sé að rekja þau beint til
þeirra. Dæmi eru um fjölmargar
síður af þessu tagi tengdar slúðri,
en DV fjallaði ítarlega um það fyrr
í þessum mánuði.
Í þessu tilviki er um að ræða
síðu sem var nýlega og miðað við
hvað hún er virk er búið að dreifa
henni víða, í mörgum tilfellum er
búið að horfa á myndböndin allt
að þúsund sinnum. Í einhverjum
tilfellum er búið að tagga þá sem
sjást á myndböndunum. Síðunni
hefur nú verið lokað, að minnsta
kosti í núverandi mynd.
Myndböndin, sem DV hefur
undir höndum, sýna flest mjög
gróft ofbeldi þar sem margir eru
að fylgjast með.
Í einu myndbandinu sjást piltar
í slag í undirgöngum. Orðaskiptin
eru lítil sem engin, heyra má hlát-
ur í bakgrunninum.
Í öðru myndbandi má svo sjá
grófa líkamsárás þar sem meðal
annars er sparkað í höfuð á ung-
menni, viðkomandi stóð þó fljótt
upp aftur.
Síðar í sama myndbandi sjást
einstaklingarnir tala saman, heyra
má á röddum þeirra að um er að
ræða börn á grunnskólaaldri.
Af samtalinu má ráða að sá sem
sparkað var í höfuðið á er sagður
hafa „lamið fyrrverandi“ og ef
hinn einstaklingurinn heyri að
sagan sé „fokking sönn“ þá muni
hinn „finnast dauður út í fokking
skúr“.
Borgarfulltrúinn
og sjónvarpskonan
Tvífarar:
T
vífarar eru Vigdís Hauks-
dóttir, borgarfulltrúi
Miðflokksins, og Linda
Blöndal, fjölmiðlakona
á Hringbraut. Báðar eru þær
þaulreyndar og beittar á sínu
sviði. Vigdís hefur verið mjög
áberandi eftir að hún tók sér
pásu frá stjórnmálunum. Til að
mynda hefur hún látið til sín
taka í braggamálinu og sýnt
borgarstjórninni meira aðhald
en aðrir fulltrúar í minnihlut-
anum til samans. Linda hóf
störf hjá Hringbraut árið 2016
og stýrir meðal annars þættin-
um Þjóðbraut. Áður starfaði
hún sem fréttamaður hjá RÚV
og Stöð 2.