Morgunblaðið - 04.09.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018
a Auðveldara að þrífa penslana
aGufar ekki upp
aMá margnota sama löginn
aNotendur anda ekki að sér eiturefnum
a Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum
aUNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn
Hágæða umhverfisvæn hreinsivara
Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunum
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mansjúríusveppurinn var vinsælt
fyrirbæri á íslenskum heimilum fyrir
rétt tæpum aldarfjórðungi. Úr hon-
um var unnið te sem átti að vera allra
meina bót. Einn af forvígismönnum
þessa æðis var Gunnar Eyjólfsson
leikari en þrátt
fyrir mikla um-
fjöllun og áhuga
misstu flestir
móðinn við
svepparæktina.
Síðustu ár hefur
sveppurinn náð
aftur vinsældum
og nú er víða
hægt að verða sér
úti um svokallað
kombucha sem er afurð hans; gerjað
te sem unnið er eftir kúnstarinnar
reglum.
Kombucha Iceland er hugarfóstur
hjónanna Manuels Plasencia Gutier-
rez og Rögnu Bjarkar Guðbrands-
dóttur og er fyrsta brugghúsið til að
sérhæfa sig í kombucha hér á landi.
Afurðir þess hefur meðal annars ver-
ið hægt að fá í Frú Laugu og Búrinu.
Nú hafa þau Manuel og Ragna
tekið höndum saman við Árna Theó-
dór Long og félaga hjá Borg brugg-
húsi og síðar í vikunni kemur á
markað fyrsti íslenski kombucha-
bjórinn. Hann kallast Skoffín. Nafn-
ið vísar til afkvæmis kattar og refs
sem er í raun hvorugt heldur ein-
hvers konar bastarður. Þannig er
Skoffín hvorki bjór né kombucha
heldur einhvers konar blanda af
þessu tvennu.
„Áhugi okkar kviknaði út frá því
að bragðeiginleikar kombucha eiga
margt sameiginlegt með súrbjórum
sem við höfum verið að gera talsvert
af,“ segir Árni Theódór Long,
bruggmeistari hjá Borg, í samtali við
Morgunblaðið.
Nota íslenskt blóðberg
Skoffín er 3,8% að styrkleika og
inniheldur hefðbundin hráefni bjórs
auk tes. Drykkurinn er svo bragð-
bættur með íslensku blóðbergi.
„Þetta er búið að vera virkilega
skemmtilegt samstarf og við erum
gríðarlega ánægð með útkomuna.
Við höfum lengi verið áhugafólk um
kombucha og höfum verið að gera
tilraunir með þetta í heimahúsum og
höfum haft á stefnuskránni lengi að
brugga þetta í græjunum inni í
brugghúsi. Manuel og Ragna eru að
gera mjög góða hluti með framleiðsl-
una hjá sér og því var frábært að
fara í gegnum þetta með þeim,“ segir
Árni.
Ljósmynd/Thinkstock
Sveppurinn snýr aftur Nú þarf fólk ekki að rækta hann sjálft heldur kaupir te í heilsubúðum eða bjór í vínbúðum.
Sveppurinn sækir á
Kombucha hefur notið sívaxandi vinsælda hér á landi að
undanförnu Fyrsti íslenski kombucha-bjórinn á markað
Skoffín Fyrsti kombucha-bjórinn.
Árni Long
Matvælastofnun hefur auglýst eft-
ir umsóknum um bætur til að
úrelda gyltuhús á svínabúum.
Stykirnir eru aðeins auglýstir einu
sinni og síðan verða fjárveitingar
næstu ára notaðar til að greiða ár-
legan stuðning.
Úreldingarstyrkirnir eru hluti af
fjárfestingastuðningi við svínarækt
sem samið var um í síðustu bú-
vörusamningum. Hluti stuðnings-
ins sem samið var um fer í úteld-
ingarstyrki og hluti til að styrkja
fjárfestingar.
Svínaræktin stendur illa vegna
stöðugrar aukningar á innflutningi
svínakjöts, lækkandi verðs á mark-
aðnum og aukinna krafna um að-
búnað dýra á svínabúum í reglu-
gerð þar um.
Markmið stuðningsins er að
hraða endurbótum í svínarækt til
samræmis við kröfur um velferð
dýra. Þinglýst verður kvöð á við-
komandi gyltuhús um að það megi
ekki nota lengur fyrir gyltur.
Bændur geta þá byggt sér ný hús
eða keypt sér grísi af sérhæfðum
uppeldisbúum sem hafa byggt sig
upp í samræmi við gildandi kröfur.
80 milljónir í upphafi
Úreldingarstyrkirnir eru 40
milljónir á ári, samkvæmt búvöru-
samningi. Styrkirnir voru auglýst-
ir í fyrsta skipti á síðasta ári en
bændur drógu allar umsóknir sín-
ar til baka vegna óvissu sem þeir
töldu ríkja um úthlutunarreglur. Í
ár verður því úthlutað tveggja ára
framlagi. Jón Baldur Lorange,
framkvæmdastjóri búnaðarstofu
Mast, segir að miðað sé við að út-
hlutun fyrir næstu ár verði ákveð-
in í ár og ekki verði hægt að sækja
um næstu árin. Styrkjunum verði
úthlutað eftir stærð gyltuhúsanna
sem tekin verða úr notkun. Há-
marksstyrkur miðast við 200 gylt-
ur.
Sækja þarf um fyrir 25. sept-
ember. helgi@mbl.is
Stutt við úreld-
ingu gyltuhúsa
Ætlað að hraða umbótum í svínarækt
Morgunblaðið/Ásdís
Gráðugir grísir Víða þarf að bæta
aðstæður dýra á svínabúum.
Karlmaður sem eftirlýstur er af al-
þjóðalögreglunni Interpol vegna
gruns um nauðgun á Íslandi var í
farbanni meðan á rannsókn málsins
stóð. Maðurinn, Hermn Rasul
Hamd, fór úr landi áður en ákæra
vegna nauðgunar var honum birt.
Samkvæmt því sem kemur fram
á vefsíðu Interpol er Hamd 33 ára
gamall og er frá Írak. Hann er 1,77
metrar á hæð og talar bæði sænsku
og kúrdísku. Sú krafa er gerð að
aðildarríki Interpol leiti Hamd og
handtaki, svo framselja megi hann
til Íslands þar sem mál hans yrði
væntanlega leitt til lykta fyrir dóm-
stólum.
Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir,
saksóknari hjá embætti héraðs-
saksóknara, sagði í samtali í gær-
dag að erfitt væri að koma í veg
fyrir að menn yfirgæfu landið ef
þeir væru ekki í gæsluvarðhaldi.
Því væri málið nú komið í þann far-
veg sem að framan greinir og því
væri maðurinn eftirlýstur.
Yfirgaf landið í far-
banni grunaður og
er nú eftirlýstur