Morgunblaðið - 04.09.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 04.09.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Minjastofnun leggst gegn því að Björgun ehf. flytji starfsemi sína í Álfsnesvík nyrst í Þerneyj- arsundi eins og áformað var. Sex valkostir voru skoðaðir fyrir nýja staðsetningu Björgunar og var Álfsnesvík talin besti kosturinn. Þetta kemur fram í umhverfisskýrslu sem fylgir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, sem nú er í kynningu á vef borgarinnar. Í umhverfisskýrslunni, sem unnin er af ráðgjaf- arfyrirtækinu Alta, kemur fram að í bréfi Minja- stofnunar, sem dagsett er 17. júlí 2018, beini hún þeim tilmælum til Reykjavíkurborgar, á grunni upplýsinga úr uppfærðri fornleifaskráningu Borg- arsögusafns, að fundin verði önnur staðsetning fyrir starfsemi Björgunar. Byggir Minjastofnun tilmæli sín á að svæðið væri hluti af einstakri minjaheild með minjum um verslun, útveg og landbúnað. „Reykjavíkurborg skoðar nú hvernig hægt er að bregðast við umsögn Minjastofnunar og mun eiga samráð við Minjastofnun um það á kynning- artíma vinnslutillögunnar. Skoða þarf hvort mögulegt sé að grípa til mótvægisaðgerða sem t.d. gætu falið í sér að skráðum minjum á svæðinu yrði hlíft að hluta eða öllu leyti, fornleifarannsóknir og/ eða aðrar leiðir við varðveislu minjanna. Niður- staða ítarlegs kostamats er að aðrar staðsetningar fyrir starfsemi Björgunar eru ekki tiltækar þann- ig að sá kostur að leita annað er illfær,“ segir í um- hverfisskýrslunni. Núllkostur, það er ef skipulagi yrði ekki breytt og Álfsnesvík kæmi ekki til greina sem iðnaðar- svæði myndi leiða til þess að ekkert iðnaðarsvæði af þessum toga færi inn á skipulag og fyrirtæki sem þurfa að staðsetja sig á slíku svæði, eins og á við í tilfelli Björgunar, myndu þurfa að hætta vinnslu. Efnisvinnsla á hafsbotni góður kostur Það gæti haft þau áhrif að framboð á efnum t.d. til steypuframleiðslu myndi minnka mikið og þá þyrfti að flytja efni langt að, annaðhvort úr opnum námum eða þá að opna þyrfti nýjar námur á landi. Efnisvinnsla úr námum á hafsbotni hafi reynst hagkvæmur kostur og dregið úr þörfinni fyrir efn- isnám á landi. Aðalskipulagstillagan verður í kynningu til 20. september nk. Hinn 11. október 2016 voru undirritaðir samn- ingar milli Faxaflóahafna sf. og Björgunar ehf. um rýmingu fyrirtækisins af lóð þess í Ártúnshöfða. Samningarnir leystu úr áratuga löngum ágrein- ingi um gildi samninga aðila frá 1968 og 1994. Fyr- irtækið fær að vera með starfsemi á svæðinu til loka maímánaðar 2019. Þar er m.a. geymt bygg- ingarefni sem sanddæluskip félagsins dæla af hafsbotni. Ný byggð mun rísa á landfyllingum Hinn 18. ágúst 2017 skrifuðu Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri og Lárus Dagur Pálsson, fram- kvæmdastjóri Björgunar ehf., undir viljayfirlýs- ingu þess efnis að Björgun flytji athafnasvæði sitt í Gunnunes sem er á sunnanverðu Álfsnesi. Frá þeirri staðsetningu var síðar horfið. Á svæði Björgunar í Ártúnshöfða er áformað að rísi á landfyllingum stækkun Bryggjuhverfis í vesturátt. Gert er ráð fyrir allt að 850 íbúðum í þessu nýja hverfi. Björgun annast framkvæmd landfyllinganna. Minjastofnun leggst gegn starfsemi í Álfsnesvík  Áform um flutning Björgunar ehf. í uppnámi  Minjastofnun segir svæðið vera hluta af einstakri minjaheild  Björgun á að yfirgefa Ártúnshöfða í maí 2019 Viðey Geldinganes Álfsnes Grafarvorgur Sorpa Leirvogur Faxaflói REYKJAVÍK MOSFELLSBÆR Björgun Sævarhöfða Álfsnes A Við Kollafjörð Álfsnes B Við Álfsnesbæinn Álfsnes C Við Álfsnesvík Gufunes Geldinganes Sundahöfn Tillögur að staðsetningu Björgunar Kortagrunnur: OpenStreetMap Morgunblaðið/Eggert Undirritun Lárus Dagur Pálsson og Dagur B. Eggertsson skrifuðu í fyrra undir viljayfirlýsinguna á klettabelti við svæði Björgunar á Ártúnshöfða. Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is | Opið kl. 10-18 virka daga Misty BRJÓSTARHALDARAR 2.900kr. – 3.900kr. – 4.900kr. ÚTSALA NÆRBUXUR 1.000kr. – 1.500kr. – 2.000kr. Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Vesti Kr. 7.900 Str. M-XXXL 4 litir: rautt, svart, dökkblátt, ljósblátt Búið var að fella 872 hreindýr af 1.450 dýra kvóta um miðjan dag í gær. Þar af voru 304 tarfar og 568 kýr. Veiða má 1.061 kú og 389 tarfa. Tarfaveiðin stendur til og með 15. september en veiði á kúm almennt til 20. september. Leyft verður að veiða 40 kýr í nóvember á svæði 8. Mest veitt um helgarnar „Tarfastaðan er ekki slæm, miðað við tímann. Það ætti alveg að geta gengið að veiða þá, lendi menn ekki í þoku. Það er eftir að veiða aðeins meira af kúm,“ sagði Jóhann G. Gunnarsson, sérfræðingur Um- hverfisstofnunar á Egilsstöðum. Hann sagði að hreindýraveiðimenn þyrftu að láta hendur standa fram úr ermum eigi allur kvótinn að nást í haust. Menn komi of lítið til veiða í miðri viku. Langmest sé veitt um helgar, enda virðist flestir hrein- dýraveiðimenn vera helgarveiði- menn. Það valdi meira álagi á dýrin þegar margir séu við veiðar í einu. Betra sé að dreifa álaginu. Nú er ekki eftir nema ein og hálf helgi í tarfaveiðinni en tvær heilar helgar til að veiða hreinkýr. gudni@mbl.is Morgunblaðið/RAX Hreindýr Flestir hreindýraveiðimenn fara á veiðar um helgar. Æskilegt væri að dreifa veiðinni yfir alla daga veiðitímans, að mati sérfræðings. 60% kvótans fallin  Veiði á hreintörfum gengur vel  Talsvert eftir að veiða af kúm Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.