Morgunblaðið - 04.09.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.09.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Sinntu aðeins þeim málum sem eru efst á baugi og láttu allt annað bíða á með- an. Hnýttu lausa enda þar sem við á. Njóttu kvöldsins með fjölskyldunni. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert í algerlega nýrri aðstöðu þessa stundina og veist varla hvað snýr upp og hvað snýr niður. Veltu vandlega fyrir þér til- boði sem þú færð. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vonandi getur þú glaðst á þessum degi og litið framtíðina björtum augum. Hlustaðu á það sem aðrir segja, tjáskipti eru þýðingarmeiri en ella í dag. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú átt stóra prófraun fram undan og þarft á öllu þínu að halda til þess að leysa hana. Vertu opin fyrir breytingunum, þær eru til batnaðar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vertu óhræddur við að sækjast eftir því sem þú vilt og láta einskis ófreistað til að ná takmarki þínu. Þú ert allt of upptek- inn af umhverfinu til að heyra röddina innra með þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt þú hafir í mörg horn að líta máttu ekki láta það verða til þess að þú missir sjónar á markmiðum þínum. Djarfar ákvarðanir eru góðar fyrir hjartað. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér hefur vegnað vel og mátt því gleðj- ast yfir árangrinum með þínum nánustu vin- um. Notaðu tækifærið og gerðu áætlanir í tengslum við vinnu eða starfsframa. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt mjög auðvelt með að leysa af hendi þau verkefni sem þér eru fal- in. Notfærðu þér þessa velgengni en gættu hófs í hvívetna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ef þú gætir þess að hafa allt á hreinu máttu vænta þess að þér verði umb- unað fyrir vel unnin verk. Leyfðu einhverjum að njóta þess með þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er best fyrir þig að tala skýrt og skilmerkilega núna. Sýndu öðrum tillits- semi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu viss um að þú hafir lokið öllum fyrirliggjandi verkefnum áður en þú tekur ný að þér. Láttu aðra um þau verk sem þú þarft ekki að sinna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur lagt óhemju hart að þér að undanförnu og hlýtur nú umbun erfiðis þíns. Ekki verða hissa þótt þeir sem eru í kringum þig njóti óbeinnar ánægju af því. Víkverja leiðist ósamræmi, ekkisíst ef það er á vettvangi sama aðila. Ástæða er til að biðjast strax velvirðingar á orðinu „aðili“, það er sannarlega ofnotað, en Víkverja datt bara ekkert betra í hug í þessu sambandi. Þannig er mál með vexti að Vík- verji flaug fyrir skemmstu með er- lendu flugfélagi frá Íslandi til Bret- lands og þaðan áfram til Spánar. Ein lítil taska fylgdi með flugmið- anum sem Víkverji mátti hafa með sér inn í vélina. Og nýtti hann sér það. Á Keflavíkurflugvelli var ekkert vandamál, Víkverji skundaði óá- reittur með töskuna út í vél og kom henni vandlega fyrir í hólfinu fyrir ofan sætið sitt. Þar sem vel fór um hana. Sama var uppi á teningnum í Bretlandi. Víkverji hélt athuga- semdalaust sem leið lá út í vél. Taskan var ekki fyrir nokkrum manni. x x x Þegar Víkverji flaug til baka tæp-um hálfum mánuði síðar, með sama flugfélagi, var hann óvænt stöðvaður á leið út í vél og honum tjáð að taskan væri of stór til að fylgja honum til sætis og yrði fyrir vikið vistuð í farangursrými vélar- innar. Fyrir það var Víkverji rukk- aður um 60 evrur, eða 7.500 krónur. Víkverji tók þessu ekki þegjandi og hljóðalaust og benti á, sér til málsbóta, að hvorki hefði verið gerð athugasemd við töskuna á Íslandi né í Bretlandi. Hvers vegna er hún þá of stór á Spáni? Þetta er sama flugfélagið, ekki satt? Starfsmaðurinn svaraði því ját- andi en sagði reglurnar einfaldlega svona á téðum flugvelli. Og eftir þeim yrði hann að fara. Rétt er að taka fram að hann var afar kurteis og virtist hafa fullan skilning á mál- flutningi og undrun Víkverja. Hann hefði bara enga heimild til að gera neitt í málinu. x x x Á leiðinni heim frá Bretlandi varekkert vandamál með töskuna. Hvers vegna er hún Ernest á Ís- landi og í Bretlandi en Jack á Spáni? vikverji@mbl.is Víkverji Ég er ljós í heiminn komið svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri. (Jóh: 12.46) 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Guðmundur Arnfinnsson yrkir áBoðnarmiði: Hún Grímhildur mín er grálynd, geðstirð úr hófi og þrálynd, segir hann Björn, bóndi á Tjörn, og nú eru veður öll válynd. Steinn G. Lundholm yrkir: Grálynd er Gróa á Leiti gjarnan hún mætir í teiti Kjaftar svo frá og krítar það smá stöðugt þó staðreyndum breyti. Páll Imsland heilsar leirliði um land allt á meðan rignir vestan heiða – leikur sér að rími um leið og hann segir „byggingarsögu göt- unnar“: Friðmundur byggði á 15 og Fjólmundur síðan á 16, en þar fyrir neðan fiktaði’ á meðan fátækur kallinn hann Hálfdán. Enn segir Páll að „komið sé fram yfir höfuðdag“: Geirlaugur kallinn á Skafli, gjarnan hann sat yfir tafli, en þoldi’ ekki töpin, ja þvílík ósköpin, þá hreinlega gekk hann af gafli. Sigmundur Benediktsson talar um að fyrsta haustlægðin virðist ætla að verða með einhver leiðindi – „sem gætu orðið eitthvað á þessa leið ef marka má veðurspána“: Lægðin hrjúfa, leið er hún, lágt um grúfir sveitir. Þoku kúfar þétt af brún þyrlast úfinleitir. Ingólfur Ómar tekur undir og segir að nú sé haustið að ganga í garð. – „Það gerði grátt í fjöll fyr- ir skemmstu“: Emja vindar ýfast sund unn á skerjum brýtur. Sölnuð hníga grös á grund grána fjallastrýtur. Sigurlín Hermannsdóttur yrkir um tíðarfarið – lætur sig hafa það!: Að yrkja um tíð er ekki gott, orðin leið á þessu. „Nú er úti veður vott verður allt að klessu.“ En Ingólfur Ómar lætur það ekki á sig fá: Ei mun veðrið aftra mér ama síst ég kenni. upp í rúm með frúnni fer og fæ að strjúka henni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Haustlægðir og veður válynd „ÉG VIL ALLTAF SLÁ MÖMMU ÞINNI GULLHAMRA. ÞAÐ ER ÞAÐ EINA SEM HÚN ENDURGELDUR ALDREI.“ „ÉG VEIT EKKI HVORT ÉG EIGI AÐ REYNA AÐ REYTA ARFANN Í GARÐINUM EÐA BARA SEGJA ÖLLUM AÐ ÞETTA SÉ KÁLGARÐUR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... endalaus þolinmæði. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ER AÐ BORÐA HOLLARI MAT UM ÞESSAR STUNDIR Æ, ÉG GET EKKI SAGT ÞETTA OG HALDIÐ ANDLITINU! KONUNGURINN KREFST ÞESS AÐ ÞÚ HJÁLPIR BOGMÖNNUM HANS VIÐ ÆFINGAR! EN VIÐ ERUM EKKI BOGMENN! RÉTT… ÞIÐ ERUÐ SKOTMÖRK!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.