Morgunblaðið - 04.09.2018, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018
árinu. Hjortenberg leggur áherslu á
að CHART hafi frá upphafi verið
hugsuð sem „öðruvísi listkaup-
stefna“ með áherslu á norræn gall-
erí, á þá bestu list sem þau byðu upp
á og á norræna myndsköpun.
„Ein hugmyndin að baki þegar
stofnað var til CHART var að skoða
hvert gæti verið framtíðarmódel
slíkra listkaupstefna eða markaðar
með myndlist yfir höfuð,“ segir hún.
„Helstu gallerí samtímans taka öll
þátt í listkaupstefnum víða um lönd,
ferðast með valin verk á milli heims-
álfa, hitta þar sömu safnarana og
það er eins óstöðvandi hringekja
sem allir taka sér snúning með. En
margir velta engu að síður fyrir sér
hvort það sé besta og áhrifaríkasta
leiðin til að koma þessum verkum á
framfæri. Hér reynum við að setja
saman myndlistarhátíð sem höfðar
jafnt til safnaranna og almennings,
og með því að reyna að finna
framtíðarmódel fyrir stefnumót við
myndlistina.“
Heimilislegri framsetning
Hjortenberg segir að frá upphafi
hafi verið stefnt að því að móta
CHART eftir því sem kalla mætti
norræn gildi. Ekki með því að sýna
bara listamenn frá Norðurlöndum,
þeir geti komið mun víðar að, heldur
með því að bjóða til stefnumóts nor-
rænna listhöndlara og áhugafólks
um myndlist og hönnun á þann hátt
sem Norðurlandabúar kunni svo vel,
í opnu og áhugaverðu samfélagi.
Brosandi bætir hún við að í upp-
hafi ekki verið auðvelt að sannfæra
alla um tækifærin sem fælust í
þessu óvenjulega módeli að list-
kaupstefnu. „En frá upphafi höfum
við unnið út frá þeirri hugmynd að
þar sem Norðurlöndin séu lítið
svæði þá þurfi að bjóða upp á eitt-
hvað sérstakt og ólíkt því sem þekk-
ist annars staðar til að fólk frá öðr-
um heimshornum geri sér ferð til
okkar.“
Hjortenberg bendir á þá sérstöðu
CHART að í sölum Charlottenborg-
ar séu engir básar úr lausum skil-
rúmum fyrir stök gallerí eins og
þekkist á öðrum listkaupstefnum,
sem venjulega eru settar upp í
stórum sölum fyrir hverskonar
kynningar, ekki í raunverulegum
sölum fyrir myndlist eins og hér.
„Þetta fyrirkomulag þekkist hvergi
annarsstaðar. Vissulega var það
svolítil barátta í byrjun að fá gall-
eristana til að fallast á að deila söl-
um með öðrum. En þegar við fórum
svo að undirbúa CHART-hönn-
unarstefnuna nú í fyrsta skipti, þá
kusu umsjónarmenn hennar að
hönnunargalleríin kynntu sín verk
með sama hætti, tvö til þrjú gallerí
saman.
Hugmyndin er að sýningarrýmin
séu opin og listaverkin eigi í samtali
og styðji hvert annað, innan sýninga
hvers gallerís en jafnframt blandist
svolítið.“
Hún segir að í undirbúningsferl-
inu fyrir hverja sýningu sé rætt við
forsvarsmenn galleríanna um það
hvað þau hyggist sýna og hvernig og
út frá því séu galleríunum raðað inn
í salina og reynt að huga að teng-
ingum, sjónrænum sem hugmynda-
fræðilegum, í framsetningunni.
„Þetta er langt undirbúningsferli og
við reynum að gera þetta vel; í sama
sal má til að mynda sjá tvö allþekkt
gallerí setja upp verk til hliðar við
tvö frekar ung og minna þekkt. Við
viljum að þau hagnist öll á sam-
spilinu, til að mynda með því að gall-
eristanir hitti þá safnara sem koma
að ræða við hina. Og ég held að
gestirnir finni þetta vel, ég heyri
bæði safnara og almenna gesti segja
að þetta skapi sérstaka tilfinningu
hér ár eftir ár. Þetta sé miklu
heimilislegri framsetning en fólk á
að venjast á listkaupstefnum annars
staðar.
Svo bjóðum við upp á viðamikla
dagskrá fyrir almenning samhliða
sýningu galleríanna og erum stolt af
henni. Það má sjá sýningar sem sýn-
ingastjórar setja upp og við nýtum
okkur líka samspilið við fjölmargar
aðrar menningarstofnanir í borg-
inni, við galleríin, söfnin og sýning-
arstjóra sem hér starfa. Í stað þess
að skapa þröngan aflokaðan heim
sem gestir stíga inn í, eins og þekk-
ist á öðrum listkaupstefnum, þá vilj-
um við skapa tengingar við sem
flestra sem starfa innan þessa geira
hér á svæðinu. Og sýningar eins og
á þeim ungu og efnilegu í húsakynn-
um akademísins, í Den Frie og á
arkitektúrverkefnunum í görðum
bygginganna eru tilraunir til að
kynna ungt hæfileikafólk á þeim
sviðum.“
„Skemmtileg myndlistarhátíð“
Þegar haft er á orði að þegar gall-
eristar mæti með verk á list-
kaupstefnur sé það til að selja og ná
árangri á því sviði, segir Hjörten-
berg að allar hinar fjölbreytilegu
sýningar og uppákomur á CHART,
gjörningar sem kúratoraðar sýn-
ingar, eigi mikilvægan þátt í því að
draga safnara víða að. „Í nokkra
daga viljum við safna hér saman
fjölbreytilegum hópi fólks, sem
margt hvað hefur ástríðufullan
áhuga á myndlistinni – sumir kaupa
verk – og við trúum því að allir
hagnist á því á einhvern hátt,“ segir
hún.
„Við viljum að fyrirbærið list-
kaupstefna verði aðgengilegra al-
menningi og við sjáum vel að okkur
er að takast að stefna saman ólíkum
hópum, söfnurum, sem eru margir
hverjir mikilvirkir á því sviði, og
ungum og áhugasömum íbúum stór-
Kaupmannahafnarsvæðisins. Mér
finnst stefnumót þessara hópa hér
mjög áhugavert og held að stór hluti
ungs og skapandi fólks í Kaupa-
mannahöfn sæki CHART heim. Við
vitum að þegar safnarar snúa heim
þá hafa þeir á orði að CHART sé vel
heppnað fyrirbæri, hvað gæði lista-
verka og upplifunina í heild varðar.
Sumir ungu gestanna koma einkum
á tónleikana sem við bjóðum upp á
hér í portinu á kvöldin og það er
fínt, það er ímynd okkar, sem lifandi
og skemmtileg myndlistarhátíð, fyr-
ir listunnendur jafnt og fjölskyldur
að gera sér glaðan dag. Hér er fjöldi
erlendra gesta, víða að úr heim-
inum, þeir eru komnir sérstaklega
fyrir CHART og mikilvægar sýn-
ingar sem eru samtímis á svæðinu –
og vissulega er þessi hátíð orðin
mikilvæg fyrir menningarlífið í
Kaupmannahöfn,“ segir Hjorten-
berg.
Efnileg Sýning sænsku listakonunnar Helena Lund Ek í hátíðarsal Akadem-
ísins var hluti samsýningar fimm ungra og efnilegra listamanna.
Forvitni Gestir rýna í verkin hjá i8 galleríi, eftir Rögnu Róbertsdóttur, Ólaf Elíasson og Kristján Guðmundsson.
Íslenskt úrval Á hönnunarsýningunni í sýningarskála Den Frie mátti í nor-
rænni samsýningu sjá úrval ólíkra verka eftir nokkra íslenska hönnuði.
Sjálfsmyndir Finnska Heino-galleríið lagði allt rýmið undir sýningu ljósmyndarans kunna Elinu Brotherus.
Gjörningur Í porti við Akademíið voru nokkir listamenn með ólíka gjörninga, þar á meðal Malin Bülow við salernin.
Öll kvöld hátíðarinnar var boðið þar upp á tónlistarflutning plötusnúða og nutu þeir mikilla vinsælda gesta.
Connexions Fyrir miðju hönnunarsýningarinnar í Den Frie-skálanum var
stór innsetning úr koparþráðum eftir listakonuna Alice Anderson.